Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 31

Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 31
Jitka Sonkova: „Byltingin var kölluð flauelsbyiting af þvíað hún fór svo friðsamlega fram en andrúmsloftið hér núna minnir lítið á flauel.“ Og þetta snertir kjarna málsins. Það eru liðin rúmlega 40 ár síðan kommúnistar tóku völdin í Tékkóslóvakíu og í nútíman- um eru 40 ár mjög langur tími. Atvinnulíf í landinu byggist fyrst og fremst á iðnaði en tékkneskar iðnaðarvörur eins og þær voru á dögum kommúnismans eru hvergi seljanlegar fyrir vestrænan gjaldeyri. En hans þarfnast Tékkar fyrst og fremst. Verksmiðjur loka, atvinnuleysi eykst og þar á ofan hefur fólk aldrei almennilega kynnst því að þurfa að hugsa sjálfstætt, t.d. í sambandi við að skapa sér atvinnu. Það vakti athygli mína í Prag að ákveðið vandamál í sambandi við veitingahús hafði einkennilega lítið breyst. Það gat verið mjög erfitt fyrir tveimur árum að fá borð á veitingahúsi þrátt fyrir að þau væru kannski bara hálfsetin því þjónarnir uppá- stóðu að allt væri fullt, að þeir ættu von á hóp eftir korter o.s.frv.. Það lærðist hins vegar smám saman að þetta var tómur fyrirsláttur, hins vegar voru menn ekkert að vinna meira en nauðsyn krafði enda báru þeir ekkert meira úr býtum. Nú hélt ég að veitingahús væru að mestu komin í einkaeigu og allir æstir í að vinna en svo reyndist ekki vera, þrátt fyrir að í borg eins og Prag ættu menn að sjá framtíð í veitingahúsarekstri og ákveðna möguleika á að eignast peninga. Þetta seg- ir kannski einkum þá sögu að það tekur tíma að breyta hugsunarhætti fólks og kenna því nýja siði, jafnvel þótt að um sé að ræða atriði sem okkur Vesturlandabú- um finnast jafn sjálfsögð og þetta. Lidmila Nemcova kennir við Við- skiptaháskólann í Prag. Hún talar ensku, frönsku og þýsku og hefur búið í Frakk- landi um tíma. Lidmila segir að því miður hafi fólk alltof barnalegar hugmyndir um líf í þjóðfélagi lýðræðis og markaðskerfis. „Fólk heldur í fyrsta lagi að í markaðskerfi sé auðvelt að verða ríkur og í öðru lagi að það muni halda þeim jákvæðu þáttum sem voru á tímum kommúnismans eins og t.d. lágu verði á matvörum og almenningssam- göngum. Raunveruleikinn mun hins veg- ar renna upp fyrir því innan skamms tíma, t.d. í formi atvinnuleysis og dýrtíðar og það er mjög mikilvægt að við búum okkur undir það. Annars eigum við á hættu að gífurleg óánægja brjótist út á meðal fólks og að það kjósi kommúnista aftur til valda. Við þurfum að endurmennta fólk og end- urhæfa og við þurfum ekki síst að koma á öflugu félagsmálakerfi. Það eru margir sem munu verða undir og því er fólk alls ekki farið að gera sér grein fyrir. í raun- inni er byltingin fyrir ungu kynslóðina, fyrir þá eldri er hún að mörgu leyti mjög grimm.“ g svo virðist sem almenningur eigi alllangt í land með að átta sig á þeim lögmálum sem gilda í þjóðfélagi markaðs- kerfisins og ekki síður því að þjóðfélög þar sem slíkt kerfi ræður ríkjum eru ekki öll eins og greinir aukinheldur á um ýmislegt. Ég spyr kunningja minn sem er ágætlega menntaður um hvaða fyrirmynd menn hugsi sér og hversu langt eigi að ganga í einkavæðingu t.d.. Hann hafði ekki velt svo mjög fyrir sér stefnu stjórnarinnar í þeim efnum og hafði lítið leitt hugann að þessu sjálfur. Andrúmsloftið virðist ekki mikið snúast um að móta eigin afstöðu og stefnu í málum sem varða framtíðarþjóð- félagið á gagnrýnin hátt en það kann að einhverju leyti að stafa af því að menn eru enn að átta sig. Reynsla mín staðfestir einnig þá stað- hæfingu Lidmilu Nemcovu að Tékkar eigi talsvert langt í land með að gera sér grein fyrir veruleikanum á Vesturlönd- um. Og það sem kannski er öllu verra: margir virðast alls ekki vilja gera sér grein fyrir honum. Það er að vissu leyti alveg skiljanlegt. í 40 ár, á tímum alls kyns nið- urlægingar, hefur fólkið átt sér drauma- mynd, þ.e. Vesturlönd. Heimsmyndin hefur verið svört og hvít, austrið og vestr- ið. Það er ekki að furða að það sé sárt að gera sér grein fyrir því, nú þegar tjaldið er opinberlega fallið, að það sem bíður er vinna og aftur vinna, að ákveðnir hlutir sem hingað til hafa verið sjálfsagðir munu tapast og að fáir munu verða ríkir. Tékkar eiga sér margar hefðir. Þeir eiga mikla tónlistarhefð, (Smetana, Dvorak og Janacek voru allir tékkneskir), þeir brugga besta bjór í heimi, þeir eiga sér hefð í kvikmyndagerð og eru frægir fyrir ÞJÓÐLÍF 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.