Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1998, Page 78

Læknablaðið - 15.10.1998, Page 78
782 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 að kveða nánar um hvort stjóm- ir stofnana hafi forræði um sjúkragögn sem starfsfólk, einkum læknar, hefur skráð. Vandséð er hvernig unnt er að færa gögn til vinnslu í gagna- grunn gegn vilja læknis sjúk- lings nema skýr vilji sjúklings komi til. 4. Samþykki • Ætlað samþykki. I frum- varpinu er gert ráð fyrir ætl- uðu samþykki sjúklinga til færslu upplýsinga í gagna- grunn. Færa má fyrir því rök að slíkt sé í samræmi við alþjóðlegar leiðbeining- ar um þessi efni sem Island á aðild að. Skilyrði slíks samkvæmt þeim leiðbein- ingum er að óháð vísinda- siðfræðilegt mat fari fram á öllum rannsóknum sem gerðar eru (sjá 6. lið hér að aftan). • Upplýst samþykki. Heilsu- farsupplýsingar geta verið mjög viðkvæmar og snert helgustu vé fólks, nefnilega hvort það hefur verið veikt og hvernig. Ekki er víst að hliðstæð notkun heilsufars- upplýsinga sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu (til dæmis samtengingar við aðra gagnagrunna og sölu áskriftar að niðurstöðum úr grunninum) hafi verið höfð í huga þegar áðumefndar leiðbeiningar voru samdar. Því eru viss rök fyrir því að túlka vafa í þessu efni þröngt, og minnast þess að fullorðið fólk hefur sjálfs- forræði. Sterk rök hníga að því að menn gætu því þurft að veita upplýst samþykki sitt fyrir notkun upplýsinga um sig í miðlægum gagna- grunni umfram „venjuleg- ar“ afturvirkar rannsóknir og athuganir sem lúta vís- indasiðfræðilegu mati. Slíkt samþykki er nóg að veita einu sinni. • Neitun. Oljóst er hvernig eigi að fara með upplýsing- ar um þá sem neita því að sjúkraskýrsla þeirra verði færð í gagnagrunninn. Eftir sem áður geta þeir ekki hafnað því að upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna skráningar heilbrigðisyfir- valda eða upplýsingar um skráningarskylda sjúkdóma séu færðar í gagnagrunn- inn. Þó þarf að vera ljóst að einstaklingar geti hætt þátt- töku á öllum stigum og að fyrri upplýsingum um þá verði eytt úr grunninum. • Látnir menn. Ekki er kveð- ið sérstaklega á um hvernig fara eigi með upplýsingar um látna menn. Vísa þarf til ákvæða upplýsingalaga um það efni (80 ára reglan). 5. Sérleyfi og lengd þess Verulegar áhyggjur hafa komið fram um sérleyfi á notkun gagnagrunns af þessu tagi. Eingöngu virðast við- skiptaleg rök liggja til grund- vallar sérleyfi. Umdeilanlegt er hvort gagnagrunnur sé upp- finning og eigi þess vegna að njóta vemdar með sérleyfi. Ennfremur eru einungis veitt sérleyfi til markaðssetningar og notkunar uppfinninga en ekki til finna upp sams konar lyf eða hliðstæð. Alit margra er á þá lund að rými sé fyrir fleira en eitt fyrirtæki á þess- um markaði. Rekstrarleyfi hvers gæti verið um tilteknar spurningar, vandamál eða af- markaðar upplýsingar. Þann- ig gætu þeir sem að krabba- meinsrannsóknum ynnu hér- lendis átt samstarf við annan rekstrarleyfishafa en þeir sem ynnu að rannsóknum á erfðum hjartasjúkdóma svo einhver dæmi séu nefnd. Ennfremur má vekja athygli á öðrum mögulegum leiðum til fjár- mögnunar gagnagrunna af þessu tagi, til dæmis beinum samningum heilbrigðisstofn- ana við rannsóknafyrirtæki og samstarfi við stóra alþjóðlega styrkveitendur, (til dæmis Evrópusambandið, National Institutes of Health og fleiri). Tólf ár eru ennfremur langur tími hvort sem rekstrarleyfis- hafi er einn eða fleiri. Fyrir tólf árum voru einkatölvur mjög fátíðar og veraldarvefur- inn ekki til svo dæmi séu nefnd. Tólf ár eru líka langur tími í lífi vísindamanna og eru jafnvel á stundum sá tími sem þeir gera eitthvað af viti. Örð- ugt er að segja til um tækni- þróun og þarfir næstu ára. 6. Skráning og eftirlitihlut- verk Vísindasiðanefndar • Óljóst er hvers konar upp- lýsingar verða færðar í mið- lægan gagnagrunn; verða allar upplýsingar færðar eða hluti og þá hver? • í frumvarpsdrögunum segir að eftirlit eigi að vera í höndum nefndar um starf- rækslu gagnagrunns sem fylgist með því að fylgt sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra sam- kvæmt þeim. Við teljum að þetta sé of óljóst. Hlutverk nefndarinnar virðist einnig skarast við verksvið Tölvu- nefndar. • Einnig teljum við að nefnd- in sem slík uppfylli hvorki skilyrði samkvæmt íslensk- um lögum né erlendum samþykktum. Forsendur þess álits eru eftirfarandi: I Helsinkiyfirlýsingunni seg- ir eftirfarandi: „Aætlun og framkvæmd hverrar tilraun-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.