Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 55
Almenningur fékk að velja auglýsingaherferð og fór sú vinna
fram í samvinnu við www.mbl.is. Fyrir valinu varð Gull, auglýs-
ingaherferð sem Fíton vann fyrir Vodafone.
Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fítons, segir að fyrst
og fremst hafi hugmyndin verið að koma nýrri vöru á markaðinn:
„Við vorum alltaf með í huga auglýsingaherferð sem væri sölu-
vænleg en einnig skemmtileg og að sameina þessi tvö áherslu-
atriði á farsælan hátt og ég held að það hafi tekist, sem sannast
kannski best á að almenningur valdi Gullið sem bestu auglýs-
ingaherferðina og fyrir auglýsingastofu er það einhver besta
staðfesting á að vel hafi tekist til. Auglýsingaherferðinni var
aðallega beint að heimilunum og koma þeim skilaboðum inn á
heimilin að varan myndi lækka símakostnaðinn.
Í auglýsingunum vorum við með stóra og ýkta hluti til að
Pétur Jóhann Sigfússon, sem lék stórt hlutverk, hefði eitthvað
til að leika sér með og um leið að leggja áherslu á, t.d. með
stórum síma, stóran sparnað. Það skaðar ekki að Pétur Jóhann
er mjög vinsæll meðal fólks og vinsældir hans hjálpuðu tvímæla-
laust við að vekja athygli á vörunni.“
Ragnar segir að Gull auglýsingaherferðin hafi verið mjög
umfangsmikil og undirtektirnar verið frábærar: „Við keyrðum
af fullum krafti í sjónvarpi og blöðum, á Netinu og gerðum
einnig mikið af útvarpsauglýsingum og ákváðum að nýta flesta
þá miðla sem í boði eru og herferðin hefur skilað sér. Þegar við
fórum af stað með Gullið var kreppan að skella á og við vorum
dálítið tvístígandi í upphafi hvað við ættum að gera en ákváðum
að halda okkar striki og ég held að það hafi haft mikil áhrif að
við vorum með skemmtileg og lifandi skilaboð, sem ekki veitti
af í öllum drunganum og þau hittu í mark. Margir voru komnir
á það stig að reyna að spara við sig, hagræða og skera niður
og féllu auglýsingarnar vel í kramið hjá þeim. Til dæmis var það
þannig á tímabili að það þurfti að tvímanna þjónustuverið hjá
Vodafone til að geta annað eftirspurninni.“
Lúður fyrir auglýsingaherferð – Val fólksins var ekki sá eini
sem Fíton fékk en auglýsingastofan fékk flesta lúðrana á Ímark-
hátíðinni, alls fimm.
auglýsingaherferð
– Val fólksins
Umfangsmikil
auglýsingaherferð
sem skilaði árangri
ÍMARK
verðlaunin
fíton
Ragna
sveinbjörnsdóttir,
Bragi Valdimar
skúlason, Jón ari
Helgason, Þórhildur
Ögn Jónsdóttir,
starfsfólk á fíton og
Ragnar Gunnarsson
framkvæmdastjóri.