Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 2
Afar mikil móða frá eldgosinu í
Holuhrauni lagðist yfir Suðurland í
gær, eins og sást vel úr gervihnetti
NASA sem átti þá leið yfir Ísland.
Loftgæðamælar á svæðinu (loft-
gæði.is) sýndu slæm loftgæði fyrir
viðkvæma eða sæmileg loftgæði í
gær. Á mæli í Norðlingaholti í
Reykjavík fóru gildi upp í um 700
míkrógrömm á rúmmetra um þrjú-
leytið í gær sem eru slæm loftgæði
fyrir viðkvæma. Í Hveragerði fór
styrkurinn yfir 500 um hádegið í
gær. Veðurstofan spáði því gær að
móðu frá eldgosinu myndi leggja yf-
ir Suðurland í dag.
Stefán Geirsson, bóndi í Gerðum í
Flóahreppi, var að slá seinni slátt af
rýgresi í gær. Hann sagði að hann
sæi blámóðu til fjalla. En er ekki
óvenjulegt að heyja í október?
„Eftir að rúllutæknin kom til sög-
unnar hafa menn heyjað langt fram
á haust, að ég tali ekki um svona
grænfóður,“ sagði Stefán. Hann
sagði að endalausar rigningar hefðu
seinkað heyskap og svo hefði sprott-
ið vel í hlýindunum. Stefán vissi af
fleiri bændum sem voru að heyja í
gær. Bæði áttu þeir eftir annan slátt
á túnum og aðrir voru að slá í þriðja
sinn til að hreinsa túnin eftir góða
sprettu í haust. Það er gert til að
koma í veg fyrir að það myndist sina
á túnunum. gudni@mbl.is
Heyskapur í blámóðunni
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Haustsláttur Stefán Geirsson, bóndi í Gerðum í Flóahreppi, var að slá rý-
gresi í gær. Það er einær grastegund sem sprettur langt fram á haust.
Blámóða lá yfir
Suðurlandi og
Reykjanesi í gær
Gervitunglamynd/ Jarðvísindastofnun/Modis/Nasa
Eldgosagas úr Holuhrauni Greinilega sést hvernig móðan lá yfir Suðurlandi í gær og allt vestur á Reykjanesskaga.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson, landbún-
aðarráðherra, á frekar von á því að
EFTA-dómstóllinn verði látinn
skera úr um hvort Ísland hafi brotið
gegn EES-samningnum með reglum
um innflutning á fersku kjöti. Eft-
irlitsstofnun EFTA (ESA) gaf í gær
út rökstutt álit um að íslensk löggjöf
um innflutning á fersku kjöti væri
andstæð EES-samningnum.
„Við höfum lagt áherslu á að þetta
sé heilbrigðismál sem varðar það að
verja hreina búfjárstofna og sjúk-
dómastöðu á Íslandi. Það hefur
tryggt góð og örugg matvæli,“ sagði
Sigurður Ingi. Hann bendir á að tíðni
matarsýkinga hér sé einna lægst ef
ekki sú lægsta á heimsvísu. ESA hafi
hins vegar litið svo á að málið snúist
um verslun yfir landamæri. Sigurður
Ingi sagði að ágreiningurinn væri
djúpur. Íslendingum hafi ekki tekist
að fá ESA til að fallast á sín rök.
„Þess vegna kemur niðurstaðan ef
til vill ekki á óvart, þótt ég verði að
segja að hún valdi vonbrigðum,“
sagði Sigurður Ingi. „Við höfum tvo
mánuði til að bregðast við og höfum
haft þá stefnu að taka til varna í
þessu máli vegna þess að þarna er
um grundvallarágreining að ræða.
Í fréttatilkynningu frá ESA segir
m.a. að íslensk löggjöf feli í sér inn-
flutningstakmarkanir á fersku kjöti,
unnu sem óunnu, kældu sem frosnu,
sem og innmat og sláturúrgangi.
Innflytjendur verði samkvæmt gild-
andi lögum að sækja um leyfi og
leggja fram margvísleg gögn til Mat-
vælastofnunar.
Krafan um að innflytjendur sæki
um sérstakt leyfi til innflutnings og
leggi fram ýmiskonar vottorð, eins
og t.d. að vörurnar hafi verið frystar
að lágmarki í 30 daga við 18 stiga
frost og að þær séu ekki smitaðar af
salmonellu, stangist á við EES-
samninginn. Með þessari kröfu sé
komið á reglubundnu eftirliti með
dýraafurðum frá öðrum EES-ríkjum
og það teljist vera viðskiptahindrun í
skilningi EES-samningsins. Ferskar
kjötvörur innan EES lúti nákvæm-
um reglum um heilbrigðiseftirlit í út-
flutningsríkinu en eftirlit í viðtöku-
ríki sé takmarkað við stikkprufur.
Reglurnar byggist á gagnkvæmu
trausti milli EES ríkja og eigi að
stuðla að óheftum flutningum vöru á
innri markaðinum eins og samning-
urinn geri ráð fyrir.
ESA telur að íslensk stjórnvöld
hafi ekki sýnt fram á að núverandi
fyrirkomulag megi réttlæta með
þeim rökum að það sé nauðsynlegt til
að vernda líf og heilsu manna og
dýra. Vísindaleg gögn sem íslensk
stjórnvöld hafi framvísað renni ekki
stoðum undir gildandi reglur heldur
sýni þvert á móti að áhætta á sýk-
ingu búfjár í gegnum innflutning á
fersku kjöti sé hverfandi.
ESA telur kerfi leyfisveitinga hér
á landi fela í sér óréttlætanlegar og
ónauðsynlegar viðskiptahindranir.
Fer líklega fyrir EFTA-dóm
Rökstutt álit ESA segir að takmarkanir á innflutningi á fersku kjöti til Íslands brjóti í bága við EES-
samninginn Stjórnvöld líta svo á að málið snúist um heilbrigðismál og vörn hreinna búfjárstofna
Morgunblaðið/Golli
Kjötmálið ESA lítur svo á að innflutningur á fersku kjöti hingað snúist um
verslun yfir landamæri en stjórnvöld telja að um sé að ræða heilbrigðismál.
SVÞ - Samtök verslunar og
þjónustu sendu Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA) kvörtun þann 6.
desember 2011 vegna innleið-
ingar íslenskra stjórnvalda á
reglugerð ESB um almennar
meginreglur og kröfur sam-
kvæmt lögum um matvæli, um
stofnun Matvælaöryggisstofn-
unar Evrópu og um máls-
meðferð vegna öryggis mat-
væla.
SVÞ töldu innflutnings-
takmarkanir hér á fersku kjöti
ganga gegn ákvæðum EES-
samningsins um frjálsa vöru-
flutninga.
ESA styður
skoðun SVÞ
SVÞ SENDU KVÖRTUN TIL
ESA ÁRIÐ 2011
Kaupum bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Miklar umræður fóru fram á Al-
þingi í gærkvöldi um frumvarp Vil-
hjálms Árnasonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokks, sem gengur út á að
færa áfengissölu frá Vínbúðum
ÁTVR og til matvöruverslana.
Umræðan snerist að stórum hluta
um það til hvaða nefndar ætti að
vísa málinu. Í framsöguræðu sinni
lagði Vilhjálmur til að málið yrði
sent til allsherjar- og menntamála-
nefndar en því mótmæltu Ögmund-
ur Jónasson og Steingrímur J. Sig-
fússon, þingmenn Vinstri grænna,
og sögðu að heldur ætti að senda
það til efnahags- og viðskiptanefnd-
ar, þar sem hún hefði áður fjallað
um áfengislagafrumvörp. Þá sagði
Ögmundur að frumvarpið snerist
fyrst og fremst um lýðheilsu og því
ætti það að fara til velferðarnefnd-
ar.
Þvert á sett markmið?
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingar, sagði ágætt að nefndir
Alþingis fengju tækifæri til að fjalla
málefnalega um hugmyndirnar að
baki frumvarpinu en sagði það
vekja furðu sína að áfengisfrum-
varpið væri eitt af forgangsmálum
Sjálfstæðisflokksins á haustþingi.
Þá benti Ögmundur á að Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
hefði í janúar sl. samþykkt stefnu í
áfengis- og vímuvörnum til ársins
2020, þar sem fram komi að mark-
mið stjórnvalda sé m.a. að tak-
marka aðgengi að áfengi og öðrum
vímugjöfum og vernda viðkvæma
hópa fyrir skaðlegum áhrifum
áfengis og annarra vímugjafa.
„Hér kemur frumvarp sem geng-
ur þvert á allt þetta. Er ekkert að
marka það starf sem unnið er á veg-
um stjórnvalda?“ spurði Ögmundur.
Umræðu var frestað til morguns á
áttunda tímanum en hún heldur
áfram þegar þingfundur hefst kl.
10.30 í dag.
Deilt um áfengis-
sölufrumvarpið
Ósammála um hvert málið á að fara
Morgunblaðið/Heiddi
Umdeilt Umræða um frumvarpið
heldur áfram á þingi í dag.