Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Síða 68
62
HELGAFELL
UNDIR
SKILNINGSTRÉNU
_______________________________________:
Skiljanlega
Ástarævintýrið, með Maríu Gabriellu, sem þó
var ekkert ástarævintýri, hefur orðið keisaran-
um til nokkurrar hneisu.
Mbl. 25. 3. ’59.
Má maður manni segja.
Ég gaf henni stutta og gagnorða lýsingu á
mannlegum hjónaböndum.
,,Andstyggilegt!“ sagði hún með greinilegum
viðbjóði og hristi höfuðið.
Ingi Vítalín: Ferðin til stjarnanna, bls. 90.
Ráðizt á garðinn, þar sem hann er lægstur.
Því lesið þið fyllibytturnar ekki Rubaiyat Om-
ars Khayams? . . . Erindi þessi geyma andlega
eymd, vonbrigði og þá örvæntingu, sem batt
Omar við bikar sinn í 30 ár. Svo langt er geng-
ið, að jafnvel bindindispostulinn er hvattur til
að yfirgefa allt og leita uppi næstu knæpu.
Vísir, 13. 1. ’59.
Amen.
Að því búnu flutti séra Gunnar Jóhannsson,
prófastur í Skarði bæn. Hermann Jónasson for-
sætis- og landbúnaðarráðherra flutti ræðu, . .
Tíminn, 22. 7. ’58.
Laun heimsins.
Síðan ók stúlkan til Reykjavíkur og á glugga
Tryggingarstofnunarinnar eins og fyrr segir. Má
segja að það komi úr hörðustu átt, þegar stúlk-
ur sem stunda bílferðir með setuliðsmönnum,
valda spjöllum á þeirri stofnun, sem leggur út
barnsmeðlög, þegar óvíst er um faðerni.
Tíminn, 4. 3. ’59.
Ha?
Díalektísk efnishyggja greinist í grundvallar-
atriðum frá allri fyrri heimspeki. Mótun hennar
er bylting í sögu hugsunarinnar. Marx og Eng-
els heppnaðist að lyfta heimspekinni, eftir rúm-
lega tvö þúsund ára þróun, upp á svið ókreddu-
bundinna, frumspekilausra, samkvæmra vísinda,
er endurspeglast í díalektík raunveruleikans.
Þjóðviljinn.
Mikil er trú þín.
Mér finnst nú Þjóðviljinn líta út fyrir að vera
ópólitískasta blað á íslandi og á ég þar við er-
lendar fréttir um menn og málefni.
J. H. í Bæjarpósti Þjóðv., 18. 3. ’59.
Nei, það er alveg óþarfi núna.
Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, talaði
um Minningabók Montgomerys. Ég hef sjaldan
heyrt betur talað um bók og skilmerkilegar, í
rauninni sagði hann á þessari stuttu stund allt
það úr bókinni sem varðar máli, en samt sem
áður er ekkert á móti því að lesa þessa stór-
merku bók.
Þorsteinn Jónsson, Mbl., 12.3.’59.
Þm. Seyðfirðinga liugsar sig um tvisvar.
Taprekstur er aldrei góður, — — og í það
minnsta ekki eftirsóknarverður.
Björgvin Jónsson, Tíminn, 21. 2. ’59.
Rússnesk tvöfeldni.
Molotov brosti aðeins með augunum, aldrei
sást bregða fyrir kátínuglampa í augum hans.
Mbl., 13. 3. ’59.
Dialektik?
Sjómannafél. Akureyrar endurheimti kjara-
skerðingu með nýjum samningum.
Þjóðv., fyrirsögn, 1. 4. ’59.
Ekki Holskeflan?
Fyrir nokkrum vikum var hafinn undirbún-
ingur að stofnun félags eiginkvenna ísl. loft-
skeytamanna.
Stofnfundir félagsins, er ber nafnið Kvenfé-
lagið Bylgjan, voru haldnir 12. og 26. febr. sl.
Um 60 konur hafa þegar gerzt félagar.
Vísir, 1. 4. ’59.
Það á ekki úr að aka.
Verðlækkanir enn.
Alþbl. 4. 2. ’59 (fyrirsögn)
Hin eina sanna heimspólitík.
Menn eiga hvorki að búa í höllu eða húsi.
Við eigum ekki heldur að búa hvert með öðru,
en hvert í öðru. Hennar innri tilfinningar eiga
að útfylla hans og hans innri tilfinningar eiga
að útfylla hennar.
Tvær mannverur. sem eiga sitt heima í hvoru.
hafa öðlast þann eina og sanna „heimsfrið“.
Alþ.bl., grein, 4. 2. ’59.
(Leturbr. Helgaf.)