Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 96

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1930, Page 96
190 Kviksettur. ÍSLENDINGAR notið Fataef ni. Endingarbest og ódýrast. Talið við umboðsmenn vora sem eru um alt land. Aöalútsala ÁLAFOSS Simi 404 Laugav. 44 Rvik „Mathah!“ „Mathaw!“ eins hátt og þau gátu. Hann náði í eina framreiðslustúlkuna og spurði: „Hvað mikið?“ Hún lét blað falla á borðið fyrir framan hann um leið og hún sveif framhjá á fullri ferð, og þeytti úr sér: „Borga við borðið!" Hann gekk að borðinu. Það var hulið í álmviðum, og bak við það sat svo tignarleg frú, að allar hin- ar sýndust aumingjar við hlið henni. Ef hitt voru greifafrúr, þá var hér auðsjáanlega hertogafrú — ,að minnsta kosti. Hann lagði pund á borðið. [Stofnir „Ekkert smærra?“ heyrði hann þjóta í greinum trjánna. „Því miður ekki“, svaraði hann, beygður. Hún þreif pundið, eins og það væri afskaplegur kross, er henni væri á herðar lagður. „Undarlegt!“ muldraði hún. Síðan lauk hún upp tveim hólf- um og fékk honum átján skild- inga og sex penninga til baka, og var auðséð, að hún þóttist skað- ast á viðskiftunum. „Þakka yður“, sagði hann og stakk peningunum í vasann skömmustulegur eins og þetta væri illá fengið fé. Og svo fór hann út, úr þessari vistarveru, þar sem aumingja fá- tæku hefðarfrúrnar voru að reyna að hafa ofan af fyrir sér. Það síð- asta, sem hann heyrði, var öskrið í krökkunum: „Mathaw! Mat- hah!“ ALICE. Nokkru síðar stóð hann fyrir framan dyrnar á St. Georges-hús- inu og horfði á mannfjöldann, er streymdi þaðan út. Allt í einu var hann ávarpaður af þýðri kvennmannsrödd: „Þér munuð vera herra Leek?“ Hann snerist á hæli, eins og honum hefði verið sýnt banatilræði. Hvað var hann l

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.