Sagnir - 01.06.2005, Síða 30
Minningar og goðsagnir um sfðari heimsstyrjöldina f Danmörku
í málefnum flóttamanna fyrir síðari heimsstyijöld og á meðan henni
stóð.l,l“ Umsjón með rannsókninni hefur Dönsk miðstöð um rannsóknir
á helförinni og þjóðarmorðum (DCHF)l,iv og að henni starfa margir
þekktustu fræðimanna Danmerkur. Rannsóknin hófst haustið 2000. Þó
að rannsókninni sé enn ekki að fullu lokið, var greint frá helstu
niðurstöðum hennar í Politiken nýlega: Þrátt fyrir aðvaranir, og án þess
að Þjóðveijar óskuðu eftir framsali, sendu dönsk yfírvöld að minnsta
kosti 19 gyðinga til Þýskalands, þar sem þeir dóu í útrýmingabúðum. í
ljósi þessa hefúr forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen,
beðið gyðinga opinberlega afsökunnar.lxv
Gagnrýni fræðimanna á ríkjandi umfjöllun um síðari
heimsstyijöldina í Danmörku hefúr hingað til ekki haft mikil áhrif. Enn
lifa margar mýtur góðu lífí í daglegum skrifúm fjölmiðla'™ og danskir
fræðimenn fjalla margir hveijir enn um októberatburðina 1943 á
gagnrýnislausan hátt og lýsa þeim sem einhvers konar siðferðislegu
afreki.1™1 Skyldi þetta vera að breytast? Uvi"
NIÐURLAG
Frá því á 19. öld hefúr Danmörk verið þekkt sem land friðsemdar
og mannúðar. Baráttuleysi Dana í síðari heimsstyijöldinni og samvinna
með þýska hemámsliðinu varð til þess að eftir stríð var ekki ljóst hvort
líta ætti á Danmörku sem bandamann eða andstæðing Þýskalands.
Smávægileg andspyma og mótmæli vom notuð til að sýna fram á
óvirka en almenna andstöðu Dana við hemám Þjóðveija. Þá unnu Danir
afrek í stríðinu sem mikið hefúr verið gert úr síðan, bæði í Danmörku
og erlendis. Þetta var björgun næstum allra gyðinga frá Danmörku árið
1943 þegar senda átti þá í útrýmingarbúðir. Notkun danska ríkisins á
þessum atburði er dæmi um afar vel heppnaða dæmisöguvæðingu
flókinna atburða og notkun þeirra í pólitískum tilgangi. Þetta sögulega
minni hefúr verið notað, ásamt ímynd Danmerkur ffá því fyrir stríð, til
að gera dönsku þjóðina að nokkurs konar fyrirmynd annarra þjóða hvað
varðar siðferði, umburðarlyndi og mannúð.
Þannig náði Danmörk að skipa sér í hóp sigurvegaranna í síðari
heimsstyijöldinni. Imynd hennar hefúr reynst henni verðmæt allar
götur síðan, bæði í viðskiptum við önnur lönd og til þess að viðhalda
einsleitni og samheldni í dönsku þjóðfélagi með því að leggja áherslu á
yfirburði danskra siða og að innflytjendur tileinki sér þá. Sögulegt
minni um mannúð og umburðarlyndi er á vissan hátt notað til að
réttlæta kúgun minnihlutahópa í Danmörku nútímans.
Á síðustu árum hefúr komið fram nokkur gagnrýni á umfjöllun um
hlutverk Danmerkur í síðari heimsstyrjöld. Framkoma danskra
stjómvalda í aðdraganda stríðsins hefúr verið gagnrýnd, sem og
samvinna með hemámsliðinu. Auk þess hefur sagan af björgun
gyðinganna verið tekin til róttækrar endurskoðunar. Sú endurskoðun
sem farið hefúr fram á síðustu ámm á minningum Danmerkur úr síðari
heimsstyijöld er afar fróðleg. Sjálfúm þykir mér aðallega spennandi að
sjá hve mikið viðhorf til Danmerkur og „hins danska anda“ munu
breytast, bæði í Danmörku og erlendis. Danmörk hefúr verið látin í friði
með söguskoðun sína og sjálfsmynd síðustu 60 árin eða svo og því má
spyrja hvort minningin hafi ekki þegar þjónað tilgangi sínum. Er ímynd
Danmerkur ekki orðin of sterk til að endurskoðun á minningunum sem
notaðar vom til að skapa þessa ímynd breyti nokkm? Fróðlegt er að
bera þetta saman við það hvernig oftast er sagt frá upphafi
íslandsbyggðar. Sagnfræðingar em núorðið sammála um að sagan af
Ingólfí Amarsyni hafi lítið sem ekkert sannleiksgildi, það eigi ffekar að
líta á hana sem skáldskap, dæmisögu. Engu að síður heldur Ingólfúr
stöðu sinni sem fyrsti Islendingurinn og sagan af honum er sú saga sem
við kjósum að segja af landnámi íslands.
TILVÍSANIR
i Ymsar hjálendur og nýlendur voru áfram undir danskri stjóm. Sökum smæöar og
fjarlægðar frá Danmörku, komu þær danskri sjálfsmynd þó lítið við.
ii Lausleg þýðing: „The unique value of human existence“. Jorgensen, Theodor og Hjelm,
Norman A.: „Grundtvig, Nikolai Fredrik Severin“. The Encyclopedia of Christianity II.
Ritstjórar Fahlbusch, Erwin o.fl. Gran Rapids, 2001, bls. 480.
iii Buckser, Andrew: „Group Identities and the Construction of the 1943 Rescue of the
Danish Jews“. Ethnology XXXVII, 3. tbl.. 1998, bls. 218.
iv Zolner, Mette: „Remembering the Second World War in Denmark: The Impact of
Politics, Ideology and Generation“. Myth and Memory in the Construction of Community.
Historical Patterns in Europe and Beyond. Ritstjóri Stráth, Bo. Brussel, 2000, bls.
352-353.
v Hæstrup, Jörgen: From Occupied to Ally: Danish Resistance Movement 1940-45.
Kaupmannahöfn, 1963, bls. 4.
vi Sama heimild, bls. 5.
vii Sama heimild, bls. 39.
viii Lausleg þýðing: „acts of war but... an occupation regulated by agreement“. Sama
heimild, bls. 14.
ix Mogensen, Michael: „October 1943 - The Rescue of the Danish Jews“. Denmark and
the Holocaust. Ritstjórar Jensen, Mette Bastholm og Jensen, Steven L.B..
Kaupmannahöfii, 2003, bls. 35.
x Lausleg þýðing: „Hitler's Canary“. Buckser, Andrew: „Group Identities and the
Construction of the 1943 Rescue of the Danish Jews”, bls. 6.
xi Jespersen, Knud J.V.: No Small Achievement: Special Operations Executive and the
Danish Resistance 1940-1945. Óðinsvé, 2002, [bls. ekki getið].
xii Sjá Hæstrup, Jörgen: From Occupied to Ally: Danish ResistanceMovement 1940-45,
bls. 39-40. Politiken, 4. mars 2005, á slóðinni
http://politiken.dk/visArtikel.iasp?PageID=367934. Síðast skoðað 18. mars 2005.
xiii Loewy, Reuben: „Denmark's other Record“. The Jerusalem Post, 30. maí 1996,
bls.32.
xiv Lausleg þýðing: „a peculiarly Danish form of subtle ridicule“. Buckser, Andrew:
„Group Identities and the Construction of the 1943 Rescue of the Danish Jews”, bls. 212.
xv Lausleg þýðing: „to underline his continuing claims to national sovereignty“. Loewy,
Reuben: „Denmark's other Record”, bls. 32.
xvi Dæmi um þetta má finna í The Copenhagen Post, 24. sept. 1999, á slóðinni
http://www.cphpost.dk/get/58358.html. Síðast skoðað 18. mars 2005.
Fjallað er um tilurð mýtunnar og hún krufin í Vilhjálmur Vilhjálmsson: „The King and the
Star. Myths created during the Occupation of Denmark“. Denmark and the Holocaust.
Ritstjórar Jensen, Mette Basthols og Jensen, Steven L.B.. Kaupmannahöfn, 2003, bls.
102-117.
xvii Buckser, Andrew: „Group Identities and the Construction of the 1943 Rescue of the
Danish Jews”, bls. 215.
xviii Þetta getur þó ekki talist mjög mikið, til dæmis í samanburði við Noreg, þar sem
46.000 manns voru handteknir fyrir samstarf við þýska hemámsliðið.
xix Lausleg þýðing: „On 29 August, a national uprising forced the govemment to resign“.
Kirchhoff, Hans: „Denmark: A Light in the Darkness of the Holocaust? A Reply to
Gunnar Paulsson”. Journal of Contemporary History XXX. 1995, bls. 466.
xx Buckser, Andrew: „Modem identities and the creation of history: Stories of rescue
among the Jews of Denmark”. Anthropological Quarterly LXXII, 1. tbl.. 1999, bls. 5.
xxi Sama heimild, [bls. ekki getið].
xxii Þangað fengu dönsku gyðingamir jafnvel sendan bögglapóst, en slíkt mun vera
einsdæmi í sögu Helfararinnar. Sjá Paulsson, Gunnar S.: „The “Bridge over the Oresund”:
The Historiography on the Expulsion of the Jews from Nazi - Occupied Denmark“.
Journal of Contemporary History XXX. 1995, bls. 474.
xxiii Kirchhoff, Hans: Samarbejde og modstand under besœttelsen. En politisk historie.
Óðinsvé, 2001, bls, 224.
xxiv Buckser, Andrew: „Group Identities and the Construction of the 1943 Rescue of the
Danish Jews”, bls. 224.
xxv Sama heimild, bls. 213.
xxvi Lausleg þýðing: „an etemal light in a world of spiritual darkness“. Abrahamsen, S.:
„The Rescue of Denmark's Jews“, bls. 432.
xxvii Lausleg þýðing: „a symbol of hope and light in the darkness of the Holocaust“.
Kirchhoff, Hans: „Denmark: A Light in the Darkness of the Holocaust? A Reply to
Gunnar Paulsson”, bls. 477.
xxviii Buckser, Andrew: „Group Identities and the Construction of the 1943 Rescue of the
Danish Jews”, bls. 216.
xxix Thanks to Scandinavia Foundation. Á www.thankstoscandinavia.org. Síðast skoðað
18. mars 2005.
xxx Buckser, Andrew: „Group Identities and the Construction of the 1943 Rescue of the
Danish Jews”, bls. 209.
xxxi Grundtvigianisminn var endurlífgaður í Danmörku á tímum hemámsins og var
mörgum leiðtogum andspymunnar hvatning. Buckser, Andrew: „Group Identities and the
Construction of the 1943 Rescue of the Danish Jews”, bls. 218.
xxxii Lausleg þýðing: „Resistance and Rescue: Denmark's Response to the Holocaust“.
Zöllner, Mette: „Remembering the Second World War in Denmark: The Impact of
Politics, Ideology and Generation“, bls 355.
xxxiii Lauslegar þýðingar: „A Country's Response to the Nazis: No“; „A Conspiracy of
Decency“; „Danish Sanctuary“. Leitað var að efni tengdu Denmark AND Jews AND
World War, með hjálp Advance Search í Proquest http://proquest.umi.com/pqdweb. Síðast
skoðað 18. mars 2005.
xxxiv Zöllner, Mette: „Remembering the Second World War in Denmark: The Impact of
Politics, Ideology and Generation“, bls 356.
xxxv Buckser, Andrew: „Modem identities and the creation of history: Stories of rescue
among the Jews of Denmark”, bls. 12.
xxxvi Sumarið 2000 vom þrír íslamskir menn dæmdir fyrir að nauðga ungri stelpu í
Árósum. Fangelsisdómar yfir þeim vom svo stuttir að gæsluvarðhaldið sem þeir höfðu
verið í fram að dómsuppskurði gekk upp í dóminn og þeir gengu úr dómsalnum ftjálsir
menn. Þetta varð að miklu hneykslismáli í Danmörku, en forsætisráðherrann, Paul Nymp
Rasmusen, sagði dóminn réttan og að nauðsynlegt væri að taka tillit til þess að mennimir
kæmu úr menningarsamfélagi þar sem ekki væri borin jafn mikil virðing fyrir konum og
Danir ættu að venjast. Þessari yfirlýsingu var skiljanlega illa tekið. Hvað vakti fyrir
28 Sagnir 2005