Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Qupperneq 39

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Qupperneq 39
Samgöngumál til hið nýja fyrirtæki hóf form- lega rekstur. Að hluta til má skýra hinn skamma „meðgöngu- tíma“ með því að sveitarfélögin nutu ákveðinnar forvinnu sem Reykjavík hafði staðið fyrir með því að láta gera heildarúttekt á almenningssamgöngum á höfuð- borgarsvæðinu og vinna að til- lögugerð í því sambandi. Að öðru leyti gekk málið þannig fyrir sig að um mánaðamótin janúar-febrúar var samþykkt til- laga þess efnis að ganga til sam- starfs um stofnun félagsins. Þannig var strax í upphafi um ákveðna skuldbindingu að ræða, en hlutverk og tilgangur félags- ins var jafnframt skilgreindur í stórum dráttum í tillögunni. í kjölfarið var settur á laggirnar undirbúningshópur skipaður full- trúum allra sveitarfélaganna, en hlutverk hans var að vinna að nánari útfærslu stofngagna fé- lagsins, stofnsamnings og eig- endasamkomulags, sem hafði að geyma fyllri ákvæði um ýmis praktisk mál, s.s. skiptingu rekstrarkostnaðar, yfirtöku verk- efna og eigna og útfærslu leiða- kerfis og gjaldskrár. Þegar hóp- urinn hafði skilað af sér voru samningarnir lagðir fyrir við- komandi bæjarstjórnir um páska- leytið og loks undirritaðir form- lega hinn 7. maí. Raunverulegur undirbúningur að yfirtöku hins nýja fyrirtækis, eftir að endan- lega var búið að ákveða stofnun þess, tók því aðeins tvo mánuði, þar sem þegar hafði verið ákveðið að félagið tæki til starfa hinn 1. júlí. Af hálfu okkar sem að undirbúningnum stóðu skipti það afar miklu að standa við allar tímasetningar. Kom þar tvennt til. í fyrsta lagi er sumar- leyfistíminn almennt heppilegur tími til þess að koma svona Samkomulagið um stofnun Strætó bs. staðfest með því að klippa á borða. Það gera, talið frá vinstri, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs., Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnarneskaupstaðar, Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, og Jóhann Sigurjónsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. breytingum á, þar sem þá gefst borð fyrir báru að sníða af hugs- anlega vankanta áður en skól- arnir hefjast á haustin. í öðru lagi er það afar þýðingarmikið gagnvart starfsfólki að yfir- gangstíminn sé sem allra skemmstur þar sem allar breyt- ingar eru til þess fallnar að vekja óöryggi hjá starfsfólki, óháð því hvort búið er að tryggja því óbreytt kjör með skuldbindandi hætti eins og hér á stóð. Helstu verkefni Eins og segir í stofnsamningi Strætó bs. eru helstu verkefni fýrirtækisins að sinna almenn- ingssamgöngum á svæðinu öllu með einu leiðakerfi og einni gjaldskrá. Þá er í stofngögnum sameiginleg skuldbinding til þess að efla almenningssam- göngur, bæta þjónustu og auka hagkvæmni, en m.a. er gert ráð fyrir auknum og samræmdum forgangi í umferðinni. Unnið er að endurskoðun leiðakerfisins frá grunni og upptöku rafræns greiðslukerfis og er reiknað með að hvort tveggja verði tekið upp á miðju sumri 2003. Þá er fyrir- tækinu ætlað að hafa yfirumsjón með Ferðaþjónustu fatlaðra og hefur fyrirtækið nú þegar tekið yfir umsjón með akstri fatlaðra skólabarna sem SSH sá um áður. Fyrirtækinu er jafnframt ætlað að vera sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna gagnvart ríkis- valdinu, en í þeim efnum er verk að vinna að bæta rekstrarskilyrði greinarinnar. Loks hefur fyrir- tækið lagt í það metnað sinn að fylgjast með nýjungum í öllu því sem snertir starfssvið þess og hefur m.a. tekið við ECTOS verkefninu af Reykjavíkurborg, þ.e. tilraunaverkefni með þrjá vistvæna vetnisstrætisvagna í samvinnu við íslenska Nýorku ehf., DaimlerChrysler, Shell Int- ernational og Norsk Hydro. Gerð hefur verið lausleg skoðun á því hvort einhvers konar spor- bundnar samgöngur geti verið lausn fyrir okkur. Sú athugun virðist gefa tilefni til að skoð- aðar verði frekar svokallaðar léttlestar (ný kynslóð sporvagna) sem hugsanlegur kostur, en þær hafa mjög rutt sér til rúms í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.