Sagnir - 01.06.2009, Page 14

Sagnir - 01.06.2009, Page 14
Sagnir, 29. árgangur Sigurbjörg Elfn Hólmarsdóttir „þjóð vor strandi á hinu hættulega blindskeri fóstureyðinganna" Afstaða kvennanna KatrínarThoroddsen og Guðrúnar Lárusardótturtilfóstureyðingafrumvarpsins 1934 Fóstureyðingar eru með umdeildustu aðgerðum sem gerðar eru á mannslíkamanum. Það að eyða fóstri sem er þegar komið á veg þróunar hefur alltaf verið fordæmt og gagnrýnt af ákveðnum hópum samfélagsins. Þrátt fyrir það er vitað að konur hafa í gegnum tíðina þurít að grípa til ýmissa örþrifaráða til að reyna að losa sig við óvelkomin fóstur. Réttur konunnar að eyða fóstri hefur verið mikið ræddur seinustu áratugi, en áður hafði þessi umræða farið fram bakvið luktar dyr. Helsta spurning var sú hvort það væri siðferðislega rétt að eyða fóstri sem væri byrjað að dafna í móðurlífi konunnar og hverjir mættu taka ákvörðun um fóstureyðingu og á hvaða forsendum. Nokkuð hefur verið íjallað um fóstureyðingarmál á Islandi. Þá er sérstaklega rætt um ártölin milli 1934 - 1938 og 1975, en þá voru fóstureyðingar leyfðar hér á landi, í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Arið 1934 var fyrst lagt frumvarp fram á Alþingi sem leyfði fóstureyðingar að einhverju leyti. Margir fræðimenn hafa skrifað um fóstureyðingamálin hér á landi, og er þessi grein því ekki söguleg upprifjun á baráttunni.1 Hér á eftir verða teknar fyrir skoðanir og umræður tveggja kvenna um frumvarpið, Guðrúnar Lárusdóttur og Katrínar Thoroddsen. Guðrún Lárusdóttir var eina konan sem sat á þingi á þessum tíma og tók hún mikinn þátt í umræðum um frumvarpið. Hún var á móti frumvarpinu að mestu leyti. Katrín Thoroddsen var fylgjandi frumvarpinu en erindi hennar Frjálsar ástir hafði ýtt undir umræðuna um fóstureyðingar í samfélaginu. Héráeftirverðurfariðaðeinsyfirfóstureyðingafrumvarpið sjálft og rannsakað hvaða lagabreytingar fólust í því. Fjallað verður svo sérstaklega um konurnar tvær, hvora um sig, hvaða skoðanir þær höfðu á frumvarpinu og fóstureyðingum almennt og af hverju þær höfðu myndað með sér slíka skoðun. Teknar verða inn í myndina ólíkar stjórnmálaskoðanir kvennanna, ólíkar hugmyndir þeirra um kvenréttindi, og hvernig mismunandi afstaða þeirra hafði áhrif á umræðuna um frumvarpið. Til laga um leiðbeiningar fyrir konur um varnir gegn þvf að verða barnshafandi og um fóstureyðingar I hegningarlögunum frá 1869 voru fóstureyðingar bannaðar með lögum í öllum tilvikum. Þessi lög voru svipuð í flestum ríkjum heims, nema í Sovétríkjunum sem heimiluðu fóstureyðingar eftir skilgreindum reglum. Akvæði um neyðarrétt höfðu hinsvegar verið teygð í mörgum löndum, þar á meðal á Islandi, til að ná yfir fóstureyðingar.2 Innan læknastéttarinnar á íslandi var almennt viðurkennt að eyða skyldi fóstri ef það ógnaði lífi móðurinnar, samkvæmt ákvæðum um neyðarrétt. Fóstureyðingar voru að færast f aukana hér á landi og náði neyðarrétturinn yfir færstar þeirra. f skýrslum frá þessum árum má því sjá gífurlega íjölgun í fóstureyðingum og fósturlátum, en eftir að tölurnar voru opinberaðar hófu forstöðumenn sjúkrahúsa að taka harðar á löggjöfinni. Formaður Læknafélags Reykjavíkur skrifaði í bréfi til Landlæknis að hann hefði áhyggjur af hertu banni varðandi fóstureyðingar, þar sem eftirspurnin væri mikil og því augljóst að einhverjir læknar myndu glepjast og framkvæma aðgerðirnar, þá við mun verri aðstæður en inni á sjúkrahúsunum. Þetta vildu læknarnir ekki hætta á og voru þeir því allir samþykkir þessu frumvarpi um fóstureyðingar.3 Frumvarpið var ekki lagt fram til að auka sjálfstæði kvenna heldur til að skýra lagalega, hvenær og hvernig læknar mættu framkvæma fóstureyðingar. Konan hafði ekkert um málið að segja, allar ákvarðanir voru teknar af læknum. Sá sem samdi frumvarpið var Vilmundur Jónsson landlæknir en Haraldur Guðmundsson atvinnumálaráðherra flutti það á Alþingi. Vilmundur vildi skipta kröfum um fóstureyðingar í þrjá flokka, sá 12

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.