Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 1
F I M M T U D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 236. tölublað 102. árgangur
SÝNINGIN
HVASSAST ÚTI
VIÐ SJÓINN
HERMENN
HAFSINS Í
SANDGERÐI
TELUR KJÖRAÐ-
STÆÐUR FYRIR
LOSUN HAFTA
BLÁI HERINN 54 VIÐSKIPTAMOGGINNLJÓSMYNDIR 98
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Vaxandi þrýstingur er af hálfu breskra stjórn-
valda á að Seðlabanki Íslands – og fjármála-
ráðherra – veiti undanþágu frá höftum fyrir út-
greiðslu erlends gjaldeyris úr slitabúi gamla
Landsbankans (LBI) til forgangskröfuhafa.
Breski innistæðutryggingasjóðurinn er
stærsti forgangskröfuhafi LBI og á eftir að fá
greidda um 400 milljarða úr búinu.
Íslensk yfirvöld munu þó ekki samþykkja
allar þær víðtæku undanþágur sem LBI hefur
óskað eftir sem skilyrði fyrir breyttum skil-
málum á 228 milljarða gjaldeyrisskuld Lands-
bankans við LBI. Sú krafa LBI að greiðslur af
skuldabréfunum verði ávallt undanþegnar
höftum þykir óásættanleg og torvelda áform
stjórnvalda um afnám hafta, að sögn þeirra
sem þekkja vel til stöðu mála.
Andrea Leadsdom, undirráðherra fyrir
efnahagsmál í breska fjármálaráðuneytinu,
hefur á síðustu vikum átt í talsverðum sam-
skiptum við Bjarna Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, vegna málsins, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Hefur ráðherrann
ítrekað þá afstöðu breskra yfirvalda að
greiðslur berist til forgangskröfuhafa sem
allra fyrst. Á búið nú yfir 400 milljarða í lausafé
í erlendum gjaldeyri. Bjarni vildi ekkert tjá sig
um málið þegar eftir því var leitað.
Þrýsta á útgreiðslur
Bresk stjórnvöld þrýsta á fjármálaráðherra um undanþágu fyrir greiðslum
til forgangskröfuhafa Samkomulagi Landsbankans og LBI verður hafnað
MVerður ekki hleypt út »ViðskiptaMogginn
Sólin lækkar ört á lofti þessa dagana og
skuggarnir lengjast. Engu að síður hefur
haustblíðan leikið við fólk á suðvesturhorn-
inu og horfur eru á að svo verði enn um sinn.
Blámóðu frá Holuhrauni hefur orðið vart á
Suður- og Suðvesturlandi. »2 & 48
Morgunblaðið/Golli
Út í ljósið úr
skuggum
haustsins
Félagið Höfðatorg leitaði, að
beiðni Reykjavíkurborgar, leiða til
að lífga upp á 16 hæða hótelturn sem
er í byggingu á Höfðatorgi. Þótti
umhverfis- og skipulagsráði bygg-
ingin einsleit og yfirbragðið grátt.
Tillaga Höfðatorgs fólst í að bætt
yrði við 17. hæðinni ofan á turninn
og að þar yrði veitingaaðstaða með
útsýni yfir miðborg Reykjavíkur og
Sundin, sem væri opin almenningi.
Umhverfis- og skipulagsráð féllst
ekki á þessa tillögu og segir í um-
sögn þess að óþarft sé að bæta við
hæð ofan á turninn til að hægt sé að
koma fyrir útsýnishæð á efstu hæð.
Hjálmar Sveinsson, formaður
ráðsins, segir að með umsögninni
hafi verið lögð fram sáttaleið. Hún
hafi opnað dyr fyrir verktakann.
„Við segjum að þeir geti notað
það rými sem er samþykkt í deili-
skipulaginu. Það var smá salómons-
dómur. Það var rætt heilmikið um
kosti og galla þessarar hugmyndar
og þetta varð niðurstaðan, að hafna
þessu ekki heldur leyfa það með
þessum hætti.“ »24
Ekkert verður af byggingu útsýnishæðar
fyrir borgarbúa vegna deilu um aukahæð
Tölvuteikning/PK Arkitektar
Var hafnað 17. hæðin hefði að hluta til
skagað fram af Fosshótelsturninum.
Magnús Geir
Þórðarson út-
varpsstjóri segir
ljóst að Ríkis-
útvarpið sé og
hafi verið í
mörg ár yfir-
skuldsett. Jafn-
framt hafi rekst-
urinn lengi verið
þungur. Tekjur
RÚV dugi ekki
fyrir þeirri þjónustu sem fyrirtæk-
inu sé ætlað að bjóða upp á, lög-
um samkvæmt.
Magnús Geir segir í samtali við
Morgunblaðið í dag að það sé lög-
gjafans að taka ákvörðun um það
hvort hlutverk Ríkisútvarpsins
eigi að vera óbreytt eða ekki. »14
agnes@mbl.is
Yfirskuldsett og
rekstur þungur
Magnús Geir
Þórðarson
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Íslenskir nemendur hefja
nám á háskólastigi seinna
en nemendur í flestum öðr-
um OECD-löndum, sam-
kvæmt nýrri úttekt OECD.
Þar kemur fram að árið
2012 var meðalaldur ný-
nema í fræðilegu há-
skólanámi á Íslandi 26 ár,
sem var hæsti meðalaldur
nokkurs OECD-lands (þar
sem gögn voru tiltæk).
Meðalaldur nýnema innan OECD árið 2012
var 22 ár.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra
segir að niðurstöðurnar sem bárust nýverið
frá OECD um stöðuna í háskólamálum hér á
landi hljóti að verða okkur Íslendingum alvar-
legt umhugsunarefni. Til dæmis hvað varðar
aldursdreifingu þeirra sem eru í háskólanámi
á Íslandi, þar sem þeir sem eru að útskrifast
með BS- eða BA-gráðu frá háskólum hér séu
liðlega 30 ára gamlir, en stúdentar í öðrum
OECD-ríkjum ljúki sambærilegum gráðum
26 ára gamlir.
„Háskólanemar okkar eru að koma eldri
inn í háskólana en í öðrum OECD-ríkjum. Því
fyrr sem fólk lýkur prófi, þeim mun betur
nýtist menntunin,“ segir Illugi m.a. í samtali
við Morgunblaðið.
„Við þurfum að huga meira að gæðum há-
skólamenntunar og horfast í augu við að það
getur ekki gengið upp hjá okkur sem þjóð ef
við ætlum að hafa sambærileg lífskjör hér og
eru í þeim löndum sem við viljum bera okkur
saman við að framlög okkar til háskólanna
séu fyrir neðan meðaltal OECD-ríkjanna og
langt fyrir neðan það sem tíðkast annars
staðar á Norðurlöndum,“ segir Illugi Gunn-
arsson.
Klára BA
rúmlega
30 ára
Fjórum árum eldri en
nemar í OECD-ríkjum
MRáðherra segir ólæsi stríð á hendur »52-53
Illugi
Gunnarsson
Ógreiddar
skuldir við
Landspítalann
nema alls um
1.230 milljónum
króna. Íslend-
ingar skulda
310 milljónir í
komu- og sjúk-
lingagjöld,
skuldir á erlendum kennitölum
nema 220 milljónum og aðrar
skuldir, s.s. fyrirtækja og ann-
arra heilbrigðisstofnana, um 700
milljónum.
Sigrún Guðjónsdóttir, deildar-
stjóri á fjármálasviði spítalans,
segir að erfiðlegar gangi að inn-
heimta kröfur nú en oft áður og
þá hafi staðgreiðsluhlutfallið á
spítalanum lækkað. »4
Eiga kröfur sem
nema milljarði