Helgafell - 01.04.1954, Page 50

Helgafell - 01.04.1954, Page 50
48 HELGAFELL prófessor við Listaháskólann í Kaupmannahöfn. Heimild fyrir þessu er að finna í gamalli embættisbók. Þar segir svo : „Ar 1805, 13. júní, er Gottskálk Þorvaldsson, 65 ára gamall, lagður inn á fátækrastofnunina í Vartov; hann var fæddur á íslandi, þar sem faðir hans var prófastur; hann hefur verið kvæntur, en kona hans er löngu látin“. Þegar það er vitað, að' þessi ráðstöfun var framkvæmd, ef ekki með fullkomnu ofbeldi, þá að minnsta kosti að gamla manninum nauðugum, og — þegar það er ennfremur vitað, að sonurinn komst ekki í hálfkvisti við föður sinn um þóttafullt lundarfar, þá er ekkert það til, er þvegið geti Bertel Thorvaldsen hreinan af slíkri vansæmd, nema hann hafi þá afsökun að' vera sjálfur miklu blásnauðari en svo, að nokkur hugsanleg tiltölc væru á því, að hann gæti aflað fjár til framfæris föður sínum. Hann hefur þá afsökun. Hann er nú kominn undir fertugt. Hann hefur unnið baki brotnu og skapað hvert listaverkið á fætur öðru af innblásinni snilli. En þessi af- burðasnillingur var — frá Norðurlöndum. En hvað gerði hann þá til að afstýra þessum örlögum? Það' er spurning, sem vér skulum næst taka til athugunar. Fyrsta bréfið, sem Gottskálk skrifar syni sínum frá Vartov, er glatað. En af næsta bréfi hans má ráða, livers eðlis það var, og er þá skiljanlegt, að Bertel hefur ekki kosið að svara því. Það er auð'sætt, að faðir hans hefur liaft hann fyrir rangri sök og borið' hann þungum brigzlum fyrir hlutdeild lians í hinum þungu raunum sínum. En liversu djúpt sem sonur hans hefur að Jokum fundið til niðurlægingar sinnar og vangetu um að bæta kjör föður síns, liefur hann þrátt fyrir allt vitað sig saklausan. Þegar hann fór frá Danmörku var faðir hans enn heill heilsu og vinnu- fær. Hálfu öð'ru ári eftir brottförina Jætur hann í ljós þá ósk við son sinn, að hann leggi með bréfunum, sem hann slcrifi sér, teilcningar af drekahöfð- um og öðrum stafnmyndum til tréskurðar — og er þetta reyndar hinn eim sonargreiði, sem Gottskálk minnist á við hann í þeim bréfum, sem enn eru tiJ. Og Bertel sendir þegar um hæl tvær teikningar. En það eru auðvitað smámunir. Hins vegar sendir hann nú einnig árlega vinum sínum í Kaup- mannahöfn brjóstlíkön, myndnisti og fleiri listmuni, í þeirri von, að liægt sé að selja þá til ágóð'a fyrir bágstadda foreldra hans. En listaverkin safn- ast fyrir ár frá ári og ekki svo mikið sem eitt af þessum heimsendu lista- verkum hafði aflað honum eyristekna, þegar faðir hans dó. Vonbrigðin og' kostnaðurinn í sambandi við þessar sendingar ganga eins og rauður þráður gegnum öll bréf hans frá þessum árum. Og hér kemur fleira til. í kjölfar hins nýja rómverska Jýðveldis sighr næstu árín hræðileg verðbólga. Allar nauðsynjar ferfaldast í verði og alhr þeir listamenn, sem geta komið slíku við, flýja undan dýrtíðinni. Þegar Thorvaldsen fær fyrstu greiðsluna fyrir liina frægu mynd sína af Jason, Jirekkur gjaldið aðeins að hálfu fyrir jafnstórri mamiarablökk. Og enn er þess langt að bíða, að úr greiðist um fjárhag hans. Þegar frá eru taldar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.