Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 68
482
Öryggismál
miða við að áhætta einstaklinga vegna snjóflóða sé
talsvert minni en önnur slysaáhætta í samfélaginu,
til dæmis vegna umferðarslysa, eða heildaráhætta
barna vegna slysa. Með þessum hætti má færa rök
að því að viðunandi áhætta vegna snjóflóða sé á
bilinu 0,2-0,5 dauðsföll á 10 000 íbúa á ári. Þetta
samsvarar því að áhætta vegna snjóflóða sé á bil-
inu 5 til 2 sinnum minni en meðaláhætta einstakl-
inga hér á landi vegna uinferðarslysa. Svipaðar
niðurstöður fást ef byggt er á greiningu á virði
mannslífa eins og rætt var að framan eða reynt að
ineta hvaða áhætta er nánast hverfandi fyrir flesta
einstaklinga.
Nýjar reglur um hættuinat vegna ofanflóða hér á
landi voru settar árið 2000. Reglurnar skilgreina
þrenns konar hættusvæði, A, B og C. Svæðin eru
afmörkuð á grundvelli „staðaráhættu“ sem er skil-
greind sem árlegar dánarlíkur einstaklings sem
dvelur öllum stundum i óstyrktu húsi á tilteknum
stað. Raunveruleg áhætta íbúa er háð viðveru
þeirra á staðnum og auknu öryggi vegna styrks
bygginga. I íbúðarhúsum getur raunveruleg áhætta
orðið um 75% af staðaráhættu og 40% í atvinnu-
húsnæði. 6. tafla sýnir gildi staðaráhættu sem skil-
greina mörk þrenns konar hættusvæða.
6. tafla. Hættusvæði samkvæmt reglugerð
um ofanflóðahættumat
frá árinu 2000.
Hættu- Lægri mörk áhættu Efri mörk áhættu
svæði (10-Jáári) (10-4 á ári)
A 0,3 1,0
B 1,0 3,0
C 3,0 -
Reglugerðin kveður á um að einungis megi
skipuleggja nýja byggð utan hættusvæða. Enn-
fremur eru eftirfarandi kvaðir settar á nýtingu
þegar byggðra hættusvæða.
A Byggja má ný íbúðarhús með færri en 4
íbúðum og atvinnuhúsnæði á þegar skipu-
lögðum svæðum. Skóla, spítala og fjölbýlishús
o.s.frv. þarf að styrkja þannig að þau þoli
ástreymisþrýsting snjóflóða.
B íbúðarhúsnæði verður að vera styrkt en ekki
almennt atvinnuhúsnæði. Ekki er leyfilegt að
byggja nýja skóla, spítala o.s.frv.
C Ekki má reisa neinar byggingar þar sem búist er
við stöðugri viðveru fólks. Heimilt er að breyta
og halda við byggingum sem standa á svæð-
unum. Gerð er krafa um að breytingar feli í sér
að öryggi fólks aukist.
I reglugerðinni er kveðið á um að sveitarfélög
skuli gera áætlun um að árið 2010 verði ekkert
íbúðarhúsnæði á hættusvæði „C“. Þessu inarkmiði
skal ná með því að reisa varnarvirki eða með því
að kaupa upp hús þar sem bygging varnarvirkja er
ekki hagkvæm eða möguleg. Gerð hefur verið
áætlun urn byggingu varnarvirkja og uppkaup húsa
til þess að ná þessu markmiði. Ofanflóðasjóður
veitir einnig styrki til að reisa varnir fyrir byggð á
hættusvæðum „A“ og „B“.
Áhætta einstaklinga hefur ekki verið notuð við
snjóflóðahættumat í öðrum löndum Evrópu, svo
sem Noregi og Alpalöndum, en í þessum löndum
er mest reynsla af snjóflóðahættumati. íslenskar
hættumatsreglur og hættumatsaðferðir hafa verið
bornar saman við norskar og austurrískar aðferðir.
Þrír hópar sérfræðinga afmörkuðu hættusvæði á
Seyðisfirði á grundvelli íslenskra, norskra og aust-
urrískra reglna. Niðurstöðurnar benda til að ís-
lenskar hættumatsreglur séu nokkuð strangari en
norskar og austurrískar reglur. Vera má að gerð sé
krafa urn u.þ.b. þrisvar sinnum meira öryggi á fs-
landi en í hinum löndunum tveimur.
Eftir að reglugerð um hættumat var sett hefur
umhverfisráðherra staðfest hættumat fyrir Nes-
kaupstað og lögð hefur verið fram tillaga að hættu-
mati fyrir SigluQörð. Tæknilegri vinnu við hættu-
mat fyrir Seyðisljörð, ísaQörð og Eskiíjörð er
einnig að mestu lokið.
Þakkir
Ásgeir Ásgeirsson hjá Viðlagatryggingu íslands
og Freyr Jóhannesson á Almennu verkfræðistof-
unni tóku saman ýmsar upplýsingar um bóta-
greiðslur vegna ofanflóða á íslandi frá 1974. Leah
Tracy teiknaði 1., 2. og 3. mynd. Magnúsi Má
Magnússyni og Halldóri G. Péturssyni eru þakk-
aðar góðar ábendingar um efni greinarinnar og
Halldóri upplýsingar um manntjón af völdum
skriðufalla og grjóthruns á íslandi.
Greinin setn hér birtist er að stofni til íslensk þýðing á grein á ensku
ittn sama efni sem birtist i timaritinu Jökli, (Jökull 2001, 50, bls.
81-94). í þeirri grein er itarlegur heirnildalisti þar setn getið er
skýrslna, greinargerða og annarra heimilda þar sem finna tná nánari
upplýsingar utn ofanflóð á íslandi og viðbúnað við þeim.