Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
HO
LTA
KJÚKLINGUR
100% kjúklingur
Allur Holta kjúklingur er 100% náttúrulegur.
Þú getur verið viss um að þegar þú kaupir Holta
kjúkling ertu að fá vöru sem nýtur virðingar hjá
meistarakokkum, hvar sem þá er að finna.
Spölur ehf. greiddi í byrjun mánaðar-
ins um hálfan milljarð króna af lang-
tímalánum sínum og vexti að auki,
alls 643 milljónir króna. Lokaafborg-
unin verður 2018 og ætla má að Hval-
fjarðargöng verði rekin með
veggjaldi fram á mitt ár 2019 til að
unnt sé að greiða annað, sem félagið
þarf að standa skil á, áður en göngin
verða afhent ríkinu endurgjaldslaust.
Frá þessu er greint á heimasíðu
Spalar og þar kemur fram að fjár-
mögnunarsamningar Hvalfjarðar-
ganga kveða á um afborgun lang-
tímalána Spalar einu sinni á ári,
tuttugu sinnum alls, frá september
1999 til september 2018. Þetta hefur
gengið eftir og nú er að baki sextánda
afborgunin af þessum tuttugu.
Langtímaskuldir félagsins nema
nú liðlega tveimur milljörðum króna
og þær verða greiddar upp á næstu
fjórum árum, að öllu óbreyttu. Í lög-
um og samningum er kveðið á um að
Spölur afhendi ríkinu göngin skuld-
laus. Þegar langtímaskuldir verða
upp greiddar þarf því að afla tekna til
að greiða út inneignir á viðskipta-
reikningum veglykla, ónotuð afslátt-
arkort sem verður framvísað og skila-
gjöld veglykla sem verður sömuleiðis
framvísað.
Þá þarf í lokin að greiða hluthöfum
út hlutafé þeirra, en þeir eru m.a.
Faxaflóahafnir með 23,5%, Ríkis-
sjóður 17,6%, Elkem Íslandi, 14,7%,
Hvalfjarðarsveit 11,6% og Vegagerð-
in með 11,6%. Áætlað er að þessi út-
gjöld geti numið allt að 600 milljónum
króna auk rekstrarkostnaðar gang-
anna þar til Spölur afhendir þau
ríkissjóði, sem gæti orðið nálægt
miðju ári 2019.
Hvalfjarðargöng verða lokuð
vegna malbikunar í hálfan þriðja sól-
arhring frá því klukkan 20 að kvöldi
föstudags 17. október til kl. 6 að
morgni 20. október. Þetta er lengsta
samfellda lokun ganganna frá upp-
hafi og í fyrsta sinn sem slitlag er
endurnýjað á akbrautum þar frá því
þau voru opnuð í júlí 1998. Hlaðbær-
Colas annast verkið og mun hliðra til
eins og mögulegt er til að hleypa for-
gangsumferð í gegn á meðan á fram-
kvæmdum stendur, þ.e. sjúkraliði,
slökkviliði og lögreglu.
Göngin afhent
ríkinu skuldlaus
eftir fimm ár
Morgunblaðið/Ernir
Hvalfjarðargöng
» Umferðin í göngunum í
september var 2% meiri en í
sama mánuði í fyrra.
» Aukning hefur verið í öllum
mánuðum ársins nema í mars.
» 164,065 bílar fóru um göng-
in í síðasta mánuði.
» Stærsti mánuður frá upp-
hafi var júlí 2009 er 248.994
bílar fóru um göngin.
» Í júlí í ár voru bílarnir
238.814.
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmi
Umhverfismál hafa verið ofarlega í
huga íbúa Stykkishólms nokkuð
lengi. Vakningin byrjaði upp úr 1980
er farið var að endurbyggja gömul
hús í stað þess að rífa þau og byggja
ný. Íbúar fóru að gera fallega garða
og leggja metnað í að bæði hús og
lóð liti snyrtilega út. Slík viðhorf
smita út frá sér og verða sjálfsögð
eins og aldrei hafi annað komið til
greina.
Fyrir nokkrum árum byrjaði
Stykkishólmsbær, fyrstur sveitarfé-
laga, að fá íbúana til að flokka allt
heimilissorp. Hver fjölskylda fékk 3
tunnur, eina fyrir lífrænt sorp, aðra
fyrir endurvinnanlegt sorp og þriðju
fyrir sorp sem ekki fór í hinar tvær.
Íbúarnir voru jákvæðir og fóru af
stað með flokkun. Í dag gerir enginn
athugasemdir og menn líta á sorpið
með öðrum augum, ekki bara sorp. Í
ljós hefur komið eftir breytingarnar
að minna en helmingur sorps fer í
urðun, sem sparar fjármuni. Þá hef-
ur Stykkishólmsbær hafið formlegt
átak gegn ágengum plöntum í bæj-
arlandi sínu.
Plastpokalaust samfélag
Áhugasamir einstaklingar hafa fé-
lagsskap sem heitir Umhverfishópur
Stykkishólms. Hópurinn vill fylgja
því eftir að bærinn og íbúar hans
leggi áherslu á að sýna gott fordæmi
í umhverfismálum. Í byrjun ársins
var ákveðið að fara af stað með nýtt
verkefni í þessum anda. Hugmyndin
var hvort Hólmurinn gæti ekki orðið
burðarplastpokalaust samfélag. Sótt
var um styrk til umhverfis- og auð-
lindaráðuneytisins til þess að fara af
stað með tilraunaverkefni í að hætta
að nota plastpoka þegar farið er að
versla. Þess í stað eru bæjarbúar
hvattir til að nota fjölnota poka sem
þeir koma með að heiman.
Verkefnið fór af stað í byrjun
september en undirbúningur hefur
staðið frá því síðasta vor.
Fyrirmyndir í umhverfismálum
Markmiðið nú
að hætta að nota
burðarplastpoka
Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðun
Plastpokana burt Theódóra Matthíasdóttir, Róbert Arnar Stefánsson og Menja von Schmalensee eru stjórnendur átaksins í Stykkishólmi.