Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.05.1982, Qupperneq 83

Sagnir - 01.05.1982, Qupperneq 83
Bergsteinn Jónsson: Föðurlandsást — þjóðernisstefna — þjóðrembingur Þáttur þjóðernisstefnu 19. aldar í lífi og starfi þriggja stjórnmálamanna Tilefni þessarar samantektar er það, að gamansamir og léttlyndir stúdentar þáðu mig á dögunum að festa á blað álit mitt á áhrif- um þjóðernishyggju á stjórnmálastörf og stefnu þriggja íslenzkra stjórnmálamanna: Jóns Sigurðssonar, Benedikts Sveinssonar eldri og Hannesar Hafstein. Ef til vill er ætlun fyrirspyrjenda að prófa mig lítillega, kynna sér skoðanir mínar á þessum efnum — eða skoðanaleysi. Læt ég mig það einu gilda, en ég tek mér það bessaleyfi að drepa aðeins á hugtökin, sem ég hef fyrir yfirskrift, ásamt meginefninu. Ubi bene, ibi patria, sögðu Rómverjar, og það er haft fyrir satt, að þeir hafi löngum vitað hvað þeir sungu. Þar sem mér vegnar vel, er föðurland mitt. Þannig virðast þeir líka hafa hugsað þýzku stjórnarembættis- mennirnir, sem öldum saman flykktust að kjötkötlum konungs og stjórnar í Danmörku. Alla ævi héldu þeir áfram að tala þýzku, hlýða á þýzkt guðsorð og lesa þýzkar bækur. Það var helzt þegar þeir vildu vera kurteisir og siðfágaðir eða þurftu á ann- an hátt að vanda sig, að þeir brugðu fyrir sig frönsku. En þeir undu sér flestir ofurvel í borginni við sundið og fallegu herragörðun- um sínum á dönsku eyjunum, og iðulega létu þeir hlý orð falla um vort kæra föðurland — Danmörku. Svona föðurlandsást — patríótismi — var útbreitt og alþekkt fyrirbæri fram um 1800 i löndum Danakonungs og víðar. Stöku sinn- um örlaði á gremju danskra fyrirmanna í garð þýzku aðskotadýranna, t.d. þegar Stru- ensee kokkálaði kóngsráfuna. En varla höfðu þeir koddað Struensee fyrr en þeir kölluðu á aðra Þjóðverja. Frá öllum öldum þekkjum við dæmi um ágæta íslenzka patríóta eða föðurlandsvini. Allir voru þeir um fram allt trúir og dyggir þegnar konungsins, sem líka var borgaraleg skylda, rétt eins og að vera lúterskur, forðast saurlifnað og stilla sig um að stela. En marg- ir hafa þeir verið sama sinnis og ekkjan við ána, sem Guðmundur á Sandi gerði ódauð- lega: „Hún elskaði ekki landið, en aðeins þennan blett,...“ Fram eftir öllu var ísland hreint að segja of víðlent fyrir flest sin börn til þess að þau gætu séð það sem órofa heild. Menn voru Austfirðingar, Vestfirðingar, Sunnlendingar eða Norðlendingar; Eyfirðingar eða Hún- vetningar; Rangæingar eða Borgfirðingar; og flestir höfðu álíka strjálar og óljósar spurnir af fjarlægum landshlutum og öðrum löndum. Það tók þjóðernishreyfingu — national- isma — nítjándu aldar talsverðan tíma að finna farvegi til íslands og síðan að berast þar út. En um síðir urðu íslendingar svo gegndrepa af þessum straumum, að um 1900 stóðu þeir næstum einangraðir og stakir, sem ekki tóku ósjálfrátt og óafvitandi þjóð- ernislega afstöðu til flestra mála. Menn eru á einu máli um, að íslenzk þjóð- frelsisstefna stingi fyrst alvarlega upp kollin- um í ritum eins á Ármanni á alþingi, Fjölni, Nýjum félagsritum og Norðurfara. En í Rit- um Lærdómslistafélagsins, Minnisverðum tíðindum, íslenzkum sagnablöðum, Klaust- 81
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.