Morgunblaðið - 09.10.2014, Qupperneq 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Nýtt íslenskt fæðubót-
arefni kemur á markað í
nóvember og verður selt í
apótekum og heilsubúð-
um. Framleiðandi er fyr-
irtækið Geosilica. Efnið
inniheldur náttúrulegan
jarðhitakísil sem unninn er úr af-
fallsvatni Hellisheiðarvirkjunar.
Slík nýting til matvælavinnslu er
óþekkt annars staðar í heiminum
og byggist á innlendu hugviti og
rannsóknum. Frumkvöðlarnir eru
þau Fida Abu Libdeh og Burkni
Pálsson.. Lokaverkefni
þeirra í orku- og umhverf-
istæknifræði við Tækni-
skóla Keilis fjallaði um
nýtingu og hreinsun kísils
og kveikti það hugmyndina
sem þau hafa síðan unnið að
með stuðningi fyrirtækja og
sjóða.
Hreint undraefni
„Kísill er þekktur fyrir áhrif
hans á hár, húð og neglur. En
það sem er mjög merkilegt við
kísil er að hann hjálpar öðrum
steinefnum að koma sér fyrir í
líkamanum og þar af leiðandi
eykst beinþéttni,“ segir Fida í
samtali við Morgunblaðið. „Sum-
ar rannsóknir segja að hann geti
minnkað líkur á beinþynningu,
bæði hjá körlum og konum, ef
efnið er tekið reglulega inn sem
fæðubót,“ bætir hún við.
Fida segir að kísill sé hreint
undraefni og kallar hann „gullið
okkar Íslendinga.“ Hún segir að
það séu mjög fáir staðir í heim-
inum þar sem kísill finnist í svip-
uðu formi og hér, en það sé
vegna staðsetningar landsins,
jarðskorpan hér sé þunn basalt-
úthafsskorpa en ekki þykk meg-
inlandsskorpa. „Þetta gerir það
að verkum að margfalt minna er
af þungmálmum í berginu undir
landinu en á öðrum háhita-
jarðsvæðum. Geosilica notar
skiljuvatn jarðvarmavirkjana og
hefur þróað tækni til að hreinsa
og einangra kísilinn,“ segir hún.
Fæðubót sem fyrir-
byggir beinþynningu
Inniheldur náttúrulegan jarðhitakísil
Árangur hugvits og rannsókna
Ljósmynd/Geosilica
Geosilica Fida Abu Libdeh á tilraunastofu fyrirtækisins á Ásbrú.
VIÐTAL
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Ég hef unnið margar orrustur, hef
ekki enn unnið stríðið, en ég mun
halda áfram á meðan ég hef heilsu
til þess. Ég er búinn að sjá allt sem
hægt er að sjá neðansjávar; bæði
dýrðina og sóðaskapinn. Einn góð-
an veðurdag sagði ég sóðaskapnum
stríð á hendur,“ segir Tómas J.
Knútsson kafari og köfunarkennari
í Sandgerði og stofnandi Bláa hers-
ins..
Blái herinn eru umhverfis- og
hreinsunarsamtök sem Tómas
stofnaði í Keflavík árið 1995. Síðan
þá hefur herinn skipulagt og fram-
kvæmt á annað hundrað hreins-
unarverkefni í fjörum og sjó víða
um land, auk þess að vinna að vit-
undarvakningu á þessu sviði. Liðs-
menn hersins hafa unnið yfir 50.000
stundir og hreinsað yfir 1.100 tonn
af rusli af sjávarströndum og úr
höfnum. Þar af eru um 300 dekk og
100 rafgeymar. Allt er þetta unnið í
sjálfboðastarfi, stundum í samstarfi
við íþróttafélög og frjáls fé-
lagasamtök.
Tómas var 16 ára þegar hann
kafaði í fyrsta sinn, hann á að baki
6.800 kafanir víða um heim en er
nú hættur að kafa af heilsufars-
ástæðum eftir 40 ára köfunarferil.
Efldi Bláa herinn eftir slysið
„Ég var alinn upp við Kana-
sjónvarpið, þar sá ég köfunarþætti
Cousteau. Ég gjörsamlega féll í
trans og hugsaði með mér: þetta vil
ég gera. Þegar ég byrjaði að kafa
var þetta sagt við mig: Ef þú virðir
hafið og ert þar sem gestur, þá
mun þér ganga vel. Ég hafði það að
leiðarljósi. Þegar ég horfi út á hafið
koma þau augnablik að ég sakni
þess. Ég skil sáttur við köfunina,
en hugleiði líka oft það sem miður
fór.“
Árið 1998 lést einn nemenda
Tómasar við köfun. Það varð hon-
um mikið áfall, en varð til þess að
hann ákvað að efla Bláa herinn.
„Ungur drengur, Rúnar Bárður
Ólafsson, lést í köfun hjá mér.
Hann hafði hlakkað til að verða
meðlimur Bláa hersins og ég hét
því að heiðra minningu hans með
því að vinna ötullega að þessum
málefnum sem hann hlakkaði til að
taka þátt í. Eftir þetta fór ég í bar-
áttuna af heilum hug.“
Köfuðu eftir fé
til tækjakaupa
Tómas og nemendur hans hófu
að kafa eftir akkerum og bólfærum
sem lágu við leguna í Keflavík,
seldu þau og öfluðu þannig fjár til
að kaupa lyftibelgi til að hífa
þyngri hluti, eins og t.d. vörubíla-
dekk, upp af sjávarbotni. Nafnið
Blái herinn var síðan hugmynd
nemenda Tómasar og festist það
fljótt við hópinn. „Jú, herinn er
blár vegna þess að við erum að
þrífa hafið. Við erum hermenn
hafsins.“
Hvað þarf góður kafari að hafa
til að bera? „Í fyrsta lagi góða
heilsu. Svo þarf hann alltaf að vera
með plan B, sem þarf að vera jafn
pottþétt og plan A. Maður veit
aldrei hvað kemur upp á.“
Við erum hermenn hafsins
Heiðrar minningu pilts sem lést í köfunarslysi Hefur hreinsað sjó og fjörur
frá ’95 Kanasjónvarpið kveikti áhuga Hyggur á samstarf við Eimskip
Morgunblaðið/Þórður
Undir stýri Tómas í jeppanum, sem hann fékk að gjöf frá leikaranum og leikstjóranum Clint Eastwood eftir tökurnar á myndinni Flags of our Fathers.
Tómas hefur komið víða við á
lífsleiðinni. Hann er líklega eini
Íslendingurinn sem hefur prýtt
forsíðu tímaritsins Time. Það
var í júní 2005 og þar er hann
sýndur við köfun í ánni Silfru.
Svo hefur hann verið aðstoð-
armaður ekki ómerkari manns
en sjálfs Clint Eastwood, við
tökur á Flags of our Fathers,
kvikmynd Eastwoods, sem tekin
var hér á landi árið 2006, en
Tómas var þar verkefnastjóri.
Hann fékk ýmsa muni sem
tengjast töku myndarinnar, m.a.
herjeppa sem hann hefur nú
gert upp, búninga og myndir
áritaðar af Eastwood. „Það er
merkilegt því hann gefur nánast
aldrei áritanir. Ég hef hug á að
selja þessa hluti til styrktar
Bláa hernum.“
Prýddi for-
síðu Time
MUNIR FRÁ EASTWOOD
Gersemar Tómas á ýmsa gripi úr
myndinni Flags of our Fathers.
Flags of our Fathers Tómas og
Eastwood kynntust við tökurnar.
SUÐURNES2014Á FERÐ UMÍSLAND