Sagnir - 01.06.2009, Síða 80
Sagnir, 29. árgangur
Georgía, Suður-Ossetía ogAbkasía
var, eins og áður segir, fyrsta opinbera viðurkenningin á
sjálfstæði bæði Abkasíu og Suður-Ossetíu.
Georgíumenn brugðust ókvæða við hlut Rússa í
stríðinu. Fulltrúar þeirra kölluðu stríðið meðal annars
„áframhaldandi brot Rússlands á fullveldi og friðhelgi
yíirráðsvæðis Georgíu."12 [Þýðing: SK] Bandaríkjamenn,
helstu bandamenn georgískra stjórnvalda í stríðinu (í orði
kveðnu, að minnsta kosti) töluðu um að Georgía væri
fullvalda þjóð ogþað yrði að virða friðhelgi yfirráðasvæðis
hennar.13 Þá lögðu Bandaríkjamenn líka til að ef til
vill byggi meira á bak við hjá Rússurn og að tilgangur
stríðsins væri annar en að verja hagsmuni Suður-Osseta.
Fulltrúar þeirra notuðu meðal annars hugtök svo sem
hið bandaríska „regime change," sem oftast er notað yfir
stjórnarskipti sem framkvæmd eru með aðstoð erlends
hervalds. Þanniglíta Georgíumenn ogþeirrabandamenn
á stríðið sem ólöglegt rof á friðhelgi yfirráðasvæðis
georgíska ríkisins, enda tilheyri Suður-Ossetía Georgíu.
Rússnesk stjórnvöld (og að sjálfsögðu yfirvöld í
aðskilnaðarhéruðunum) sjá hlutina í allt öðru Ijósi. Máli
sínu til stuðnings halda þau því fram að Georgíumenn
hafi framið ýmis ódæðisverk í stríðinu. Rússar sökuðu
Georgíumenn meðal annars um að eyða heilu bæjunum
svo að ekki væri hægt að setjast að í þeim aftur14 og gengu
jafnvel svo langt að nota hugtökin þjóðernishreinsanir og
þjóðarmorð:
Hvaða lagalegu hugtök er hægt að nota til þess að lýsa
því sem leiðtogar Georgíu hafa gert? Getum við talað um
„þjóðernishrcinsanir", til dæmis, þegar, á nokkrum dögum,
næstum 30.000 afþeim 120.000 sem búa í Suður-Ossetíu
hafa orðið flóttamenn ... Eru það þjóðernishreinsanir eða
ekki? Ættum við að lýsa því sem þjóðarmorði eða ekki?
Þegar af þessum 120.000, 2.000 saklausir borgarar deyja á
fyrsta degi, er það þjóðarmorð eða ekki? Hversu mikið af
fólki, hversu margir almennir borgarar verða að deyja áður
en við lýsum því sem þjóðarmorði?15 [Þýðing: SK]
Rússnesk stjórnvöld réttlæta þannig sinn þátt í stríðinu
sam mannúðaríhlutun. Framan af töluðu þau þó ekki
um sjálfsákvörðunarrétt heldur einungis illa meðferð á
íbúum Suður-Ossetíu. Það var ekki fyrr en eftir að þau
höfðu gefið út formlegar yfirlýsingar um viðurkenningu
á sjálfstæði héraðanna tveggja að talað var um að svæðin
tvö nytu sjálfsákvörðunarrétt. Sagt var að Georgíumenn
hefðu brotið það einstaklega mikið á íbúum þessara
tveggja héraða ogþess vegna ættu íbúarnir ekki aðra kosti
en að beita sjálfsákvörðunarrétti sínum.16
78