Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
Kvikmyndir
ron Howard og tom
Hanks sameina
krafta sína á ný í
Englum og djöflum –
tekst þeim nú betur
að ná til aðdáenda
dans Browns en
í da Vinci lyklinum?
tExtI:
hiLmar KarLsson
r
obert Langdon, prófessor í táknfræði
við Harvard-háskóla, er aðalpersónan
í Englum og djöflum (Angels &
Demons). Langdon er einnig
aðalpersónan í Da Vinci lyklinum
(The Da Vinci Code) eftir Dan Brown, mest
seldu skáldsögu síðari tíma. Kvikmyndin, Da
Vinci lykillinn varð ekki sú skemmtun sem
flestir bjuggust við. Eins og oft vill verða þegar
væntingar eru miklar verða vonbrigðin meiri
en tilefni gefur til og margir urðu til að lasta
kvikmyndina þegar ljóst var að hún næði ekki
töframætti bókarinnar. Í raun er kvikmyndin
Da Vinci lykillinn ágætur þriller og hefði ekki
fengið þær neikvæðu viðtökur sem hún fékk
hefði verið um frumsamið handrit að ræða,
en staðreyndin er að hún hefur ekki sama
aðdráttarafl og bókin.
Ron Howard, sem leikstýrði Da Vinci
lyklinum og Tom Hanks sem lék Robert
Langdon létu ekki bugast þrátt fyrir slæmar
viðtökur og fóru fljótt að huga að Englum og
djöflum, sem Dan Brown hafði ritað og sent
frá sér áður en hann lauk við Da Vinci lykilinn.
Englar og djöflar fór samt ekki að seljast að
ráði fyrr en Da Vinci lykilinn hafði slegið í
gegn. Englar og djöflar er því ekki framhald
heldur gerist hún áður en Langdon fór til
Parísar. Sögusviðið er Evrópa, en ekki París í
þetta skiptið heldur Róm þar sem Vatíkanið
er aðalvettvangurinn í sögunni. Í upphafi er
Langdon boðaður til Sviss á vettvang morðs
á þekktum vísindamanni. Áður en hann veit
af er hann flæktur í aldalangar erjur kaþólsku
kirkjunnar og leynifélagsins Illuminati sem
hefur í hyggju að valda usla í Vatíkaninu, þar
sem á að fara fram kjör nýs páfa. Ekki er ástæða
til að fara nánar í söguþráðinn, langflestir sem
ætla að sjá kvikmyndina hafa lesið bókina en
sögunni er vel fylgt í myndinni.
Fengu ekki að kvikmynda í Vatíkaninu
Englar og djöflar er ekki síður vel skrifaður
þriller en Da Vinci lykillinn og jafnvel betur
fallin til kvikmyndunar. Það sem hefur gert
kvikmyndagerðinni erfitt fyrir er að Ron
Howard og hans liði var bannað að kvikmynda
í Vatíkaninu og er það ólíkt yfirvöldum í París
þar sem Howard fékk að fara hvert sem er til
að kvikmynda, meðal annars í Louvre safnið.
Í Vatíkaninu vildi Howard kvikmynda meðal
annars í kirkjunum, Santa Maria del Popolo
og Santa Maria della Vittoria, sem koma
mikið við sögu. Þegar neitun kom þurfti að
byggja stórar og miklar eftirlíkingar til að gera
myndina sannfærandi. Howard sagði þó í
viðtali að kvikmyndatökuvélar væru alltaf að
verða betri og minni og það væri ótrúlegt hvað
hægt væri að gera með litla kvikmyndavél
í hendinni. Hvort þessi orð hans leiði til
málsóknar á eftir að koma í ljós. Áður höfðu
orðið tafir við að hefja tökur þar sem handritið
var ekki tilbúið þegar verkfall handritshöfunda
skall á í Hollywood. Það er því ekki hægt að
segja að gerð Engla og djöfla hafi verið dans á
rósum.
Það sem helst stóð kvikmyndinni Da Vinci
lyklinum fyrir þrifum voru misfellur í hand-
ritinu. Það var eins og handritshöfundurinn
Akiva Goldsman (A Beautiful Mind) næði
aldrei að nálgast kraftinn sem einkenndi
bókina. Howard gefur honum þó annað
tækifæri en fékk David Koep, sem síðast gerði
handrit að nýjustu Indiana Jones myndinni, til
að skrifa handritið með Goldsman.
englar og djöflar
Tom Hanks leikur
prófessor Robert
Langdon sem
kemst á slóð leyni-
félags sem á sér
langa og skugga-
lega sögu.