Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 3
SAGNIR
Blað sagnfræðinema viö Háskóla islands. — Ritnefnd: Árni Zophanlasson, Bjarni Guömarsson, Eggert Þór
Bernharðsson, Gísli Kristjánsson, Gunnlaugur Sigfússon, Halldór Bjarnason, Sigurgeir Þorgrimsson og
Valdimar Unnar Valdimarsson. Setning: ísafoldarprentsmiðja h.f. Offsetprentun: Offsetfjölritun Birkis.
FRA RITNEFND
Eflaust þykir mörgum óþarft að rit-
nefnd sé að blaðra svona í upphafi rits af
þessu tagi. Við erum því að mörgu leyti
sammála. Þó vildum við gjarnan koma
því hér á framfæri að efni Sagna skiptist
eiginlega í þrennt að þessu sinni. f fyrsta
lagi er um að ræða ýmislegt efni, sem
snertir kvennasögu, í öðru lagi greinar,
sem fjalla á einn og annan hátt um þjóð-
ernishyggju í sögu og sagnaritun, og í
þriðja lagi er í blaðinu blandað efni af
ýmsu tagi, þar á meðal eitt ljóð, sem
gefur. sjálfum Passíusálmunum lítt eftir
hvað varðar stíl og listrænt yfirbragð.
Við ritnefndarmenn þurftum ekki að
fara út af HásKolalóðinni til að afla
efnis. Meginhluti þess er sem fyrr sóttur í
smiðju sagnfræðinema sjálfra og læri-
feðra þeirra við Háskólann. Þó er vert að
benda á að ein greinin er komin handan
um haf frá Englandi. Það er grein
Dorothy Thompson um áhrif kvenna í
Chartistahreyfingunni á 19. öld. Gripum
við Dorothy glóðvolga er hún sótti ísland
heim fyrr í vor ásamt eiginmanni sínum,
sagnfræðingnum og friðarsinnanum
Edward P. Thompson.
Allt er þegar þrennt er segir máltækið
°g ef sagnfræðinemar tækju mark á því
legðu þeir nú upp laupana og hættu út-
gáfustarfsemi sinni. Okkur segir hins
vegar svo hugur um að 4. árgangur
Sagna líti dagsins ljós að ári. Nóg er af
ahugasömum sagnfræðinemum og nóg
af efni, sem bíður þess að koma fyrir
augu fróðleiksfúsra lesenda í stað þess að
rykfalla í hirslum Háskólans. En útgáfa
af þessu tagi er kostnaðarsöm og er það
ut af fyrir sig næg ástæða til að setja hér
Punktinn við þennan pistil. Efni ritsins
talar sínu máli.
Reykjavik, maí 1982
EFNISYFIRLIT:
Frá ritnefnd .............................................. 1
Þorgeir Kjartansson: Stóridómur ........................... 2
Gísli Kristjánsson: Frjálshyggjumenn eða rugludallar? . 13
Aðalheiður Steingrímsdóttir: Hvað er kvennasaga?.......... 16
Kvennasögusafn íslands ... -.............................. 25
Hallgerður Gísladóttir: Kvennasöguhópur I Háskóla íslands 27
Sigriður Sigurðardóttir: Höfðu konur börn á brjósti 1700-1900? 28
Hallgerður Gísladóttir: Ráðstefna í Skálholti um miðaldakonur 34
Kristín Ástgeirsdóttir: ,,Súpólitískasynd" ............... 37
Dorothy Thompson: Áhrif kvenna í Chartistahreyfingunni á
19. öld................................................. 47
Mikið verk óunnið — Sigríður Th. Erlendsdóttir svarar spurn-
ingumSagna.............................................. 56
Þorleifur Óskarsson: Varalögreglan — til varnar ríku fólki eða
svipa á verkalýðinn? ................................... 58
Árni Björnsson: Um útleiðslu Ingvars úr Tjarnarbúð........ 66
Þjóðernishyggja í sögu og sagnaritun ..................... 69
Arnór Hannibalsson: Umþjóðir.............................. 72
Andrés Eiríksson: íslendingar eða norrœnir menn? ......... 77
Bergsteinn Jónsson: Föðurlandsást — þjóðernisstefna — þjóð-
rembingur............................................... 81
Þjóðernishyggja og sagnaritun — Ingi Sigurðsson og Þór
Whitehead svara spurningum Sagna ....................... 85
Þórunn Valdimarsdóttir: Þjóðernishyggja Gísla Brynjólfssonar 87
Gunnar Karlsson: Af þjóðhoUum dugnaðarmönnum ............. 93
Jón Viðar Sigurðsson: Þjóðernishyggja Einars Olgeirssonar ... 97
Valdimar Unnar Valdimarsson: Hafði verslunin áhrif á afstöð-
una til Sovétríkjanna?................................. 102
Ingólfur Á. Jóhannesson: TUgangur sögukennslu í grunnskólum 112
Bragi Guðmundsson: Kœru koUegar.......................... 115
Spurningar úr íslandssögu ............................... 118
LANOC 3 ÓKASAFM
333357
IfiLAMDS
1