Læknablaðið - 15.04.2007, Page 7
RITSTJÓRNARGREIAIAR
Reglugerðir og not S-merktra
lyfja á sjúkrahúsum
Árið 2001 tók gildi ný reglugerð varðandi svoköll-
uð S-merkt lyf. Þau voru skilgreind sem lyf er
eingöngu ætti að nota á eða í tengslum við sjúkra-
hús vegna sérhæfðrar meðferðar sjúklinga sem
krefðist sérfræðiþekkingar eða sérstaks eftirlits
sérfræðinga á sjúkrahúsum. Einnig voru í flokk-
inn sett ný og dýr lyf sem kröfðust fyrrnefndar
sérfræðiþekkingar og loks var þess getið að um
notkun þessara lyfja skyldi fara samkvæmt klín-
ískum leiðbeiningum. Við breytinguna var flutt
til fjármagn frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) til
Landspítala og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
vegna kostnaðar við notkun lyfjanna. Ýmsir vöktu
á því athygli á þessum tíma að með þessari ráðstöf-
un væri sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum.
Ákveðnir sjúklingahópar fengju lyf sín greidd eftir
sem áður af TR en eftir breytinguna ættu aðrir
sjúklingahópar það undir fjárhagsgetu spítalanna
hverju sinni hvort og þá hvaða lyf stæðu þeim til
boða. Langvarandi fjárhagsvandi og niðurskurður
á sjúkrahúsum var mönnum ekki að ástæðulausu
áhyggjuefni í þessu tilliti. Þá var vakin athygli á því
að í fæstum tilvikum ættu hlut að máli sjúklingar
sem væru inniliggjandi á sjúkrahúsunum, heldur
væri hér um göngudeilda- eða svokallaða ferli-
sjúklinga að ræða sem þyrftu ekki endilega að
sækja læknismeðferð sína til sjúkrahúsa.
Hvað sem öðru líður þá voru settar nýjar
reglur um notkun S-merktra lyfja á Landspítala
30. janúar síðastliðinn. I þeim kemur fram að á
Landspítala starfi deild lyfjamála og er henni
falin umsýsla S-merktra lyfja fyrir hönd spítalans.
Klínískar leiðbeiningar skulu gilda um notkun
lyfjanna og þær skulu unnar á ábyrgð yfirlæknis
þeirrar sérgreinar sem í hlut á og í samvinnu við
sérfræðilækna sérgreinarinnar og yfirlækni deildar
lyfjamála. Þá getur framkvæmdastjóri lækninga
ákveðið að læknar þurfi að sækja um heimild til
notkunar tiltekinna S-merktra lyfja og að sam-
þykki deildar lyfjamála skuli liggja fyrir áður en
viðkomandi lyfi er ávísað. Samkvæmt reglunum
á þetta sérstaklega við um „ný lyf“, „dýr lyf“ og
„vandmeðfarin lyf“.
Deild lyfjamála Landspítala hefur sett sjálfri sér
verklagsreglur varðandi umsóknir um notkun S-
merktra lyfja og afgreiðslu þeirra. Sérfræðilæknar
þurfa að sækja um einstaklingsbundna heimild
fyrir hvern sjúkling til deildarinnar og í sumum til-
vikum er heimild til notkunar tiltekins lyfs einung-
is veitt í tiltekinn tíma, jafnvel aðeins til fjögurra
vikna í senn og þarf því að ítreka umsóknina að
þeim tíma liðnum sé ábending fyrir notkun lyfsins
enn til staðar.
Eins og flestir vita er það fjármagn sem til
ráðstöfunar er innan heilbrigðiskerfisins ekki
ótakmarkað. Því er mikilvægt að því fjármagni
sem til skiptanna er sé varið að vel íhuguðu máli
og þannig að sem mest fáist fyrir hverja krónu. Hér
þarf að fara saman læknisfræðileg og rekstrarleg
skynsemi. Hvað lyf varðar þá verða þau sífellt
árangursríkari og jafnframt dýrari. Eg tel eðlilegt
að gerðar séu ákveðnar kröfur til nýrra lyfja og að
þau verði að hafa sannanlega virkni í tilteknum
sjúkdómum og jafnframt að kostnaður við þau
sé innan þeirra marka sem ásættanlegur er fyrir
þjóðfélagið. Að þessum skilyrðum fengnum og að
mati færustu manna sem um málið hafa fjallað ætti
síðan tiltekið lyf samkvæmt núverandi reglugerð
að skrá á lyfjalista sjúkrahúsanna. Að því fengnu
ætti sérfræðilæknum ekkert að vera að vanbún-
aði að ávísa lyfinu samkvæmt þeim ábendingum
sem skráðar hafa verið í tilteknum sjúkdómum
til þeirra sjúklinga sem sjúkdóminn hafa. Það að
sérfræðilæknar þurfi að sækja sérstaklega um fyrir
hvern sjúkling um notkun lyfsins, ekki bara einu
sinni heldur ítrekað getur hvorki flokkast undir
skilvirkni né hagkvæmni.
í þessu samhengi er ekki úr vegi að velta vöng-
um yfir því hvort ekki sé tímabært að það sé skráð
og skilgreint með formlegum hætti hvaða heil-
brigðisþjónusta felst í hinum íslensku almanna-
tryggingum. Hvaða réttindi eru það sem hvert og
eitt okkar er að kaupa með margra áratuga skatt-
greiðslum til íslenska ríkisins? í annan stað und-
irstrikar þetta fyrirkomulag nauðsyn þess að fjár-
rnagn fylgi hverjum sjúklingi hvar svo sem hann
leitar sér heilbrigðisþjónustu. Það er Iöngu úrelt
fyrirbæri að reka sjúkrahús á föstum fjárlögum
þannig að hver sjúklingur sé í raun og veru ekkert
annað en kostnaður í stað þess að vera velkominn
viðskiptavinur.
Þá læt ég það vera mín lokaorð og föðurlega
áminningu að góður stjórnandi er sá sem nýtir og
virðir sérfræðiþekkingu starfsmanna sinna og gerir
þeim auðveldara að rækja starf sitt.
Sigurður
Böðvarsson
sigurdbo@landspitali.is
Regulation of the use of
hospitul-rcstricted drugs
Sigurður Böðvarsson MD,
Attending Physician, dept.
of Oncology, Landspitali
University Hospital,
101 Reykjavik, Iceland.
Sigurður Böðvarsson,
sérfræðingur
í lyf- og krabbameins-
lækningum
lyflækningadeild
krabbameina
Landspítala
og á Læknasetri.
Læknablaðið 2007/93 271