Sagnir


Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 89

Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 89
Þórunn Valdimarsdóttir: Þjóðernishyggja Gísla Brynjólfssonar Grein þessi er hluti af ritgerð um þjóðernis- hyggju þriggja Íslendinga á 19. öld, þeirra Gríms Thomsen, Tómasar Sæmundssonar og Gísla Brynjólfssonar. „Ekki beitti Gísli Brynjólfsson sér fyrir ákveðnum stjórnmálum, og þegar leið á ævina, taldi hann sig ekki geta fylgt Jóni Sigurðssyni að öllu leyti í þjóð- málabaráttunni. Var Gísla lögð sú afstaða út á verri veg, einkum þar sem hann fékk það, sem kallað var álitlegt embætti, hjá dönsku stjórninni.“ (Saga íslendinga VIII, 1. bls. 194). Þetta er dómur Jónasar Jónssonar (og þá um leið sá dómur sem sagan fellir) um Gísla Brynjólfsson (1827—1888). Hér á eftir verður gerð tilraun til að sýna fram á að Gísli hafi beitt sér fyrir „ákveðnum stjórnmál- um“ og einnig að hann hafi stuðlað að efl- ingu þjóðernishyggju íslendinga með skrif- um sínum. Einnig verður drepið á deilu þeirra Jóns Sigurðssonar og Gísla, en hún er mjög athyglisverð frá hugmyndasögulegu sjónarhorni. Gisli var menntaður í norræn- um fræðum og hafði því afstöðu til að finna að sögulegri festu sjálfstæðishugmynda Jóns. Einnig var Gísli mjög vel að sér i sam- tímasögu álfunnar og bar skynbragð á flest það sem pólitík viðkom. Gísli gaf út tíma- ritið Norðurfara í 2 ár ásamt Jóni Thorodd- sen, þegar hann var rétt liðlega tvítugur og skrifaði í það menntaðar greinar í frjáls- ræðisdúr. Önnur heimild um Gísla er dagbók hans frá árinu 1848, sem gefur innsýn inn i allskyns geðbrigði og hugrenningatengsl sem komast yfirleitt ekki á prent; dagbókin gerir manni kleift að nálgast Gísla meir en sam- tímamenn hans. Gísli skrifar dagbókina og greinar sínar i Norðurfara á umrótatímunum 1848—49. Hrifning Gísla á frelsishreyfingum þessara tíma hefur verið túlkuð út frá vissri hug- myndaskekkju þar sem hann hefur verið kallaður „fyrirrennari sósíalismans á íslandi og í íslenskum bókmenntum.“1) Mér finnst Gísla gjörður nokkur óleikur með þessu þar sem hann lýsir andúð sinni á „common- ismus“ hvað eftir annað, bæði i dagbók sinni og grein í Norðurfara. Hann hafði sam- Gísli Brynjólfsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.