Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 79

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Læknar, velkomnir á 21. öldina - virkjum heimasíðuna! Heimasíðu Læknafélags íslands var hleypt af stokkunum árið 2003 ásamt undirsíðum fyrir hin ýmsu fagfélög. Mikil vinna hefur verið lögð í að gera síðuna sem glæsilegasta og undanfarið hafa þónokkrar breytingar verið gerðar sem gera hana notendavænni og er hún nú að mínu mati komin í ágætt horf. Hins vegar hefur umferð um síðuna ekki verið mikil og ljóst að nú þegar umgjörðin er klár, þarf að leggja meiri vinnu í raunverulegt innihald síðunnar. En hver er tilgangurinn með slíkri síðu, hvað á hún að innihalda og hverjum á hún að gagnast? Heimasíðan er klárlega góður vettvangur fyrir Læknafélag Islands til að miðla upplýsingum til sinna félagsmanna. Kjarasamningar, lög félagsins, Codex Ethicus ásamt upplýsingum um stjórn og nefndir er nú þegar að finna á síðunni auk ýmissa annarra gagnlegra upplýsinga. Auk þess hefur framkvæmdastjóri félagsins skrifað skemmtilega og fræðandi pistla um málefni líðandi stundar sem eru orðnir ómissandi á hverjum föstudegi. Nýlega var orlofssíðan opnuð en hún gerir læknum kleift að sækja um orlofsbústaði á rafrænan hátt en auk þess eru sendar út tilkynningar sem auðvelda félagsmönnum að fylgjast með því hvaða bústaðir eru lausir hverju sinni. Fagfélögin hafa verið misvirk í því að nýta sér sín heimasvæði. Þar má til dæmis taka sér Félag ís- lenskra heimilislækna til fyrirmyndar en þeir hafa haldið úti öflugri heimasíðu um árabil. Fagfélögin geta nýtt síðu sína til margra hluta, svo sem til að minna félagsmenn á komandi ráðstefnur, nám- skeið og fundi, halda úti upplýsingum um félögin og setja inn tengla um áhugaverð efni. Einnig er heimasíðan góður vettvangur fyrir hvers kyns umræður þar sem félagsmenn starfa oft á mörgum vinnustöðum. Á heimasíðu Félags ungra lækna hafa menn verið duglegir við að miðla upplýs- ingum um laus störf auk þess sem settar hafa verið inn upplýsingar um sérnám í útlöndum. Þar hafa læknar getað komið með fyrirspurnir til þeirra sem staddir eru úti í námi. Þannig er tilgangur heimasíðunnar tvíþættur. Hann lýtur annars vegar að starfsemi okkar stétt- arfélags þar sem upplýsingamiðlun til félagsmanna er lykilþáttur. Hins vegar lýtur tilgangurinn að því að efla faglegt starf þar sem heimasvæði fagfélag- anna eru í fararbroddi og skiptir þátttaka hvers félagsmanns í umræðum og fleiru miklu máli. En hver á að stýra því hvað fer inn á síðuna? Ritstjórar hafa verið settir yfir hvert undirsvæði en ljóst er að síðan byggist ekki síður á virkni hins almenna félagsmanns. Allir félagsmenn geta stofn- að til umræðna og komið með hugmyndir að efni sem hægt væri að setja inn. Heimasíðan getur því ekki virkað vel nema með þátttöku sem flestra en ritstjórarnir hljóta alltaf að bera ábyrgð á því efni sem fer inn á þeirra heimasvæði. Ljóst er að leggja þarf meiri vinnu í uppbygg- ingu heimasíðunnar og móta þarf stefnu um það hvernig hún þjóni best tilgangi sínum. Því hefur verið skipaður starfshópur um málefni heimasíð- unnar en jafnframt er það von mín að félagsmenn láti meira til sín taka í uppbyggingu, nýtingu og þróun hennar. Sigurdís Haraldsdóttir UNGLÆKNIR sihl 7@hi.is í pistlunun Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknablaðið 2007/93 343
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.