Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 9

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 9
Stefnir] Frá öðrum löndum. 103 að hann myndi koma í stað Ri- vera, ef hann félli. En heldur nú einveldið áfram, þrátt fyrir stjórnarskiftin? Það Þykir ekki spá góðu, að færustu stjórnmálamenn Spánverja, eins og t. d. fjármálamaðurinn Cambo og Sanchez Guerra, foringi íhalds- flokksins, fengust ekki til þess að taka sæti í stjórninni. Þykir mörg- um þetta benda í þá átt, að hér sé um herstjórn og harðstjórn að ræða áfram. Berenguer hefir þó lýst því yf- ir, að hann vilji stefna að því marki, að hægt verði að taka upp aftur þinghundna stjórn. Og hann hefir markað stefnubreytinguna með því, að látá lausa alla stjórn- mála-fanga og leyfa öllum útlög- um að koma heim. En ritskoðun- ina hefir hann ekki fengizt til að afnema. Lýðveldi ? Allar æsingar í sambandi við stjórnarskiftin hafa verið þagg- aðar niður. En margir spá því', að konungdæminu sé mikil hætta búin. Tala menn mikið um lýð- veldi, og jafnvel íhaldsmenn eins og Guerra, hafa lýst því yfir, að þeir muni styðja lýðveldismenn, ef ekki sé önnur leið til þingræðis °g 'þjóðræðis. Romanoes greifi, sem er einn af atkvæðamestu mönnum á Spáni, hefir lýst sig fylgjandi því, að Spánn verði lýð- veldi, þannig, að Alfons konung- ur verði kosinn forseti æfilangt og niðjar hans eftir hann. En þó að þessar lýðveldisraddir sé há- værar í svipinn, er allt enn í ó- vissu. Og kunnugir menn segja, að spánska þjóðin sé svo sofandi og áhugalaus um öll þessi mál, að engrar verulegrar mótspyrnu sé þaðan að vænta gegn einveldinu eða nokkurra átaka til þess að vinna sér frelsi. Indlandsmálin. Indland hefir lengi verið erfið- asti hluti brezka heimsveldisins.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.