Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 47

Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 47
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 47 aðila. Tal óskaði eftir samningi við tvo aðila með vísan til breyttra forsenda hjá Tali vegna breyttra reglna hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Í samningnum við Símann var gerður fyrirvari um að Tal takist með samningum við Vodafone að losna undan þessum ákvæðum, sem var mjög mikilvægt.“ segir forstjórann hafa unnið framhjá stjórninni Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis og Tals, segir að forstjórinn hafi leynt stjórnina upplýsingum. Hún segir að sem stjórnarformaður gæti hún alls ekki unnið með forstjóra sem færi á bak við sig og ætlaði ekki að virða gerða samninga. „Forstjórinn samdi við Símann þótt Tal sé með fimm ára samning við Vodafone. Nú er Tal með samninga við tvö fyrirtæki sem bæði hóta málsókn. Að mínu mati er greinilega unnið gegn hagsmunum meirihluta eig- enda,“ segir hún. Hún bætir ennfremur við að fulltrúar Teymis í stjórn Tals hafi ekki samþykkt fundargerðina sem unnin hafi verið eftir forskrift Her- manns. Fulltrúar Teymis hafi talið að forstjórinn væri að leysa málið á grundvelli samningsins sem í gildi væri við Vodafone. Hermann segir vanda Tals hafa falist í því að samkvæmt ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar um viðmiðunartilboð Símans um reiki hafi Tali ekki lengur staðið til boða að vera með reikisamning við Símann. Vodafone hafi ekki eigið kerfi á Austurlandi heldur reiki- samning við Símann sem ekki megi selja Tali aðgang að á meðan Tal sé með samning við Vodafone. Eina færa leiðin til þess að tryggja við- skiptavinum Tals áframhaldandi GSM-samband hafi verið að semja við Símann. Þórdís vísar þessu á bug í fjölmiðlum. Hún bendir á að Tal hafi verið með gildan samning sem gerður hafði verið með fullkomlega löglegum hætti og augljóslega hafi forstjóranum ekki verið heimilt að svíkja þann samning. „Það er rangt hjá Hermanni að samningurinn við Símann hafi verið eina færa leiðin til að tryggja þjónustu við við- skiptavini Tals. Félagið samdi við Símann um þjónustu á reiki um allt land. Aðalatriði málsins er hins vegar að með gjörningnum braut Tal samninga sem þegar voru í gildi og forstjórinn fór á bak við meiri- hlutaeigendur félagsins sem höfðu enga vitneskju um hvað var um að vera. Það er kjarni málsins og slíkur trúnaðarbrestur hlýtur að verða til þess að leiðir skilja,“ segir hún. Hermann segir hins vegar að sú leið sem Þórdís nefnir hafi verið ótæk þar sem hún hefði í för með sér að Tal framseldi til Vodafone númeraseríur félagsins og þá væri Tal orðið eins og hver önnur áskriftarleið hjá Vodafone, auk þess sem sú leið bryti gegn samruna- ákvörðun frá 26. júní 2008. nýr forstjóri ráðinn Þórdís segir að meirihluti stjórnar Teymis hafi tekið ákvörðun um það að segja Hermanni upp störfum. „Uppsögn forstjórans var því miður óumflýjanleg í ljósi þess sem gerst hafði. Meirihlutaeigendur báru ekki traust til hans lengur og þar við sat,“ segir hún. Ragnhildur Ágústsdóttir var ráðinn forstjóri Tals en hún var áður framkvæmda- stjóri Sko, sem var í eigu Teymis. Jóhann Óli Guðmundsson telur þá ákvörðun að segja forstjór- anum upp ólögmæta og ekki í samræmi við samþykktir félagsins. „Hermann hefur staðið sig afar vel í starfi og ætíð gætt hagsmuna Tals,“ segir Jóhann Óli og bætir við að kippt hafi verið í spotta og fulltrúar Teymis kosið að gæta frekar hagsmuna Vodafone en hluthafa og viðskiptavina Tals. „Samkvæmt Hermanni hafði Vodafone hins vegar ekki komið með aðra lausn á málinu en að Tal afsalaði sér númeraseríum sínum til Vodafone og yrði þannig eins konar áskriftarborð fyrir Vodafone en ekki sjálfstætt félag á samkeppnismarkaði,“ segir Jóhann Óli. Hann segir ennfremur að tilboð Símans hafi verið afar hagstætt fyrir Tal og það hafi m.a. tryggt Tali betri taxtakjör en Vodafone hafði boðið. Það hafi auk þess tryggt fullkomið sjálfstæði Tals á íslenskum samkeppnismarkaði og óheft leyfi til að eiga frjáls og óháð viðskipti við aðra aðila en Símann á sama tíma. Jóhann Óli segir að Vodafone hafi gert kröfur um hið gagnstæða. Stjórn Teymis er á öðru máli og sakar minnihlutaeigendur um rangfærslur. líklega vegið að samkeppnislegu sjálfstæði tals Samkeppniseftirlitið kom að málinu og lýsti ákvæði í samningi Tals og Vodafone um aðgang að farsímaneti Vodafone ógild á þeim grundvelli að þau séu andstæð ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og ákvæði samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að Teymi, Vodafone og Tal hafi sennilega brotið gegn ákvörðun Samkeppnis- Höfuðstöðvar Tals við Suðurlandsbraut.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.