Læknablaðið - 15.04.2007, Qupperneq 9
RITSTJÚRNARGREIMAR
Nýrnamein og inúítaspeki
Síðastliðið ár markar tímamót á íslandi hvað
meðferð nýrnafrumukrabbameins varðar. Með
tilkomu nýrra krabbameinslyfja erum við loksins
farin að sjá fram á bættar horfur sjúklinga með út-
breitt nýrnafrumukrabbamein. Petta krabbamein
hefur hingað til verið tekið sem dæmi um ólækn-
andi lyfja- og geislaþolinn illkynja æxlisvöxt.
Þeir sem meðhöndla nýrnakrabbamein hafa
haft á orði, undanfarna mánuði, að tilfellum bók-
staflega rigni inn. Slík tilfinning getur þó verið
villandi. Þess vegna eru faraldsfræðilegar rann-
sóknir nauðsynlegar svo leggja megi kalt mat á
þróunina yfir lengra tímabil. í þessu tölublaði
Læknablaðsins er yfirlitsgrein um nýrnafrumu-
krabbamein á Islandi. Þessi grein er afrakstur mik-
illar vinnu og eljusemi sem hófst fyrir um tveimur
áratugum með einföldum spurningum læknanema
og einhvers sem lagði við hlustir. Ávöxtur þessa
starfs varð glæsileg doktorsvörn við Háskóla
Islands. I þessari grein kemur meðal annars fram
að nýgengi þessa meins á íslandi, bæði hjá konum
og körlum, er með því hæsta sem gerist. Sem betur
fer er þó bróðurparturinn af þessum tilfellum
staðbundinn við greiningu og því fallinn til lækn-
ingar með brottnámi einvörðungu. Orsakir þessa
krabbameins, eins og margra annarra, er vafalaust
sambland erfða og umhverfis og nýgengið síðan
verulega háð greiningarvirkninni í samfélaginu. Sú
virkni verður að teljast há hérlendis. Ómskoðanir
og sneiðmyndatökur hafa gert það að verkum að
hlutur tilviljunagreininga er nú nærri helmingur
allra nýgreininga. Mikið happ er að geta greint
og meðhöndlað þetta mein á frumstigi og þannig
komið í veg fyrir þjáningar og dauða. I fjölmörgum
tilfellum vildi maður svo gjarnan hafa fengið við-
komandi fyrr til meðferðar svo hægt hefði verið að
grípa í skottið á refnum.
Þó ber þess að geta að hér sem í öðrum sjúk-
dómum skilar aukin greiningarvirkni af sér bæði
góðkynja og illkynja meinum sem hafa trúlega
litla klíníska þýðingu, sérstaklega fyrir heilsutæpa
eða aldraða einstaklinga. Slíkur fundur kallar þó
oftar en ekki á róttæka meðferð þegar reglubund-
ið eftirlit væri í raun besti kosturinn. Haldi menn
að tæknin einfaldi læknisstarfið þá er það mikill
misskilningur og hið fornkveðna „primum non
nocere" er enn í fullu gildi. Fjölmörg mannanna
mein verða best meðhöndluð með orðsins list
einvörðungu.
Áratuga þróun í skurð- og svæfingalækningum
sem og hjúkrun hefur breytt nýrnaaðgerðum, sem
og öðrum holskurðum, úr glæfralegum óvissuferð-
um í örugga útsýnistúra. Fundur fjölmargra lítilla
æxla hefur gert hlutabrottnám nýrna fýsilegan
valkost. Þá færist í vöxt að brottnám nýrna sé gert
með hjálp kviðsjár til þess að minnka óþægindi
sjúklinga eftir aðgerð og flýta fyrir bata. Þessi
þróun he fur þegar hafist hérlendis bæði norðan og
sunnan heiða. Maður skyldi þó óhikað leggja stóra
skurði og jafnvel opna jafnhliða upp í brjósthol
gerist þess þörf. Þannig tókst, ekki alls fyrir löngu,
að fjarlægja stórt nýrnaæxli með æxlissega sem
náði ti! hægri hjartaslegils. Sú aðgerð krafðist
djúprar líkamskælingar og algjörrar blóðtæmingar
líkamans með aðstoð hjarta- og lungnavélar. í slík-
um verkefnum kemur glögglega í ljós hversu öflug
sérgreinaþjónusta í skurð- og svæfingalækningum
er fyrir hendi hér á landi.
í tilefni af 50 ára afmæli Skurðlæknafélags
Islands á þessu ári og áður en brjóstkassinn er bar-
inn til óbóta flýtur hér með lítil frásögn um hversu
fátt er nýtt undir sólinni þrátt fyrir allt.
Vilhjálmur Stefánsson var enginn landafunda-
maður. Hans verður hins vegar lengi minnst fyrir
það að hafa metið „villimenn“ heimskautaland-
anna að verðleikum. Af þeim gat hann lært hvern-
ig steinaldarmenn bjuggu í velsæld með óblíðri
náttúru og gerðu sér öll veður eins. Dag einn kom
þar að í máli Vilhjálms og eins Eir-Eskimóans að
Vilhjálmur hóf að stæra sig af þeirri læknisfræði
sem iðkuð var um þær mundir í New York: „Þeir
geta svæft mann, tekið úr honum nýra eða eitt-
hvað af innyflunum og þegar maðurinn vaknaði,
vissi hann ekki sjálfur hvað gert hafði verið við
hann, nema eftir því sem honum væri sagt og af
örinu eftir skurðinn. Ég hef að vísu aldrei séð
þetta sjálfur, en þetta er á allra manna vitorði.“
Áheyrandanum fannst þetta ekki meira en hann
þekkti til. Hann kannaðist við mann í sínum flokki
með langvarandi bakverk. Töframaður einn setti
í hann nýjan hrygg í svefni og gerði það svo hag-
anlega að hvergi var neitt að sjá á líkamanum á
eftir. Hann hafði ekki séð þetta sjálfur en þetta
væri á allra vitorði og ekki hægt að véfengja (1)!
Nú hundrað árum síðar bjarmar fyrir þeirri tíð
að við komumst með tærnar þar sem inúítatöfra-
mennirnir höfðu hælana.
1) Stefánsson V. Meðal Eskimóa. í þýðingu Ársæls Árnasonar.
Reykjavík 1938.
Eiríkur Jónsson
eirikurjon@landspitali.is
Kenal canccr and arctic
wisdom
Eirikur Jónsson MD, Chief
of Urology, Landspitaii
University Hospital,
Reykjavik Iceland.
Höfundur er yfirlæknir,
þvagfæraskurðlækningadeild
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
Læknablaðið 2007/93 273