Helgafell - 01.04.1954, Page 38
36
HELGAFELL
Vitur maður stendur á móti heimskum með réttu.
Engi æskumaður er jafnvel ræmdur í borg þessi.
Hans a£l eyðir ei ofdrykkja,
hann er vel siðaður,
því að góður var uppruni hans.
Sætt epli fellur a£ sætu tré.
Kynfylgja birtir o£t hvaðan kominn er.
Oft líkist sonur föður.
Nú £æl ofmart mun eg nú mælt hafa.
Eg sé Galatheam standa hjá garðshliði,
kann vera með atburð
að hún ha£i heyrt mína ræðu.
Vit það, Galathea,
að eg hugða engan í nánd vera,
en þó hef eg ekki logið.
Pamphilus birtist víst yfir öllum í borg þessi.
Menn veit, fagurlega varðveitir hann sína atferð,
sína sæmd og dýrð,
og lof vex með honum jafnan,
og með réttu má hann engi öfunda.
Hann er vel siðaður.
og mikillætist hann þó ekki af því,
og hans auður hefir engan löst.
Það vilda eg, Galathea,
að hann væri búandi þinn.
Minn dómur dæmir ykkur bæði saman.
Og það sama myndir þú vilja,
ef þú vissir sem eg.
Og vilja minn sagða eg,
en eigi bað hann þess mig.
Kyn og kostur hvors tveggja
dæmir ykkur bæði saman.
Nú hlýðu við tómum orðum um stund,
en oft koma stórmæli af litlum hlut.