Sagnir - 01.06.2009, Síða 29
Sagnir, 29. árgangur
lagalegt jafnrétti væri ekki nóg, samfélagið þyrfti líka að
breytast innan frá.11 Rauðsokkuhreyfingin, sem var einn
helsti fánaberi annarrar bylgjunnar hér á landi var róttæk
í þessum anda.
Erfiðara er að koma böndum á þriðju bylgjuna og erfitt er
að skilgreina aðferðir eða hugmyndafræði hennar sem eru
mjög mismunandi. Þeir sem fræðin stunda hafa heldur
ekki verið sammála um hvað hún þýðir. Catherine M. Orr
viðurkennir að það sé erfitt að skilgreina þriðju bylgjuna
en hún telur þó að megin þema hennar sé að kanna
sögulegar, menningarlegar og sálfræðilegar mótsagnir
femínismans.12 Aðrir telja að þriðja bylgjan einkennist
af einhvers konar rofi milli annarrar og þriðju bylgju,
að þriðja bylgjan hafi á einhvern hátt misst tengslin við
ræturnar og snúist frekar um að hver kona finni sína eigin
leið frekar en um samtakamátt kvenna.13 Áþetta sjónarmið
myndu þeir sem aðhyllast einstaklingsfemínisma
fallast. Einstaklingsfemínistar telja að „...það kerfi sem
best endurspegli valfrelsi og hlutlaust jafnrétti sé hinn
frjálsi markaður, einstaklingsfemínismi sé hlynntur
afskiptaleysisstefnu og leiti persónulegra lausna frekar en
að láta yfirvöld sjá um að leysa samfélagsleg vandamál.14
Einstaklingsfemínistar eru ekki hlynntir aðgerðum eða
lagasetningum til að vinna að jafnrétti heldur telja að
svo lengi sem lagalegt jafnrétti sé til staðar sé það undir
hverjum og einum komið hvernig hann eða hún notar
það. Samkvæmt
einstaklings-
femínismanum
(e. Ifeminism)^
hafa konur
frelsi til að velja
hvað þær gera
við líf sitt og
líkama. Hvort
sem það er að
verða móðir.
taka þátt í klámi, vera
forstjóri, vændiskona eða
hvað eina. Kynin skuli vera
jöfn fyrir lögum en lög sem hampi
konum sérstaklega á einhvern hátt
eigi ekki rétt á sér.
Fleiri skilgreiningar á þriðju bylgjunni
eru til, líklega eru þær óteljandi,
sem er lýsandi dæmi um þær ólíku
brautir sem femínisminn hefur
fetað. Póstmódernismi og
einstaklingshyggja hafa meðal
annars vakið upp margar spurningar um femínisma, svo
sem hvort hægt sé að tala um „konur“ sem einhverja heild
þar sem merkingþess að vera „kona” sé ólík í mismunandi
heimshlutum, á mismunandi tímum og innan hvers
samfélags.16
Kannski er þetta ein ástæða þess að margir gagnrýna
femínisma harðlega. Hugtak sem svo erfitt er að henda
reiður á og svo torvelt er að útskýra er auðvelt skotmark.
Þar sem erfitt er að útskýra hvað femínismi stendur fyrir
og hvað ekki, vegna fjölbreytileika hans og mismunandi
kenninga og aðferða, er túlkunin opin hverjum og einum
sem getur lagt þann skilning í hugtakið sem honum
hentar.
Jafnréttisáherslur Sjálfstæðisflokks og
Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs
Lítill vafi er á því að stjórnmál hafi mikil áhrif á
þjóðfélagsumræðu hverju sinni og er því vert að skoða
stefnur stjórnmálaflokka hvað varðar jafnréttismál. Hér
verður litið til tveggja flokka og einnig ungliðahreyfinga
þeirra. Annars vegar stefnu Sjálfstæðisflokks, en innan
hans er líklegt að finna megi fólk sem aðhyllist hægri
sinnuð viðhorf líkt og einstaklingshyggju og andstöðu
við of mikil ríkisafskipti og forræðishyggju sökum stöðu
hans hægra megin í hinu pólitíska litrófi. Hins vegar
stefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, innan
hvers er líldegt
:ð finna megi
meira mæli fólk
leggur aukna
— — — áherslu á félagshyggju
WfflA og hlynnt meiri
ríkisafskiptum vegna stöðu
flokksins vinstra megin í
> 'V/ ///■/• ' stjórnmálunum.
' í stefnuyfirlýsingu
Sjálfstæðisflokksins má finna
ýmislegt um stefnu hans í
j afnréttismálum og telur hann j afna stöðu
kynjanna meðal annars vera eitt af sínum
meginmarkmiðum.17 Þá telur flokkurinn
stjórnmála- og viðskiptalífsþátttöku
kvenna ábótavant og kveður mikilvægt að
„...tryggja jöfn tækifæri, óháð kyni.“18 Einnig
er talað um í stefnunni að kynbundinn launamunur
megi ekki líðast og að allir skuli vera jafnir fyrir
lögum. Þannig sjái flokkurinn „...jafnrétti sem eina
af grunnstoðum sjálfstæðisstefnunnar. í því...[sé]
sem
27