Helgafell - 01.04.1954, Page 18

Helgafell - 01.04.1954, Page 18
i6 HELGAFELL ur að taka vandlega eftir hverju sýnilegu striki og reyna að koma þeim í slíkt samhengi, að allt geti skilizt. Venjuleg ljósmyndun slíkra texta er til lítils gagns. í útgáfuflokki Munksgaards, sem er ljósmyndaður án sérstakra hjálpartækja, eru íjöhnargir staðir með öliu ólesandi. Tilraunir þær, sem gerðar hafa verið með ljósmyndanir með hjálp ýmiskonar geisla, m. a. infra-rauð'ra, hafa aðeins borið neikvæðan árangur — að einni undantek- inni, sem ég skal nefna þegar í stað. Arinbjarnarkviða Egils, sem stendur á næstum því ólesanlegu blaði í Möðruvallabók, var eitt sinn ljósmynduð í Uppsölum með samskonar aðferð og borið liafði afbragðs góðan árangur við biflíuhandritið gotneska, Codex argenteus, en myndirnar sýndu ekkert það, sem ekki var hægt að sjá á frumritinu. Það getur verið ótrúlega erfitt að reyna að' lesa það sem stendur á slitnu blaði, einkum ef enginn samsvarandi texti fyriríinnst annarsstaðar, en ótrúlega æsilegt er það jafnframt og hvetjandi. Gamalt húsráð er að nota vatn til hjálpar: þegar skinnið' er vætt, skírist letrið andartak, og þá er um að gera að vera fljótur til og sjá hvað þar stendur, áður en það hverfur aftur. Osanngjarnt væri að álasa þeim rannsakendum, sem í bezta tilgangi hafa notað þessa aðferð sökum þess þeir þekktu enga aðra; en ekki er það vafamál, að hún hefur gert mikið tjón; letrið hefur máð'st, og þegar skinnið sýgur vætuna inn í sig og þornar síðan, verður það jafn- framt skorpið. Ég þekki aðeins eitt tæknilegt hjálpargagn, sem raunverulega hefur ein- hverja þýðingu við lestur íslenzkra handrita, en það er kvarts-lampi. Fra þannig lampa leggur daufa og draugalega glætu á lítinn blett. Aðeins er hægt að nota hann í myrkvuðu herbergi, og halda verður stöðugt á honum í liendinni til þess að geta hreyft liann eftir hentugleikum. Það er því ekki beinlínis auðvelt að nota hann, þegar jafnframt þarf að skrifa. En fyrir kemur, að hann gerir sannkölluð kraftaverk; það getur verið æfintýiá lík- ast að sjá, hvernig handrit með raunverulega ólesandi letri, birtist í lj()S1 þessu, ef ekki fullkomlega greinilegt, þá að' minnsta kosti miklu greinilegra en áður. Þessi lampi getur gert samskonar gagn og vatnið áð'ur fyrr, en a tvennan hátt er hann því vafalaust fremri: hann eyðileggur elckert — altent vona ég, að svo sé — og birtan helzt eins lengi og logar á lampanum, þar sem Ijósbrotin í vætunni hverfa hinsvegar á svipstundu um leið og hun sogast inn eða gufar upp. Kvarts-lampinn hefur opnað ný sjónarsvið. Ekki eru nema fáar vikur liðnar síðan lokið var starfi, sem ég býst við, að vekja muni athygli þegar af því spyrst: skinnliandrit hefur verið ljósmyndað' spjaldanna á milli eins og það birtist í kvarts-ljósi. Þetta er aðalhandritið að Grettis sögu (AM 551 a, 4to). Það er samansett af rúmlega 100 síðum, og ekki ein einasta þeirra er auðlesin í frumritinu, mikill hluti er af langerfiðasta tagi. I þ°s" mynduninni er svotil allt handritið næstum því eins skýrt og greinilegt og morgunblöðin frá deginum í dag. Ég vonast til, að þetta handrit verði gefið út í rithandarútgáfu áður en langt um líður. Því miður er ég ekki viss um, að við getum haldið áfram að nokkru ráði með jafn ágætum árangri. Astæð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.