Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2003, Page 22
ALFRUN GUNNLAUGSDOTTIR
að lifa af í Auschwitz væru þeir einir á báti (92, 129-133). Alberto kvaddi
vin sinn, Primo Levi, við glugga, þar sem hann var í sóttkví útaf skarlats-
sóttinni og hélt svo burt fri Auschwitz. Hann dó á dauðagöngunni.
Levi eignaðist líka annan vin, Jean il Pikolo (Jean Samuel) sem hafði
vald til að útnefna hann dag einn til að ná með sér í súpustamp með
fimmtíu lítrum af súpu. Leiðin var um kílómeters löng og Jean il Pikolo
nefnir það við Levi að sig langi til að læra ítölsku. Levi var ekkert að tví-
nóna við það og byrjar þegar í stað kennsluna, en á einföldum orðum, og
áður en hann veit af skýtur Dante upp í huga hans. Levi þylur úr Víti
Dantes það sem hann hafði lært utanbókar í skóla, reynir að útskýra fyrir
Jean, þýða ... en þegar á leiðarenda er komið bíður þeirra ekki annað en
gruggugur stampurinn (98-103). Lesandanum er síðan ætlað að skilja að
engin hending réð því að menn þjáðust í Víti Dante. Þeir höfðu unnið til
refsingar með vafasömum gerðum sínum eða líferni. En í víti nazista
þjáðust menn hins veganað ósekju.
Jean Samuel lifði af dvölina í Auschwitz og dauðagönguna og sneri
heim, til héraðsins Alsace í Frakklandi. Hann og Levi héldu áfram að
vera vinir og heimsóttu hvor annan þegar þeir gátu. Hann hafði horft
upp á sameiginlegan vin þeirra, Alberto, hníga örmagna niður á dauða-
göngunni (341).
Leifur Muller var í allt annarri aðstöðu en Primo Levi, hann vissi í
sjálfu sér hvers vegna hann hafði verið tekinn fastur 1942, hann hafði
reynt að komast frá Noregi á fölskum forsendum og til óvinaríkis, en
vissi ekki hver hefði sagt til hans. Island var hersetið af óvinaþjóð Þjóð-
verja og taldist þar með til andstæðinga Þriðja ríkisins. Leifur hafði sótt
um skólavist í Svíþjóð að undirlagi Vilhjálms Finsen, sem verið hafði full-
trúi Islands við danska sendiráðið í Osló en var nú kominn til Svíþjóðar.
Ætlun Leifs var að fara til Svíþjóðar og svo um England og þaðan heim.
Vilhjálmur Finsen bað Leif sérstaklega að ræða ekki slíkt ráðabrugg við
nokkurn rnann (Bjr Isl. 54), en Leifur var hrekklaus piltur.
Svo virðist sem foreldrar Leifs hafi ekki heldur haft mikla reynslu af
heiminum þegar hættur steðjuðu að. Þótt ýmsar blikur væru á lofti í
heimsmálum sumarið 1938 sendu þeir Leif til Oslóar á verslunarskóla,
en sjálfur hefði hann kosið að stunda nám í Verslunarskólanum í Reykja-
vík. Um mánaðarmótin ágúst-september 1939 voru foreldrar Leifs í
heimsókn hjá honum í Noregi, einmitt þegar heimsstyrjöldin skall á.
Þegar foreldrar hans fóru til Islands tóku þeir ekki son sinn með sér (Býr
20