Sagnir - 01.04.1989, Síða 32
Sigríður Þorgrímsdóttir
og þaðan bárust straumar til Íslands
með lærðum mönnum. Embættis-
menn eins og Holger Rosenkrantz,
sem hér var hirðstjóri 1620-33,
höfðu og áhrif í þessum efnum.
Nokkur munur var þó á framgangi
mála á íslandi og annarsstaðar í
Evrópu. Athyglisverðastur er sá mis-
munur að á íslandi voru nær ein-
göngu karlar kærðir fyrir galdra, en
erlendis voru það mun oftar konur.
Ýmsar skýringar hafa komið fram á
því hversvegna fleiri konur voru
brenndar erlendis en karlar og
verða þær ekki raktar hér, en ljóst er
að galdratrúin erlendis var mjög
tengd kynlífi og kynlífsórum, t.d.
um kynferðislegt samneyti kvenna
við djöfulinn. Þessir órar komu lítið
fram hér á landi.17 Ólafur Davíðsson
skýrir galdraofsóknir á hendur kon-
um mjög skemmtilega:
Miklu hefur verið brent fleira af
konum en körlum ... Þetta virðist
vera kynlegt í fljótu bragði, en er
þó eðfílegt, þegar betur er að
gætt. Konur eru að öllum jafnaði
hneigðari til hjátrúar en
karlmenn. Þær hafa venjulega
fjörugra ímyndunarafl og ofsa-
fengnari geðshræringar. Auk þess
fást konur miklu meira við að
bera út sögur hver um aðra en
karlar ... Það má telja það alveg
víst, að þvaður og mælgi málugra
kerlinga hafi átt mjög mikinn þátt
í galdrabrennunum.18
Það er því ekki að sjá að Gróa á Leiti
hafi verið persónugervingur ís-
lensku kvenþjóðarinnar á 17. öld
samkvæmt þessari skýringu, því
aðeins ein kona var brennd á ís-
landi.
Átímabilinu 1554-1719 komu um
120 galdramál upp hér á landi og
þau voru tíðust á árunum 1646-95,
komu flest upp í ísafjarðarsýslu og
þar næst í Barðastrandarsýslu. Tala
brenndra er ekki alveg ljós, hún er
um 20-25 manns.19 Ástæða þessarar
óvissu er sennilega sú að stundum
voru menn kærðir fyrir aðrar sakir
og síðan einnig fyrir galdra, svona
eins og í leiðinni. Eiginlegt galdra-
fár er talið hefjast í Trékyllisvík árið
1654 og með ákærum sr. Jóns
Magnússonar árið eftir. „Raunar eru
mál þessi mjög sprottin af refsigleði
Galdrastafur til að uinna öll mái
eins sýslumanns og geðveiki eins
klerks...",20 segir Helgi Skúli Kjart-
ansson. Aðrir eru á svipuðu máli;
t.d. segir Siglaugur Brynleifsson um
galdrafárið að „þess gætti langmest
á Vestfjörðum á vissu tímabili, þeg-
ar tveir sýslumenn, náskyldir, og
klerkur, hálfbróðir annars sýslu-
mannsins, auk ruglaðs klerks í
viðbót, létu mest að sér kveða
þar...“21 og Sigurður Nordal segir að
Fjölnir.
á Vestfjörðum hafi verið „einhver
smitvaldur eða pestarbrunnur, og er
enginn líklegri til þess en Þorleifur
sýslumaður Kortsson..."22 Hannes
Þorsteinsson er heldur ekki í vafa:
„Það er mála sannast að enginn
einn maður á meiri sök á galdraof-
sóknum og galdrabrennum 17.
aldarinnar hjer á landi en Þorleifur
lögmaður Kortsson, þessi lítilmót-
legi, einsýni og líttlærði valdsmað-
ur...“23
Leiðir þeirra þriggja manna sem
hér er sagt frá lágu að einhverju leyti
saman. Flest galdramál koma upp á
Vestfjörðum og ekki hægt að neita
að menn þessir koma mjög við
sögu. Við skulum því líta nánar á
þær fullyrðingar sem vitnað er í hér
að framan og kanna réttmæti þeirra.
Persónusaga eða
sarnfélags -
er einstaklingurinn
eyland?
Ekki er hægt að neita að atburðirnir
í Trékyllisvík hafi markað upphafið
að íslensku galdrafári. Galdramál
voru einstök fram að því, en urðu
þar með einskonar faraldur. í Tré-
kyllisvík virðist svo sannarlega hafa
verið einskonar „pestarbrunnur",
þar voru þrír menn brenndir á
skömmum tíma og galdrakærur
héldu áfram þar um tíma. Þessir at-
burðir hafa eflaust ýtt undir galdra-
ótta á Vestfjörðum, en annars er
ekki hægt að tengja þá beint við t.d.
mál sr. Jóns Magnússonar, að öðru
leyti en því að Þorleifur Kortsson
kemur við sögu í báðum tilfellum.
Veikindi sr. Jóns og prestsfrúarinnar
í Selárdal virðast hafa verið af svipuð-
um toga, nefnilega andleg. Óneitan-
lega hafði sr. Páll í Selárdal stóran
hluta galdrabrenna á samviskunni.
Af fjórtán brennum á árunum 1669-
83 má rekja sex til sjö til sr. Páls og
Þorleifur Kortsson fjallaði um átta
mál af fjórtán.24 Vissulega hlýtur
framganga þessara manna að hafa
skapað fordæmi fyrir aðra og æst al-
menning upp. Þetta voru menntaðir
menn sem alþýðan trúði á og
treysti. Á íslandi virðist þáttur ein-
stakra manna í galdramálum skipta
höfuðmáli, það var ekki kirkjan sem
30 SAGNIR