Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 65

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 65
159' Fjármagn og framfarir. Stefnir] ar stríðsins ákvarðaðist af þess- um tölum. — Hér kemur aft- ur fram hugmyndin um, að þjóðarauðurinn sé svo og svo margar krónur, sem hægt sé að nota til hvers sem er, og þá líka hægt að eyða til þess að heyja ófrið. En stríðsárin gjörðu mönn- um það smám saman ljóst, að engin þjóð lifir af samanlagðri þjóðareign sinni, heldur af því, sem hún framleiðir dag frá degi, að jafnvel kostnaðinn við að heyja ófrið verður að greiða að mestu sf samtíma þjóðarframleiðslu, nema hjálp til þess fáist frá öðr- um löndum, sem vilja leggja fram nokkurn hluta afrakstursins af samtímá þjóðarframleiðslu sinni. Það var nú einmitt þetta síðasta, sem að lokum réði úrslitum ófrið- arins. Þar eftir kom svo fram spurn- ^ngin um hernaðarskaðabætur. Bandamenn gjörðu sér hinar f jar- stæðustu hugmyndir um, hvað Þýzkaland gæti borgað. Auðsjá- anlega var það aðallega sama hugsunarvillan, sem áður var nefnd, sem hefir haft þessi áhrif. Þýzkaland, sem við skulum segja að hafi átt þjóðareign upp á 300 hnljarða marka fyrir stríðið, ætti SVo sem að geta borgað stríðs- skaðabætur upp á eitt eða tvö hundruð miljarða! En hvemig þessi greiðsla ætti að fara fram, með hverju Þýzkaland eiginlega ætti að borga, það gjörðu menn sér aldrei Ijósar hugmyndir um. Auðvitað var hægt að taka dálít- ið af skipum, eimreiðum, skepn- um o. þ. h. frá Þjóðverjum, en hvað svo? Peninga? Já, þeim hafði Þýzkaland nóg af, en það voru pappírssneplar, sem voru Bandamönnum einskis virði. Hvar var þá þessi mikli þjóðarauður Þýzkalands? Smám saman hafa umræðurnar um hernaðarskaða- bætur byrjað að skýra þessa spurningu. Svarið gefur góða úr- lausn þeirrar spurningar um eðli auðlegðarinnar eða verðmætanna, sem vér hér erum að velta fyrir oss. Þjóðarauður Þýzkalands var aðallega Þýzkaland sjálft: hið þýzka land, með öllu, sem í það hafði verið lagt af ræktun, samgöngutækjum o. þ. h., svo og öll hús og mannvirki á landinu, með öllu sem 1 húsunum var af vélum og efnum, húsgögnum og húsmunum. Þetta er ekki hægt að nota í greiðslur til útlanda. Stríðsskaðabæturnar verður að greiða með afrakstyinum af fram- haldandi rekstri þýzka þjóðarbú- skaparins eftir stríðið. En þar með er allt skaðabótamálið komið á

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.