Morgunblaðið - 09.10.2014, Síða 83
83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Að sögn Hrafnhildar er líka til-
valið að ferðast út fyrir Akureyri og
njóta náttúrufegurðarinnar sem
svæðið býr yfir. „Við eigum í góðu
samstarfi við ferðaþjónustufyr-
irtækin á svæðinu og úrval ferða í
boði. Í nánasta radíus við Akureyri
er að finna fagra skóga, vatnsföll,
fjöll og hraun.“
Eins og borgarferð til Evrópu
Það eru ekki bara vinnustaðahóp-
ar sem leggja leið sína norður.
Hrafnhildur segir almenning dug-
legan að sækja Akureyri heim árið
um kring og þá ekki síst yfir vetr-
artímann. Er umtalað að ferðalög
innanlands jukust eftir veikingu
krónunnar og margir völdu að fljúga
norður í frí frekar en að fara í borg-
arferðir til útlanda.
Hrafnhildur á erfitt með að segja
til um hvort þessi þróun eigi eftir að
ganga til baka með batnandi þjóð-
arhag. Hún telur þó líklegt að land-
inn haldi áfram að heimsækja Ak-
ureyri jafnt að sumri sem vetri þó að
hann hafi efni á utanlandsferðum.
„Fyrir marga er það orðið ómiss-
andi fastur liður að ferðast reglulega
norður, hvort heldur til að horfa á
nýjustu uppfærslu leikfélagsins eða
verja nokkrum dögum í brekkum
Hlíðarfjalls,“ segir hún. „Tilefnin til
að heimsækja Akureyri eru ótal-
mörg og allt árið er eitthvað um að
vera. Þessa dagana standa t.d. yfir
Dömulegir dekurdagar og auk
menningartengdra viðburða árið um
kring eru spennandi íþrótta-
viðburðir á borð við skautakeppnir,
handbolta- og fótboltamót. Bærinn
skartar svo sínu allrafegursta á há-
tíðum sem haldnar eru í kringum jól
og páska.“
Til að gera ákvörðunina um ferða-
lag norður enn auðveldari býður
Hótel Kea upp á mjög hagstæð
pakkatilboð. „Við klæðskerasníðum
tilboð fyrir hópa en erum einnig með
ýmis tilboð allt árið fyrir almenning.
Ef mikið stendur til í bænum, s.s.
áhugaverðir tónleikar eða leiksýn-
ing framundan, er oft hægt að fá hjá
okkur tilboðspakka með miða á við-
burðinn og gistingu á sérkjörum.“
Aðaltilboð vetrarins er þriggja
nátta pakki þar sem innifaldir eru
tveir kvöldverðir á hótelveit-
ingastaðnum Múlaberg, bistro &
bar. „Þetta er tilboð sem hentar vel
fyrir langa helgi, s.s. frá fimmtudegi
til sunnudags eða föstudegi til
mánudags. Tilboðið gildir í allan vet-
ur að undanskilinni páskahelginni
og er tilvalin leið til að njóta þess
sem bærinn hefur upp á að bjóða.
Er þetta líka bráðsniðugur pakki til
að nota þegar vetrarfrí er í skólum í
miðri viku og hagkvæm leið fyrir
fjölskylduna að eiga veglegt
skíðafrí.“
vetur
Huggulegt Yfirbragð
hótelsins er stílhreint,
notalegt og skandinavískt.
Hrafnhildur segir Hótel Kea í dag það vel útbúið að
ekki sé hægt að áfellast gesti þó þeir fari ekki út af
hótelinu allan tímann. „Á Múlaberg Bistro & Bar erum
við með frábæra kokka sem starfa undir leiðsögn Har-
alds Más Péturssonar. Áherslan er á íslenskt hráefni
með bistro matargerð undir frönskum, dönskum og
ítölskum áhrifum þannig að úr verður ákaflega bragð-
góður matur, en úr eldhúsi hótelsins hægt að fá allt frá
samloku og upp í stórsteik. Alla daga erum við með
ódýra súpu og fisk dagsins í hádeginu og síðdegis er
„happy hour“ á barnum,“ segir hún.
Bæði gestir og heimamenn skemmta sér konunglega
á barnum. „Frá 16-18 er afsláttur á drykkjum og alla
fimmtudaga er sérstakur afsláttur fyrir konur. Skap-
ast þá iðulega mjög skemmtilegt andrúmsloft á staðn-
um.“
Ljúffengur matur
á góðu verði
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
Gler n speglar n sandblástur n slípun
Sandblásummyndir og texta á spegla,
lýsing á bakvið spegla
afmælis
afsláttur
af speglum
30%
Opið alla virka daga 08:00-17:00
Sendum um allt land
45 ára
framleiðsla