Sagnir


Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 26

Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 26
kvennasaga eigi ekki eingöngu að fjalla um konur heldur beri að fjalla um tengsl kynj- anna í félagslegu samhengi rúms og tíma. Það beri að líta afstætt á þessi tengsl og í ljósi framleiðsluhátta og stéttasamsetningu þjóðfélagsins. Svo mörg voru þau orð. Hver á svo tilgangurinn með kvenna- sögu að vera? Þegar fjallað er um ákveðið þjóðfélag þá verður það að vera krafa að bæði körlum og konum séu gerð skil, hvað varðar samfélags- legt hlutverk þeirra og stöðu. Það er þó mest aðkallandi að sögu kvenna séu gerð skil á sannfærandi hátt og það verði liður í ritun einhverskonar heildarsögu, ekki bara sögu kvenna. En hér er komið að mikilvægu at- riði. Á undanförnum árum hafa komið upp þær raddir að nauðsynlegt sé að koma með nýjar áherslur í kvennasögu, atriði sem eiga sér litla hefð í sögurannsóknum almennt. Dæmi um þetta er t.d. fjölskyldan, börnin, kynlífið, getnaðarvarnir og sjúkdómar. Auðvitað er þetta gott og blessað allt saman, en það eru þó næsta fáir sem bent hafa á það að kvennasagan megi ekki lenda í þeirri sjálf- heldu að fjalla eingöngu um þessi atriði. Útgangspunkturinn hlýtur alltaf að vera sá: hvernig tengjast konur samfélagslegri framleiðslu. Hvaða þýðingu höfðu konur fyrir framleiðslu samfélagsins. Þetta hlýtur að vera útgangspunkturinn þegar meta á stöðu kvenna í ákveðnu þjóðfélagi. Það má ekki falla í gleymsku, að konur skiptast í eins margar stéttir og karlar. Þetta atriði virðist oft hafa lent neðarlega á blaði meðal þeirra mörgu kvenna sem fást við kvennasögu. Það er ekki sama hvern maður er að skrifa um, er það ánauðug kona á tímum rómaveldisins, Elísabet fyrsta eða íslensk fiskverkunarkona í byrjun þessarar aldar. Hagsmunir þessarra þriggja kvenna geta aldrei farið saman, hvað þá að þær hafi sömu vitund um stöðu sína. Ef það gleymist að ganga út frá efnahags- legri stöðu kvenna innan ákveðins þjóð- félags, þá er auðvelt að lenda á þeim villi- götum sem gera það að verkum að framsetn- ingin verði bæði stöðnuð og villandi í sögu- legum skilningi. Þetta er einkum mikið vandamál þegar fjallað er um löngu liðin tímabil þar sem heimildir eru af skornum skammti. Stundum hefur viljað brenna við þegar loksins einhverjum hefur tekist að grafa eitthvað merkilegt upp, t.d. heimildir sem fjalla um konur og þá ekki síst þegar komið hefur í ljós að höfundurinn var sjálf kona, að mikilvægi heimildarinnar hefur verið stórlega aukið: Að þarna kæmu fram upplýsingar sem ættu við allar konur, en oft gleymist að athuga úr hvaða stétt sú kona var sem upphaflega reit skilaboðin, frásögnina, bréfið eða hvað það nú kann að vera. Þetta er ekki hægt að gera því konur eru ekki eins- litur hópur sem býr við sömu lífsskilyrði. Tilgangurinn með kvennasögu er ekki að- eins einn, að veita konum einhverja samsömun við fortíð sína. Forðast verður líka, að kvennasagan lendi í þeirri blindgötu að vera aðeins ennþá ein sérgreinin sem hægt er að sérhæfa sig í eða velja sér úr öllum þeim aragrúa af sérgreinum sem nú fylla sagnfræðina, eins og til dæmis hernaðar- saga, verkalýðssaga og svo mætti lengi telja. Markmiðið með kvennasögu hlýtur að vera að rita einhverskonar heildarsögu eins þjóð- félags. Þetta er auðvitað ansi háleitt mark- mið og líka af því taginu sem virðist mörg ljósár i burtu. En það er alltaf vænlegt til árangurs að hafa markmiðið fyrir framan sig og endurtaka það fyrir sjálfum sér sem oft- ast. Heimildir: Birgit Svane Hansted, Dorte Meiling Nielsen: Meto- diske overvejelser vedr. kvindehistorie: Kritiske Histor- ikere, 1978. Nr.: 1. KBH. Kvindebevægelsens Hvem-Hvad-Hvor. Politikens Forlag. Köbenhavn 1975. Tinna Vammen: Kvindeperspektiv pá Historie.: Ude og Hiemme: Historieteoretiskt Tidskrift, nr: 16. Köben- havn 1978. 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.