Helgafell - 01.04.1954, Page 91

Helgafell - 01.04.1954, Page 91
LISTIR Fjalla-Eyvindur IV. Fjalla-Eyvindar, sem við höfum séð, eru eins keimlíkir og kóngar í kóngaröð. Ekki persóna Eyvindar, öðru nafni Kára, heldur sjónleikur- inn á leiksviði. Sami maðurinn, Har- aldur Björnsson, hefur líka sviðsett leikritið þrisvar sinnum hér 1 bæ, árin 1930, 1940 og 1950, og nú síðast sýndi Leikfélag Hveragerðis sjónleik- inn með sviðsetningu hans 1 Iðnó 1. °g 2. marz s.l. Að þessum tveimur sýningum meðtöldum hafði félagið sýnt Fjalla-Eyvind 18 sinnum á ýms- um stöðum hér sunnanlands. Sviðsetning Haralds Björnssonar uiá teljast hefðbundin að því leyti, að hann skipar Höllu í öndvegið en Eyvindur er rómantískur ástmaður hennar á hinum óæðri bekk eða kné- hrjúpandi við skör hennar. Haraldur íylgir sama texta ávallt, með úrfell- mgum og innskotum í samræmi við aðra útgáfu leiksins á dönsku. Á sýn- ingu Leikfélags Reykjavíkur 1940 voru þó höfð leikslok eftir þjóðsög- Unni, þegar hesturinn barg lífi Ey- vindar og Höllu, í þýðingu Gísla Ás- n'undssonar, þar eð frumgerð leiks- íokanna í þessari mynd, frá hendi Jóhanns sjálfs, leyndist í handrita- safni félagsins. Nú eru leikslokin komin fram og prentuð 1950 í við- hafnarútgáfu leikritsins hjá Máli og oaenningu, og hefði því verið tíma- h®rt að endurskoða sýningartextann aö þessu sinni. Nokkuð er það, að sýn- ing Leikfélags Reykjavíkur 1940 var svipmest þeirra sýninga, sem hér hafa verið hafðar á leikritinu, og þar komst leikarinn, sem lék Eyvind, Gestur Pálsson, næst því að verða jafnoki Höllu, jafnvel þeirrar Höllu, sem var mótuð af skaphita Soffíu Guðlaugsdóttur. En Eyvindur verður að gera betur. Hann má ekki aðeins vera jafnoki Höllu, hann verður að vera karlmað- urinn í leiknum, hann verður að bera af, hún verður að leita trausts og halds hjá honum. Þá er leikritið orð- ið útilegumannasaga og manneskju- legt, en ekki rómantískt ævintýri um útilegu á fjöllum með sviplegum endi. Dálítil vísbending felst í orð- um Kára, þegar þau Halla hafa satt versta hungrið: „Nú skal ég búa upp rúmið okkar. — Svo förum við að sofa. Þegar við vöknum, borðum við meira. Þá kann að vera, að vorið verði komið — og verði það ekki, má það einu gilda.-----“ Margt er svipað hjá Jóhanni Sigur- jónssyni og írska leikritaskáldinu John Millington Synge. Vinur Syng- es, W. B. Yeats, þekkti Fjalla-Eyvind og hafði orð á keltneska svipnum í málfari persóna leiksins og í stíl höf- undar. Þó er enska þýðingin á Fjalla- Eyvindi slæm. Af leikritum Synges er „The Playboy of the Western World“ keimlíkast Fjalla-Eyvindi. Chritsopher Mahon (The Playboy) gæti hæglega sagt: „Ég er konungur fjallanna“, og allir trúað orðum hans.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.