Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 22

Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 22
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL eftir stríð og ég tala nú ekki um á árunum fyrir stríð en samt sem áður: þetta kerfi var í fullum gangi eftir að Beria var tekinn af. Og það þurfti ekki mikið til að vera dæmdur í 5 ár fyrir andsovéskan áróður: óvarkár ummæli. Það var vissara fyrir mann að fara varlega. — Jú, jú, það var talað um Stalín. Ég man eftir því að 7. nóvember 1954 var hengd utan á nýju byggingu háskólans risavaxin mynd af hinum látna leiðtoga, margir metrar á hæð — það var dúkur sem strengdur var yfir þrjár eða fjórar hæðir. Það var ekkert sem benti til annars en hann væri enn í guðatölu. Fyrir mann sem var þarna að hamast við að læra tungumál- ið var ekki hægt að greina neina stefnu- breytingu. Það var að vísu frægt að Mal- enkoff sem þá var aðalmaðurinn í ríkinu kvaðst styrkja léttaiðnað en það var kredda Flokksins að þungaiðnaður skyldi ganga fyrir en það þýddi í raun og veru að styrkja skyldi hergagnaiðnað. Maður varð fljótlega var við skortinn: stúdentar í há- skólanum voru einatt að skrapa saman mat og senda heim til sín: sykur, kaffi, ýmiss konar matur var ekki til þar en til í Moskvu— maður fékk fljótlega á tilfinn- inguna það sama og ég sá reyndar á leið minni frá Helsinki að úti um landið væri erfitt að halda bara í sér tórunni. En það að Moskva væri forréttindaborg, að þangað væri sópað varningi sama hvaða nafni hann nefndist og síðan fengi afgangurinn af landinu það sem eftir var: þetta frétti maður ekki fyrr en löngu síðar. Moskva hafði þessi forréttindi alla tíð — alveg þar til fyrir nokkrum árum. Ferðafrelsi var takmarkað, bændur njörvaðir niður í sam- yrkjubúum og máttu ekki ferðast út fyrir land samyrkjubúsins nema með því að fá sérstakt ferðaleyfi, stimplað í bak og fyrir af yfirmönnum samyrkjubúsins — en þetta vissi maður ekki fyrr en seint og um síðir. — Allir Sovétborgarar urðu að hafa sérstaka vinnubók um það hvernig þeir höfðu hagað sér á vinnustað. Ymislegt af þessum toga tilheyrði þjóðlífinu. Að sjálf- sögðu var vonlaust að leita að upplýsing- um um slíkt í blöðum og bókum og þessi mynd sem þannig varð smám saman til fyrir tilviljanir var mynd af einhverju öm- urlegasta þjóðlífi sem hægt var að hugsa sér. Ég fékk bráða lungnabólgu í báðum lungum haustið 1956 og var meðvitundar- laus í nokkra sólarhringa. Penisilín var bannað, þótti burgeisalegt og spítalinn var frá 17. öld. Ég var þarna á stofu með tveimur atvinnusjúklingum sem voru ágætir og þetta var líkast til einn af fáum stöðum í landinu þar sem var hægt að tala opinskátt um hlutina. En eina lækninga- aðferðin við lungnabólgu var sú að skella glerskálum sem brugðið var yfir gasloga á húðina — þannig átti að draga blóð út í húðina. Mér skilst að þetta hafi verið not- að fyrr á öldum á vestrænum sjúkrahúsum og ku vera aðferð sem dugar vel til að draga blóð út í húðina — en skiptir litlu máli í því að lækna lungnabólgu... — Ég var í Sovétríkjunum til 1959, fór burt í júlí það ár. En eftir fyrsta árið var ég eiginlega alveg búinn að fá nóg, staðráðinn í að nota fyrsta tækifæri til að komast burt. Það var bara peningaleysið sem hélt í mig. Ég hefði svo sem komist út úr landinu en ef ég hefði viljað skrá mig í þýskan eða enskan háskóla hefði ég þurft að eiga eitt- hvað fyrir uppihaldi. Það átti ég ekki. Ég var í þeirri stöðu að ég komst hvergi. Og á endanum hugsaði ég sem svo: fyrst ég er kominn hingað er best að drekka þennan bikar til botns. Við Árni vorum þarna í tvö ár einu vestur-evrópsku stúdentarnir og það var ekki fyrr en 1956 að það komu stúdentar frá Ítalíu og Bandaríkjunum. Ég vissi nú að á endanum yrði þetta sér- stök reynsla og ég hélt að íslenska ríkið myndi kannski vilja nýta sér þá reynslu Árni Bergmann og Arnór íMoskvu. Þeir héldu tíl Moskvu árið 1954 og urðu fyrstír Islendinga og Vesturlandabúa tíl að nema við háskólann þar í borg. 22 ÞJÓÐLÍF
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.