Sagnir - 01.06.2005, Blaðsíða 52
Hinn varanlegi eilffi friBur á jörðu
að stríðið hafi frelsað þær úr íjötrum.’1"
ERU KONUR ENN ÁHRIFALAUSAR?
Óhætt er að segja að Kvennablaðiö hafí staðið undir na&i þegar
málefni kvenna voru annars vegar og þrátt fyrir minnkandi útbreiðslu
og bágboma afkomu síðustu árin má ætla að blaðið hafi haft mikil áhrif
á íslenska kvennabaráttu og víkkað sjóndeildarhring landsmanna í
kvenfrelsismálum. Öll umfjöllun blaðsins um striðið mikla var tengd
konum á einn eða annan hátt og að öllu jöfnu var það barátta fyrir
pólitískum réttindum kvenna sem skein í gegnum skrif blaðsins. Óbeit
Bríetar á striði var áberandi og líkt og kvenréttindasinnar í öðmm
Sú hugmynd Bríetar að stríðið hafi á
margan hátt frelsað konur er vel í
samræmi við hugmyndir flestra
samtímakvenna um áhrif stríðsins. í
lok áttunda áratugs tuttugustu aldar
og í byrjun þess níunda fóru menn á
hinn bóginn að draga þessi
frelsunaráhrif í efa.
hlutlausum löndum vom friðarmál henni hugleikin. Hér er rétt að
undirstrika þann mikla mun sem var á viðhorfum kvenna til friðarmála
eftir því hvort þær komu ffá hlutlausum ríkjum eða ríkjum stríðandi
fylkinga. Viðhorf Bríetar vom í fullu samræmi við skoðanir feminista í
þeim ríkjum sem stóðu utan við stríðið. Þótt Bríet hafi vel gert sér grein
fyrir stuðningi kvenna í ófríðarlöndunum við stríðsreksturinn hafði hún
þá trú að þær væm einungis að sinna skyldum sínum við ættjörðina en
innra með sér bæm þær frið í brjósti - rétt eins og allar aðrar konur
heimsbyggðarinnar.
Afleiðingar stríðsins að mati Bríetar vom þó ekki með öllu til
óþurftar enda rekur hún almennan kosningarétt kvenna beint til
stríðsins. A meðan karlmennimir drápu hvem annan á vígvöllunum,
sönnuðu konumar getu sína á heimavígstöðvunum með því að halda
þjóðfélögunum gangandi. Stríðið var að hennar mati háð vegna
ákvarðana misvitra karlmanna en þegar litið væri til framtíðar var
bjartari tíð í vændum. Með pólitískum réttindum og þar af leiðandi
auknum áhrifúm kvenna í stjómmálum var fríðvænlegra umhorfs í
heiminum en áður.
í ljósi sögunnar er vert að velta því fyrir sér hvort spá Bríetar og
alþjóðasamtaka kvenréttindasinna um áhrif kvenna á heimsffiðinn hafi
verið bamalegar og óraunsæar - eða getur verið að áhrifa kvenna sé
þrátt fyrir allt ekki enn farið að gæta í valdapólitík heimsmálanna?
TIL VÍSANIR
i Þessi grein er upphaflega samin haustið 2003 sem ritgerð í námskeiðinu Fyrri
heimsstyrjöldin: Vatnaskil i sögu Evrópu. Hugmynd að titli greinarinnar er fengin úr
Kvennablaðinu en höfundur taldi rétt að breyta orðalaginu dálítið. Upphafleg setning
hljóðar þannig: „Hinn varanlegi, eilífur friður á jörðunni“. Kvennablaðió, 28. feb. 1919,
bls. 13.
ii Sólrún B. Jensdóttir: ísland á brezku valdsvœði 1914-1918. Reykjavík, 1980, bls.
14-17 og 67-69.
iii Gunnar Þór Bjamason: „Viðhorf íslendinga til Þjóðveija í heimsstyijöldinni fyrri“.
Saga XXI. 1983, bls. 207. - Guðjón Friðriksson: Nýjustu fréttir! Saga Jjölmiðlunar á
íslandi frá upphafi til vorra daga. Reykjavík, 2000, bls. 123.
iv Sigríður Th. Erlendsdóttir: Veröld sem ég vil. Saga kvenréttindafélags fslands
1907-1992. Reykjavík, 1993, bls. 38.
v Að sögn Bríetar var fyrsta tölublaðið prentað í 2500 eintökum sem var ekki nóg og
þurfti hún að bæta 200 eintökum við til að anpa eftirspum. Bríet Bjamhéðinsdóttir:
„Sjálfsævisaga“. Merkir íslendingar. Nýr flokkur VI. Reykjavík, 1967, bls. 120-124.
vi Kvennablaðió, 25. jan. 1905, bls. 1.
vii Guðjón Friðriksson: Nýjustu fréttir, bls. 63.
viii Bríet Héðinsdóttir: Strá i hreiðrið. Bók um Brieti Bjarnhéðinsdóttur byggð á bréfum
hennar. Reykjavík, 1988, bls. 296.
ix Kvennablaðið, 31. des. 1919, bls. 89. - Árið 1926 komu út tvö tölublöð af
Kvennablaðinu í tengslum við kvennaframboð til Alþingiskosninga. Var Bríet ritstjóri þess
ásamt því að sitja í efsta sæti listans. Niðurstöður kosninganna urðu konum og þá ekki síst
Bríeti, mikil vonbrigði enda fékk listinn eingöngu um 500 atkvæði. Sigríður Th.
Erlendsdóttir: Veröld sem ég v/7, bls. 167-168.
x Hér á ég við aðgerðir Wemers Gerlachs, ræðismanns Þjóðveija, 1939-40 gegn
íslenskum Qölmiðlum þar sem hann reyndi ítrekað að hafa áhrif á það sem blöðin skrifuðu
um Þjóðveija. Einnig tóku Bretar í taumana þegar Þjóðviljamenn gerðust setuliðinu of
Qandsamlegir. Þór Whitehead: Milli vonar og ótta. ísland i siðari heimsstyrjöld.
Reykjavík, 1995, bls. 32-39. -Tómas Þór Tómasson: Heimsstyrjaldarárin á íslandi
1939-1945 I. Reykjavík, 1983, bls. 76-78.
xi Gunnar Þór Bjamason: „Viðhorf íslendinga til Þjóðveija í heimsstyijöldinni fyrri“, bls.
217. - Guðjón Friðriksson: Nýjustu fréttir, bls. 125.
xii Gunnar Þór Bjamason: „Viðhorf íslendinga til Þjóðveija í heimsstyijöldinni fyrri“, bls.
219-223.
xiii Hér er verið að vísa í viðskiptasamning íslendinga og Breta 1916 og togarasöluna
1917. Þór Whitehead, Ófriður í aðsigi. ísland i síðari heimsstyrjöld. Reykjavík, 1980, bls.
41-42.
xiv Kvennablaðið, 1. apríl 1917, bls. 27.
xv Kvennablaðiö, 30. sept. 1914, bls. 66.
xvi Kvennablaðið, 1. apríl 1917, bls. 27.
xvii Kvennablaðiö, 30. júní 1919, bls. 41-42.
xviii Kvennablaðið, 31. mars 1916, bls. 17. - Sjá einnig: Sigríður Matthíasdóttur: „Hin
svokallaða þjóð. Þjóðemi og kyngervi í sagnfræðilegum rannsóknum“. íslenskir
sagnfrœðingar 2. Viðhorf og rannsóknir. Reykjavík, 2002, bls. 421-422.
xix Sjá t.d. Kvennablaöið, 1. maí 1915, bls. 19-20 og Kvennablaðið, 7. maí 1915, bls.
24-26.
xx Lausleg þýðing: „The war ... was a ‘men’s war’ between ‘men’s states’“ sagði t.d.
þýska kvennréttindakonan Lida Gustava Heymann. Evans, Richard J.: Comrades and
Sisters. Feminism, Socialism and Pacifism in Europe 1870-1945. Sussex, 1987, bls. 126.
Kvennablaðið, 30. sept. 1914, bls. 66.
xxi Evans, Richard J.: Comrades and Sisters, bls. 121-23.
xxii Kvennablaðið, 4. des. 1914, bls. 82.
xxiii Kvennablaðiö, 28. ágúst 1914, bls. 57. - Sjá einnig: Kvennablaðið, 30. sept. 1914,
bls. 66-67.
xxiv Kvennablaðið, 31. jan. 1918, bls. 4-5. - Sjá einnig: Kvennablaðið, 30. mars 1918,
bls. 20-22.
xxv Kvennablaðið, 7. maí 1915, bls. 20.
xxvi Thébaud, Fran^oise: „The Great War and the Triumph of Sexual Division“, A
History of Women in the West. Toward a Cultural Identity in the Twentieth Century.
Cambridge, 1994, bls. 59-62.
xxvii Sama heimild, bls. 24-25 og 57. - Sjá einnig: Anderson, Bonnie S. og Zinsser,
Judith R: A History ofTheir Own. Women in Europe from Prehistory to the Present II.
NewYork, 1988, bls. 366.
xxviii Lausleg þýðing: „By far the most important reason for the failure of the feminist-
pacifist campaign lay in the fact that it had very little support among women, even among
feminists themselves.“ Evans, Richard J.: Comrades and Sisters, bls. 127-128.
www.boksala.is
50 Sagnir 2005