Þjóðlíf - 01.08.1991, Qupperneq 65
MENNING
ÆVISÖGUR
Mikil gróska er í útgáfu ævisagna fyrir
þessi jól. Meðal viðalmeiri verka af þeim
toga er ævisaga Kristjáns Eldjárns for-
seta og þjóðminjavarðar. Við ritun sög-
unnar er stuðst við dagbækur Kristjáns
og munnlegar frásagnir samferðamanna
auk annars. „Hér er dregin ujpp áhrifa-
mikil mynd af alþýðumanni og heims-
borgara, manni sem ekki sá neina þver-
sögn í því fólgna að hlúa að arfi norð-
lenskra formæðra sinna og forfeðra um
leið og han tileinkaði sér það dýrmætasta
í menningu erlendra þjóða“, segir í bók-
arkynningu.
Gylfí Gröndal skrifar söguna, en hann
hefur verið mikilvirkastur Islendinga í rit-
un ævisagna. Ævisaga Kristjáns er viða-
mesta verk hans til þessa og það er Forlag-
ið sem gefur bókina út.
Forlagið gefur einnig út ævisögu Jónas-
ar Jónassonar útvarpsmanns með meiru.
Svanhildur Konráðsdóttir skráði söguna,
en á bókakápu segir m.a. „Þar segir hann
hispurslaust frá lífi sínu og samtímafólki
og slær til skiptis á blíða og stríða strengi.
En við hvert fótmál vofir lífsháskinn yfir,
lífsháski þess manns sem leitast viða að
horfast í augu við sjálfan sig og ljá lífi sínu
merkingu.“ Minningar Jónasar bera ein-
mitt nafnið Lífsháskinn.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir alþingis-
maður skráði sögu Sigurveigar Guð-
mundsdóttur kennara í Hafnarfirði, en
Sigurveig veiktist kornung af berklum og
gerðist kaþólikki. „Bókin er í listileg lýs-
ing á tíðaranda og ómetanlegt framlag til
sögu tuttugustu aldarinnar. í henni má
lesa um örlög og hugmyndir þeirrar kyns-
lóðar sem fullorðnaðist á árunum milli
heimsstyrjaldanna tveggja. Saga Sigur-
vegiar er skemmtileg og vekur lesananum
bjartsýni. Sigurveig hefur ætíð treyst á
sannfæringu sína og ævi hennar er dæmi
um það hvernig óbilandi trú á lífið og
fegurð þess getur lyft manneskjunni upp
yfir erfiðar aðstæður, mótlæti og efasemd-
ir um tilgang sinn í tilverunni“, segir í
kynningu bókarinnar.
Bókaútgáfa Fróða gefur út ævisögu Er-
lendar Einarssonar í SIS sem er skráð af
Kjartani Stefánssyni blaðamanni. Hann
hefur áður með góðum árangri skrifað
ævisögu, Með viljann að vopni, ævisögu
Guðmundar í Víði sem kom út árið 1983.
Erlendur komst ungur til æðstu metorða í
einu mesta efnahagsveldi Islendinga á
þessari öld og stýrði Sambandinu í aldar-
fjórðung. Saga hans og sjónarhóll er því
afar forvitnileg fyrir áhugamenn um at-
vinnulíf, þjóðmál og persónusögu.
Þá gefur Fróði einnig út ævisögu Sig-
urðar Olafssonar söngvara og hesta-
manns, sem Ragnheiður Davíðsdóttir
færði í letur. Omar Ragnarsson sá fjöl-
hæfi og afkastamikli fréttamaður og fjöll-
istamaður hefur skráð bernskuminningar
sínar sem sama bókaforlag gefur út. Og
ekki má gleyma I sviptivindum, en það
eru æviminningar Sigurðar Helgasonar
Flugleiðafrömuðar. Bók hans hefur þegar
valdið fjaðrafoki og á eftir að verða drjúg í
umræðunni. Steinar J. Lúðvíksson
skráði söguna.
Meðal annarra umtalsverðra ævisagna
er Lífróður Arna Tryggvason-
ar. Ingólfur Margeirsson
skráði en Örn og Örlygur gefa
út. Þráinn Bertelsson skrifaði
sögu Ladda en bókaútgáfan Líf
og Saga gefur út. Og ekki má
gleyma ævisögu Jónasar Jóns-
sonar frá Hrilfu sem Guðjón
Friðriksson skrifaði.
Nokkrar bækur vantar í
þessa upptalningu en nánar
verður fjallað um sumar þessara
ævisagna síðar í Þjóðlífi. (>
Blómleg útgáfa lióðabóka
JÓN ÖZUR SNORRASON
Óhætt er að fullyrða að fjöldi útgefinna
ljóðabóka í ár veki nokkra athygli því
hingað til hefur ljóðabókaútgáfa ekki
talist til arðbærra útgáfuverkefna og
höfundar sjálfir oftsinnis gefið út sínar
bækur. Hér virðist vera jákvæð breyt-
ing á ferðinni.
Frá Máli og menningu koma út sjö
ljóðabækur: Ljóðaþýðingar úr belgísku
eftir Anton Helga Jónsson, Ljóðasafn
Ingibjargar Haraldsdóttur, Jarðmunir
eftir Hannes Sigfússon, Vetraráform
um sumarferðalag eftir Gyrði Elíasson,
Ég man ekki eitthvað um skýin eftir
Sjón, Ljóð eftir Margréti Lóu Jóns-
dóttur og 27 herbergi sem inniheldur
prósaljóð og myndir eftir Rögnu Sigurð-
ardóttur.
Frá Iðunni koma út fimm ljóðabækur:
Stund og staðir eftir Hannes Pétursson
sem er endurútgefin, Fuglar og annað
fólk eftir Matthías Johannessen, Kúa-
skítur og norðurljós eftir Steinunni Sig-
urðardóttur, Felustaður tímans eftir
Sveinbjöm I. Baldvinsson og Lendar
elskhugans eftir Vigdísi Grímsdóttur.
Frá Forlaginu koma út fimm ljóðabæk-
ur: Ansjósur eftir Braga Ólafsson,
Fuglar eftir Þórunni Valdimarsdóttur
og þrjár ljóðabækur eftir Þórarin Eld-
járn sem nefnast Hin háfleyga mold-
varpa, Ort og Óðfluga sem er ljóðabók
fyrir börn og myndskreytt af Sigrúnu
Eldjárn. Frá Hörpuútgáfunni koma út
tvær Ijóðabækur, Kór stundaglasanna
eftir Friðrik Guðna Þorleifsson og
Borgfirðingaljóð sem er safn ljóða eftir
120 borgfisk ljóðskáld.
Frá Vöku Helgafelli koma út fjórar
ljóðabækur: Heildarútgáfa á ljóðum eft-
ir Stein Steinarr, í skugga lárviðar, ljóð
Hórasar “
í þýðingu Helga Hálfdánarsonar,
Sonnettusveigur eftir Gunnar Gunn-
arsson og Ilmur af draumi eftir Gunnar
Gunnlaugsson. Frá Fjölva-Vasa koma
einnig út fjórar ljóðabækur: Viskustykki
eftir Sverri Stormsker, Innhöf eftir
Pjetur Hafstein Lárusson, Línur í lófa
eftir Þóru Jónsdóttur og Ber er hver...
eftir Jónas Friðgeir. Frá Menningar-
sjóði koma út tvær ljóðabækur: Sólarljóð
í útgáfu Njarðar P. Njarðvík og Undir
Parísarhimni, safn franskra ljóða í þýð-
ingu Jóns Óskars.
0
ÞJÓÐLÍF 65