Þjóðlíf - 01.08.1991, Blaðsíða 11
bandalaginu í yfir 20% fylgi. Og í könnun-
um hefur einnig mátt lesa út að fylgið hafi
hrunið af Alþýðuflokknum vegna stjórn-
arþátttökunnar.
Innan þingflokksins eru greinilega vax-
andi efasemdir um þróun mála innan
stjórnarinnar. Þeir Össur Skarphéðins-
son þingflokksformaður og Gunnlaugur
Stefánsson Austfirðingagoði krata hafa
frá öndverðu haft miklar efasemdir um
samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn og þeir
hljóta nú að vera að leita leiða til fram-
haldslífs í pólitík. Varla hefur farið fram-
hjá nokkrum að þeir Stefánungar og
Hafnarfjarðarkratar hafa engst af póli-
tískri vanlíðan undir þessu samstarfi og
þessir menn hljóta að undirbúa framboð
gegn núverandi forystu Alþýðuflokksins
en flokksþing krata verður haldið næsta
haust. Þá verður kosin ný forysta.
Sl. vor var talað um vaxtafylleríið á rík-
isstjórninni og margir telja að það hafi
ekkert runnið af henni ennþá. Forsætis-
ráðherrann hefur haldið áfram að velta
síðustu ríkisstjórn upp úr „fortíðarvanda"
en minna fjallað um framtíðina. Með „for-
u'ðarvandanum" er átt við síðustu ríkis-
stjórn og jafnvel ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar. Með því hefur forsætisráðherrann
auðvitað líka ráðist gegn fyrrverandi og
núverandi ráðherrum Alþýðuflokksins og
ekki létt þessum mönnum róðurinn innan
síns flokks.
í heimi stjórnmálanna er gæfan fallvölt
og miskunnarleysið oft mikið. Staða Da-
víðs Oddssonar innan Sjálfstæðisflokksins
og í samfélaginu hefur veikst jafnt og þétt
að undanförnu. Samtímis hefur stjarna
Þorsteins Pálssonar hækkað á himni sjálf-
stæðismanna útum allt land. Vegur Jón-
anna í Alþýðuflokknum hefur á sama tíma
orðið þrengri í herbúðum krata og þeir eru
nú lentir í pólitísku öngstræti. Þeir hafa
límt sig upp að Davíðsarminum og hafa
ekki haslað sér sérstakan tilverugrundvöll
með ríkisstjórnarþátttökunni. Ekki hefur
klúðrið í þeim málaflokkum (álmál,
evrópska efnahagssvæðið) sem þeir eyrna-
merktu sjálfum sér í síðustu kosningabar-
áttu dregið úr andþrengslunum sem þeir
eiga við að etja í pólitíkinni, þó þeir þurft
sjálfir ekki að eiga „sök“ á því hvernig
þessi mál standa. En þetta hefur orðið til
þess að menn leita nú valkosta í Alþýðu-
flokknum og mæna þá margir til þeirra
bræðra Gunnlaugs og Guðmundar Árna
Stefánssona og Össurar Skarphéðinssonar
þingflokksformanns.
Þeir eru til sem telja Jón Baldvin þann
töframann (eins og reyndar einnig er sagt
um Davíð og Ólaf Ragnar) að hann geti
tekið enn einn kollhnís og aflað sér vin-
sælda meðal þjóðarinnar á ný með því að
setja á plötuna frá því í næst síðustu stjórn-
arskiptum. Hvað er ekki hægt í póló?
Að framansögðu má ljóst vera að
ríkisstjórnin stendur afar veikt að
vígi. í bakherbergjum flokkanna hefur
verið rætt um ríkisstjórnarskipti:
1) Að mynduð verði ríkisstjórn Fram-
sóknarflokks, Alþýðubandalags og Sjálf-
stæðisflokks (meirihluta þingflokks) eins
og áður var rakið með eins konar hall-
arbyltingu í Sjálfstæðisflokknum.
2) Að Alþýðuflokkurinn muni þrátt
fyrir þögnina íhuga að ganga til liðs við
stjórnarandstöðuna alla, þ.e. að mynduð
verði ríkisstjórn Framsóknarflokks, Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista á þeirri forsendu að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé ekki samstarfshæfur
vegna ágreinings. Það gæti hins vegar
strandað á stolti Jónanna í Alþýðuflokkn-
um sem þyrftu þá að loka hringnum í
útleggingum sínum á stjórnarmynstri;
þeir þyrftu nefnilega að upplýsa almenn-
ing öðru sinni um að Sjálfstæðisflokkur-
inn væri ósamstarfshæfur í ríkisstjórn! 3)
Reynt verði að hressa upp á ímynd ríkis-
stjórnarinnar með því að skipta um ráð-
herra, víxla sætum og fá nýja menn inní
stjórnina frá báðum flokkum. Samtímis
verði ráðuneytum skipt upp. Meðal Da-
víðsmanna er uppi áhugi á því að Ólafur
G. Einarsson fari úr stjórninni verði ekki
hægt að víkja Þorsteini sjálfum —og í stað-
inn komi Björn Bjarnason stuðningsmað-
ur Davíðs inn í stjórnina. Innan Alþýðu-
flokksins hefur verið rætt um að Jón Sig-
urðsson sé orðinn mæddur á pólitík og að
hann setjist í stól bankastjóra, en í staðinn
komi Össur Skarphéðinsson. En fæstir
hafa trú á að þessi leið gangi upp.
Fáir áhugamenn um stjórnmál spá rík-
isstjórninni langlífi. Sumir telja að hún lafi
fram á næsta haust. Á bakvið hana stendur
þverklofin fylking á þingi, sem ekki getur
komið sér saman um leið. Óvissan er því
ein sameiginleg með stjórnarliðum þegar
þeir óska þingi og þjóð gleðilegra jóla.
0
ÞJÓÐLÍF 11