Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 68

Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 68
ÞessiIjósmynd ertalin elsta portretljósmyndá Norðurlöndum. Myndin erafBertel Thorvaldsen árið 1840 og tekin af frönskum ljósmyndara, Neubourg að nafni. Listamaðurinn myndar horn- merki með íingrunum til að „verjast hinu illa auga“ myndavélarinnar. sagðist hann hafa nóg og bar sig vel, en skorturinn leyndi sér ekki, hvar sem til var litið í herbergi hans. Enda gægist nú fram í bréfum hans, að laun hans fyrir kennslu (annað hefur hann ekki) ná stundum ekki $10.00 um vikuna, — mér skilst helst að þau séu stundum mikið minni, og úr þessu má búast við, að las- leiki geri honum ómögulegt að starfa. Hvað þá? Ég hefi stundum verið að velta þessu fyrir mér, en veit engin ráð til bjarg- ar, því gamli maðurinn er bæði stór og tilfinningaríkur“. Stephan G. kvað sárt að vita til þessa. „Honum yrði líklega ekki hjálpað sem hversdagsmanni, þó tök væru til. Hann er ættgóður og hefir með höfðingjum verið, hann gæti því aldrei á hreppinn farið, uppistandandi. Vissi maður af vini hans, þar sem hann er nú, sem væri svo laginn og honum viljaður að líta eftir honum, bægja frá honum beinum skorti og áhyggj- um, án þess að karl kæmist í grunsemd um að vera gustukakind, þá er ekki víst, að um hann yrði betur búið. Hugsa mætti sér og hitt, vildu einhverjir landar hér hlynna að honum, án þess á bæri og hann yrði var: Borga honum í orði kveðnu fyrir eitthvert handrit, ef hann ætti og mögulegt er við hann að tæta um verð. Þá væri hann ekki að þiggja gjöf og kaupendum engin eftir- spurn, hvað útgengilegt væri, ef svo stæði á. En ég veit, hvað Island ætti að gera: Bjóða honum kennarastöðu við nýja há- skólann, þessum víðförla fræðimanna öld- ung sínum og samtímamanni Jóns Sig- urðssonar. Ég sé ekki, að höfðingjaskap Gunnlögsen gæti þykkst af því, miklu heldur hugnast það, jafnvel þó hann líti smáum augum á allt íslenskt og gæti hvorki né vildi þiggja." Stephan sagðist vita að háskólinn væri einungis vísir að æðri menntastofnun en um þetta leyti var verið að stofna skólann. Bertel Högni væri „sanskrítungur“ eða samanburðarmálfræðingur. Annars væri það ekki kennslan sem hann væri að hugsa um heldur sæmdarverk fyrir þjóðina sem henni væri lítil útlát í eins og á stæði um aldur. En Stephan G. er sjálfur ekki bjart- sýnn á úrslit slíkrar bónar. „Líklega ónytjaverk að skrifa um það heim. Öll sæti líklega fyrirfram veðsett. Gunnlögsen í þjóðtrúnni sérvitur, kaþólskur, drykk- felldur o.s.frv. Ogþóhefði verið gaman að stinga upp á því, hefði maður vitað veginn og manninn, sem til mætti tala“. Eggert brást vel við hugmynd Stephans og segir frá í bréfi fjórða júlí: „Jæja, ég dubbaði upp mjög ísmeygilega sögu handa Gunlögsson gamla, út af tillögu þinni, sem mér leist mjög vel á. Og nú fyrir viku svaraði karl. En þar fljótt yfir sögu farið, að fyrir enga peninga mundi hann vilja koma nærri háskólanum á ís- landi. Karlauminginn er svo einrænn og stífur og ómannblendinn, að það er ómögulegt að gera honum greiða, — bara spjalla við hann um daginn og veginn, og það ætla ég að gera, enda bréf hans tilkom- umikil, þó einkennileg séu þau og skoðan- ir^hans á sumu hófleysislega frekar.“ bréfunum kemur einnig fram að Norð- menn vestra hafi litið á Bertel með vin- áttuþeli. Haft er eftir norskum ritstjóra að norskum vinum Bertels myndi veitast létt að liðssinna gamla manninum ef hann ein- ungis vildi og stoltið meinaði honum það ekki. Þessi annmarki kom í veg fyrir að hann kæmist vel af. Sjálfur hafði ritstjór- inn gengið til Bertels að haustlagi, þegar hann vissi Bertel klæðafáan. Norðmaður- inn hafði borið hlýja yfirhöfn yst fata en tekið hana af sér inni hjá karli og sætt færis á að láta hana liggja eftir þegar hann fór heim. Þannig hafði Bertel getað notað hana þar sem hending réði og gleymska . Svo þegar Bertel hafði haft samband og viljað skila yfirhöfninni, þá hafði Norð- maðurinn harmað gleymsku sína, en nú væri allt um seinan því hann hefði orðið sér úti um nýja yfirhöfn og hefði ekkert við þessa að gera. Svona brögð kvað hann einu vopnin sem bitu á skyrtuleysi hins gamla Högna. Og Stephan G. segir eftir að hafa rakið þessa frásögn: „Maður þarf að vera bæði vænn maður og kænn til að skipta við svona skap. Engin smámenni eiga vit til að virða það, og því síður kænsku til að komast kringum það.“ Einsemd Bertels ágerðist heldur með tímanum þrátt fyrir viðleitni landa hans. Tveimur árum síðar segir Stephan G. frá því að hann hafi verið á ferð í nágrenni við Bertel en treysti sér ekki til að sjá hann og finna, því hann hefði heyrt að gamli mað- urinn væri svo elliær orðinn og þver að hann meinaði kunningjum sínum að koma til sín. ertel er svo lýst að hafa verið ívið meira en meðalmaður á hæð, grann- vaxinn og holdskarpur. Beinvaxinn en elli og þreyta farin að beygja herðarnar á síðari árum. Hann var iðandi af fjöri, að vísu óstyrkur í höndunum en það þótti órækur vottur um fjör og viðkvæmni. Síðasta sumarið sem hann lifði vann hann að því að þýða þunga þýska bók á ensku fyrir bandarískan blaðamann. Hann dó eins og áður sagði 30. janúar 1918 í hálfgerðri ör- birgð, — ólíkt nafna sínum. Það var líka sagt að þeir nafnarnir hefðu verið líkari um gjörvuleik en gæfu. 0 Heimildir: Bertel Gunnlögsson: Islensk end- urminning um Bertel Thorvaldsen. Helgafell des.1943. íslenskar æviskrár. Páll Eggert Ólason. Benedikt Griindal: Dægradvöl, Mál ogmenn- ing, 1965. Eggert Jóhannsson: Bréf til Stephans G. Step- hanssonar 1. bindi. Menningarsjóður 1971. Stephan G. Stephansson. Bréf og ritgerðir. l.,2. Þjóðvinafélagið, Gutenberg 1939. Eggert Jóhannsson Islenskur fræðimaður. Lögberg. Winnipeg/Manitoba 14.feb.1918. 68 ÞJÓÐLÍF
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.