Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 92

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 92
186 Kviksettur. [Stefnir afsökun og flýja, en í því sama bili leit önnur frúin á hann, og hné hann þá niður á stól. Eftir það fóru þessar hefðarfrúr að tala .saman aftur. Farll leit nú flótta- lega kring um sig og stalst til þess að skoða það, sem inni var. Allt í kring spruttu álmtré, utan við indverslta ábreiðu, sem var á gólfinu. Þau stóðu þétt og ófust saman eins og frumskógur í hita- beltinu, en efstu greinarnar þyrl- uðust út á loftið. Á stofn eins trésins var fest auglýsing og stóð þar á: „Hundar bannaðir". Eftir drykklanga stund kom önnur hefðarfrúin hátíðlega siglandi eftir stofunni, staðnæmdist beint fyrir framan hann og horfði á hann milJi augnanna. Hún sagði ekkert orð, en það var eins og svipurinn allur segði: „Svona! tJt með það! Og hagaðu þér skikk- anlega!“ Ifann hafði hugsað sér að brosa vingjarnlega til þessara aumingja fátæku en heiðarlegu hefðarkvenna. En ])að varð nú minna úr því. „Gjörið svo vel að láta mig fá te“, sagði hann, og hann var svo auðmjúkur, að það var eins og hann bætti við: „Ef þér hafið ekki ofmikið fyrir því“. „Og hvað með því?“ spurði frú- in stutt í spuna. „Tebrauð“, stundi hann upp, og þó þótti honum enginn hlutur verri en tebrauð. En hann varð að svara einhverju. Frúin snerist á hæl og var eins og fötin hennar segðu: „Eg skal ekki refsa þér í' þetta sinn. En gerðu nú ekkert af þér, meðan eg er að ná í teið.“ Þegar hann hafði drukkið einn bolla af te og etið eina sneið af tebrauði, var teið orðið rammt og tebrauðið eins og bezta skósóla- leður. En Farll fór nú að ná sér eftir fyrstu geðshræringuna. Hann hafði nú eiginlega ekkert gert af sér. Hann hafði komið inn í opinberan stað og óskað að fá bolla af te fyrir peninga. Auk þess gerðu nú hefðarmeyjarnar allt til þess að láta sem þær vissi ekki af honum, og engin lifandi sála viltist inn í „Álmviðinn“ til þess að fá „reglulegt" te í „reglu- legri“ stofu. Og nú hvarflaði hug- ur hans að efni, sem ekki hafði komið upp í huga hans árum sam- an, og það var peningar. En hann hafði tekið eftir því, að það var ekki nema einn gullpeningur eftir í buxnavasanum, þegar hann var búinn að borga vagnstjóran- um og geymsluna á dótinu. Það gat því verið full ástæða til þess að athuga, hve mikil peningaráð

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.