Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
Ljósið í myrkrinu Forsíðugrein
Rúbín kaffi er unnið úr
völdum hágæða kaffibaunum
frá hásléttum þekktustu
kaffisvæða heims, Kólumbíu,
Brasilíu, Kosta Ríka,
Mið-Ameríku og Afríku.
við fyrsta hanagal!
i í i
Svava Johansen, eigandi NTC:
Fátt er svo
með öllu illt
Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Við erum að
fara í gegnum verstu kreppu sem við höfum upplifað;
gerum ekki lítið úr því. En það er margt jákvætt í stöð-
unni. Gengi krónunnar hefur styrkst og ég held að gjald-
eyrishöftin verði áfram vegna efiðra gengismála. Þrátt
fyrir hrunið hafa birgjar erlendis sýnt okkur Íslendingum
mikið traust og við höfum náð að sýna þeim að við
siglum í rétta átt. Glatað traust hefur unnist til baka.
Atvinnulífið hefur náð að greiða fyrir innfluttar vörur þrátt
fyrir bankahrunið.
Vöruskiptajöfnuðurinn er jákvæður fimmta mánuðinn
í röð og það er byrjunin á uppbyggingu gjaldeyrisforðans
og getu til að greiða af erlendum skuldum. Verðbólgan
er að hjaðna. Það að vísitala neysluverðs lækki á milli
mánaða kemur sér vel fyrir skuldug heimili og fyrirtæki.
Lítið má þó út af bregða vegna gengis krónunnar. Ég
trúi því að stýrivextir lækki mjög hratt á næstu mán-
uðum og verði komnir í um 8% í árslok.
Fólkið í landinu er okkar helsta auðlind. Þetta
er undir okkur sjálfum komið. Rétt hugarfar og góð
menntun fleytir okkur í gegnum þetta. Vinnumarkaðurinn
er sveigjanlegur. Það er margt jákvætt að gerast í
íslenskum hugbúnaði og hönnun. Það er að komast
aftur í tísku að kaupa íslenska hönnun í húsmunum
jafnt sem fatnaði. Íslenskt já, takk, skipar núna verðugri
sess.
Hinar dýrmætu náttúruauðlindir gefa okkur sam-
keppnisforskot. Orkan og fiskimiðin eru örugglega verð-
mætari en við gerum okkur grein fyrir. Náttúran laðar að
erlenda ferðamenn. Það eru tækifæri.
Breytt hugarfar og ný gildi eru líklegast stóri lærdóm-
urinn af þessum hremmingum. Fólk kann betur að meta
það sem það fær út úr lífinu. Fjölskyldu- og vinasam-
bönd vega þyngra og fleiri leggja upp úr því að rækta
sinn innri mann. Hraðinn var orðinn of mikill og margt
var orðið allt of sjálfsagt. Ég finn sjálf fyrir meiri gleði
yfir öllum sigrum, hversu litlir sem þeir eru. Ég vona að
svo sé um fleiri. Þetta eru hremmingar en fátt er svo
með öllu illt.
Svava Johansen.