Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2003, Page 201
„ALLRA LJ ÓÐRÆNASTA VIÐFANGSEFNIÐ"
svæði hreinsunareldsins. Frá henni er ættuð hugmyndin um afholdgaða,
himneska og eðlislausa listagyðju, sáttamey og engil sem brúar bilið til
handanheimsins og lætur í té þekkingu um hið óþekkjanlega, guðdóminn,
eða þjónar því hlutverki að aðstoða við flutning hinna hfandi í ríki
dauðra.36
Kraftaverkasögurnar um dauða hennar gera hugmyndina um að fjar-
vera líkamans tákni sigur yfir dauðanum að einu meginatriði. Marina
Warner bendir á að það sem gerði þennan atburð furðulegan var algjör
skortur á samtímaheimildum: „Hvergi lá fyrir vitneskja um gröf hennar
- enginn líkami til að tilbiðja, engir helgir dómar til að snerta ... hvarfið
á líkama Maríu ... varð innblástur frjósömustu hugleiðinga ... því að sjálft
tákn hreinleikans gat ekki úldnað í gröf sinni.“37 Helgisögnin um himna-
för Maríu segir að hún hafi verið endurlífguð strax eftir dauða sinn og
flutt til himna í föruneyti engla. Fyrsta og önnur greftrun renna saman
röklega og þar með er upplausn og tortíming líkamans fullkomlega snið-
gengin en af því leiðir að María er frá byrjun staðsett utan við „kvenlegt
svið“ efnislegs tíma og líkamlegrar rotnunar en færð inn á táknrænt,
„karlmannlegt“ svið eilífra óumbreyttra forma. Með því að jafiia kyn-
ferðislegum óhreinleika saman við nærveru dauðans í lifandi líkama og
einnig við líkamlega rotnun eftir dauðann, staðfesta kristnar kennisetn-
ingar efdrá, að hreinleiki líkama Maríu meyjar sé í mikilvægum skilningi
hreinleiki frá dauða. Andstætt því að mörk líkamans verða óskýr og taka
að blandast saman við annarleika kynferðis og dauða, verður goðsögnin
um Maríu mey eins konar geymslustaður fyrir hugarburð um varðveislu
heils og óskerts líkama og um einingu líkama og sálar.
Mynd hennar er mótefni við tvíbentu sári naflans sem hverju barni er
veitt við fæðingu. Hlutverk hennar er sömuleiðis að leysa upp hið tví-
eggja jaðartímabil sem skilur dauða frá upprisu. A þessu tímabili leysist
líkaminn upp í gröfinni en sálin skilur sig ffá honum til að leika hið
ókennilega hlutverk tvífarans. Sú Meyja sem talin er hrein verður göfg-
að dæmi um kristna þrá eftir óumbreytanlegri og fastri fullkomnun hvers
upprisins einstaklings.38 Rétt eins og kvengerving djöfullegs holds er efn-
isleg birtángarmynd annarleikans, konunnar sem dýrslegrar veru, er
36 James Hall (1974). Dictionary ofSubjects and Symbols in Art. London: John Murray.
37 Marina Wamer (1983). Alone of all her Sex. The Myth and the Cult of the Virgin Maty.
New York: Random House, bls. 82.
38 Marina Wamer (1983).
199