Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2007, Side 64

Læknablaðið - 15.04.2007, Side 64
ÞIN G SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA 2759 ng/L). Ekki fannst martækur munur á BNP gildi sjúklinga sem fengu hjartaveggsdrep eftir aðgerð. Góð fylgni var á milli BNP og Euroscore r=0,64;p<0,001 og BNP og útstreymisbroti hjartans r=-0,26 p=0,004. Fyrir legulengd á gjörgæslu í þrjá daga eða lengur eða andlát var flatarmál undir ROC kúrfu 0,826 fyrir BNP, 0,802 fyrir Euroscore og 0,347 fyrir útstreymisbrot hjartans. Fyrir notkun æðahvetjandi lyfja var flatarmál undir kúrfu 0,863 hjá BNP, 0,769 hjá logistic Euroscore og 0,396 hjá útstreymisbroti hjartans. Fyrir notkun IABP var flatarmálið 0,688 hjá BNP, 0,522 hjá logistic Euroscore og 0,386 hjá útstreymisbroti hjartans. Ályktun: BNP spáir vel fyrir um alvarlega fylgikvilla eftir hjarta- aðgerð. Pað er jafngott mælitæki og Euroscore fyrir aðgerð og betra en útstreymisbrot hjartans metið sjónrænt með vél- indaómun fyrir aðgerð. E-44 Áhrif stökkbreytingar í BRCA2 á framgang krabba- meins í blöðruhálskirtli Tryggvi Porgeirsson', Laufey Tryggvadóttir2, Linda Viðarsdóttir’, Jón Gunnlaugur Jónasson25, Elínborg J. Ólafsdóttir2, Guðríður H. Ólafsdóttir2, Þórunn Rafnar4, Steinunn Thorlacius4, Jórunn E. Eyfjörð1-3, Hrafn TUlinius2, Eiríkur Jónsson5 tryggvt@hi.is ‘Læknadeild HÍ, 2Krabbameinsskrá KÍ,’Rannsóknarstofa KÍ í sameinda- og frumulíffræði, 4íslensk erfðagreining, -'þvagfæraskurðdeild Landspítala Inngangur: Stökkbreytingar í BRCA2 geninu auka verulega hættu á brjóstakrabbameini og í minna mæli á öðrum krabbameinum svo sem í eggjastokkum og blöðruhálskirtli. Fátt er hins vegar vitað um áhrif stökkbreytinganna á framgang krabbameins í blöðruhálskirtli. I rannsókninni var sjúkdómssértæk lifun karla með krabbamein í blöðruhálskirtli borin saman milli arfbera svokallaðrar íslenskrar BRCA2 999del5 landnemastökkbreytingar og sjúklinga án stökkbreytingarinnar. Einnig voru áhrif stökkbreytingarinnar á stig og gráðu við greiningu könnuð. Aðferðir: Með samkeyrslu við Krabbameinsskrá KÍ fundust 596 karlmenn sem greinst höfðu með krabbamein í blöðruhálskirtli á tímabilinu 1955 til og með 2004, úr hópi 29.603 karlkyns ættingja óvalins hóps kvenna með brjóstakrabbamein. Sýni fengust úr 527 einstaklingum (88,4%). Líkan Cox var notað við lifunargreiningu. Niðurstöður: Stökkbreyting fannst hjá 30 sjúklingum (5,7%). Miðað við sjúklinga án stökkbreytingar höfðu arfberar lægri greiningaraldur (69 ára m.v.74 ára (p=0,002)), hærra hlutfall hafði útbreiddan sjúkdóm eða meinvörp við greiningu (79% á stigum 3 eða 4 m.v. 39%, p<0,001) og æxlisgráða var að jafnaði hærri (87% með Gleason gráðu 7-10 m.v.51%,p=0,003). Hjá arfberum var hlutfallsleg áhætta á að deyja af völdum krabbameinsins 3,42 (95% öryggisbil (CI): 2,12-5,51), leiðrétt fyrir áhrifum greiningarárs og fæðingarárs, en 2,23 (95% CI: 1,03-4,79) þegar einnig var tekið tillit til áhrifa stigs og gráðu. Miðgildi lifunar hjá arfberum var 2,1 ár (95% CI = 1,4-3,6) en 12,4 ár (95% CI = 9,9-19,7) hjá sjúklingum án stökkbreytingar. Hvorki skyldleiki við brjóstakrabbameinssjúklingana né greiningartímabil höfðu áhrif á lifun arfbera. Ályktanir: íslenska landnemastökkbreytingin BRCA2 999del5 hefur veruleg neikvæð áhrif á horfur karla með krabbamein í blöðruhálskirtli en áætlað er að 2-3% sjúklinga eða um 4-6 á ári beri í sér stökkbreytinguna. Ljóst er að framgangur sjúkdóms- ins er mun hraðari í arfberum og kemur það bæði fram í lengra gengnum sjúkdómi við greiningu og verri horfum eftir greiningu en þeirra áhrifa gætir einnig þótt leiðrétt sé fyrir stigi og gráðu við greiningu. Auk þess að hafa þýðingu fyrir sjúklinga með þekkta fjölskyldulæga stökkbreytingu eða ríka fjölskyldusögu um krabbamein sem henni tengjast sýna niðurstöður glögg- lega fram á mikilvægi BRCA2 gensins í náttúrulegum gangi sjúkdómsins. E-45 Samanburður á kransæðahjáveituaðgerðum fram- kvæmdum á sláandi hjarta og með aðstoð hjarta- og lungnavélar Hannes Sigurjónsson'* 2, Bjarni Torfason21, Bjarni Geir Viðarsson2, Tómas Guðbjartsson2-1 tornasgud@landspitali.is 'Læknadeild HÍ, 2hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala Inngangur: Kransæðahjáveituaðgerðir eru yfirleitt framkvæmdar með aðstoð hjarta- og lungnavélar og hjartað stöðvað í aðgerð- inni (CABG). Á síðastliðnum árum er í vaxandi mæli farið að framkvæma þessar aðgerðir á sláandi hjarta (OPCAB), þ.e. án hjarta- og lungnavélar. Þar með er reynt að koma í veg fyrir fylgikvilla sem rekja má til hjarta- og lungnavélarinnar. Hins vegar er aðgerð á sláandi hjarta tæknilega erfiðari og ekki eru allir á einu máli hvort slík aðgerð sé betri kostur en hefðbundin kransæðahjáveituaðgerð. Markmið þessarar rannsóknar er að bera saman árangur þessara aðgerðategunda, aðallega með tilliti til fylgikvilla og skammtíma árangurs. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn og nær til allra sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á íslandi frá 2002-2004. Sjúklingum sem gengust undir krans- æðahjáveitu samtímis annarri hjartaaðgerð (t.d. lokuaðgerð) var sleppt. Sjúklingunum var skipt í tvo hópa, CABG-hóp (n=150) og OPCAB-hóp (n=53), þar með taldir þrír sjúklingar sem snúið var í hefðbundna aðgerð. Hóparnir voru bornir saman með til- liti til ábendinga fyrir aðgerð, áhættuþátta, Euroscore og fjölda æðatenginga. Einnig var lagt mat á árangur aðgerðanna; aðgerð- artíma, fylgikvilla, legutíma og skurðdauða. Niðurstöður: Niðurstöður eru sýndar í töflu I. Sjúklingahóparnir voru sambærilegir, til dæmis hvað varðar aldur, einkenni, NYHA-flokkun, Euroscore, alvarleika kransæðasjúkdóms, út- streymisbrot hjarta (EF) og fjölda æðatenginga. Aðgerðir á sláandi hjarta tóku heldur lengri tíma en hefðbundin aðgerð og blæðing í þeim var marktækt meiri. Hins vegar voru fylgi- kvillar eins og gáttatif/flökt og hjartadrep algengari eftir hefð- bundna aðgerð (CK-MBmax 57 pg/L á móti 42 pg/L, p=0,07) en munurinn reyndist ekki marktækur. Tíðni heilablóðfalls var sambærileg í báðum hópum. Miðgildi legutíma á gjörgæslu var 1 dagur hjá báðum hópum en heildarlegutími var hins vegar einum degi lengri eftir hefðbundna aðgerð. Sjö sjúklingar létust innan 30 daga eftir hefðbundna aðgerð en enginn eftir aðgerð á sláandi hjarta (p<0,01). 328 Læknablaðið 2007/93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.