Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 71

Þjóðlíf - 01.08.1991, Síða 71
en það yrði íslandsmet hvað lengd varðar og eflaust stysti tími sem um getur við gerð á kvikmynd í fullri lengd. Reynt var að fara nýjar leiðir við fjár- mögnun og myndin gerð á mjög ódýran hátt en þó ekki billegan. Stefnt er að því að Veggfóður verði tilbúin til sýningar í kvik- myndahúsi í Reykjavík fyrir næsta sumar. 0 Leikstjórinn Júlíus Kemp (með sólgleraugu) og kvikmyndatökumaðurinn Jón Kari Helgasson spá í næsta skot. Veggfóður er tekin á Aaton 16mm tökuvél. STJÖRNUR Börn náttúrunnar - *** vikmyndin Börn náttúrunnar er í senn látlaus og einlæg og hefur leikstjóranum Friðriki Þór Friðrikssyni tekist að skapa sjónræna frásögn byggða á einföldu og góðu handriti. Myndin fjallar um elli og leit að æsku, um leiðangur tveggja aldraðra æskuvina sem „flýja“ af elliheimili í höfuðborginni til að fara á æskuslóðir og upphfa á ný náttúruna og umhverfið sem þau ólust upp í. Það eru þau Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín sem fara með aðalhlut- verkin tvö en þau eru eins og sniðin fyrir þessa leikara. Samleikur þeirra er sann- færandi og persónusköpunin góð. Aðrir leikarar standa sig einnig vel en þáttur þeirra í myndinni er lítill og ómerkilegur í samanburði við ferðafélagana sem við fylgjumst með vestur á firði. Fyrsti kaflinn í myndinni sem gerist í Reykjavík og á elliheimilinu er hægur og þungur, dauð birta og líflausir litir. I fyrstu er þetta leiðigjarnt og pirrandi en væntanlega gert að ásettu ráði til að skapa rétta andrúmsloftið og til að und- irstrika þá vonleysistilfmningu sem söguhetjurnar upplifa á elliheimilinu. Þegar ferðalagið hefst breytist allt. Um- hverfið öðlast eigið líf og tilfmningin fyrir því að náttúran sé í raun og veru lifandi afl verður sterkari eftir því sem nær dregur áfangastað. Kvikmyndataka, tónlist og hin íslenska náttúra spila saman og vekja þær kenndir hjá áhorfandanum að hann hrífst með börnum náttúrunnar á ferða- lagi þeirra. í þessari litlu mynd slær stórt hjarta og hún er svo sannarlega rós í hnappagat ís- lenskrar kvikmyndagerðar. Sýnd í Stjörnubíó. Eldhugar (Backdraft) - *** Leikstjórinn Ron Howard sem áður hefur leikstýrt myndum eins og Willow og Parenthood fæst hér við eldfimt efni. Það segir frá slökkviliðsmönnum í Chicago sem berjast við eld en hann er fyrir þeim lifandi afl. Það er ekki nóg með að þeir þurfi að hætta lífi og limum við að slökkva elda sem kvikna af eðlilegum kringumstæðum heldur gengur einnig morðingi laus sem snöggsteikir fórnar- lömb sín með „backdraft" aðferðinni. í myndinni Eldhugar ægir saman úr- valsleikurum sem ættu að hafa getað hald- ið myndinni uppi á nöfnunum einum sam- an. En það gildir það sama með þessa mynd eins og allar aðrar: það er ekki hægt að gera góða mynd úr lélegu handr- iti. Söguþráðurinn í Eldhugum er svo götóttur að hann er nánast enginn og frábærir leikarar eins og Robert DeNiro sem leikur rannsóknarmann og Donald Sutherland sem leikur brunavarg, rembast við að skapa sannfærandi og at- hyglisverðar persónur sem ekki eru í handritinu. Kurt Russel er eini eftir- minnilegi karakterinn í allri myndinni enda hæfir hlutverkið honum mjög vel. Það sem gerir myndina hinsvegar ein- stæða eru áhættuatriðin en þau eru engu lík. Það er hreint ótrúlegt hve fegurð og eyðingarmáttur elds er vel sýndur í myndinni og einnig það að áhættuleikar- arnir séu enn á lífi eftir sum atriði. Þegar kviknar í efnaverksmiðju standa leikar- arnir inni í miðjum sprengingunum og hlaupa í gegnum elda sem gera áramóta- brennur sambærilegar við eld á eld- spýtu. Að þessum atriðum er frábærlega vel staðið og hefði mátt vera meira af þeim en minna af formúlukenndum sög- uþræði. Sýnd í Laugarásbíó. Dignus ÞJÓÐLÍF 71
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.