Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 39
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 39
taxta. Þetta eru þeir sem verst standa og hafa
orðið eftir. Kjör þeirra þarf að verja.“
Hann kallar þó kjarabaráttuna framundan
varnarbaráttu.
„Það er kreppa og við tökum tillit til þess.
Það er meðal annarra á ábyrgð okkar að koma
atvinnulífinu á legg á ný,“ segir Kristinn Örn.
„Hluti okkar félagsmanna hefur setið eftir og
það fólk hefur forgang.“
fjárfestingastefna
Kristinn Örn hefur einnig uppi efasemdir
um fjárfestingar lífeyrissjóðsins. Of mikið var
lagt undir í íslensk hlutabréf – áhættunni ekki
dreift sem skyldi. Um fjárfestingar lífeyrissjóða
gilda vissar reglur en Kristinn segist ekki
á þessari stundu geta sagt hvort hann vilji
breytingar á reglunum.
„Fyrst og fremst eiga lífeyrissjóðirnir að
dreifa áhættunni sem mest,“ segir Kristinn
Örn. „Hlutabréfamarkaðnum á Íslandi
var haldið uppi með krosseignatengslum
og vafasömum viðskiptum. Þetta var bóla
sem hlaut að springa. Í framtíðinni verða
stjórnendur lífeyrissjóðanna að gæta betur að
dreifingu áhættunnar.“
Hefðin rofin
Til þessa hafa ekki verið átök um forystuna í
VR. Formenn hafa verið sjálfkjörnir og þeir
hafa setið lengi. Guðmundur H. Garðarsson
var formaður frá 1957 til 1979 og svo tók
framkvæmdastjóri félagsins, Magnús L.
Sveinsson, við og var formaður til 2002.
Magnús vann fyrir VR í 42 ár. Raunar hefur
ríkt eining um forystuna í VR frá upphafi árið
1891 eða í 118 ár.
Gunnar Páll, fráfarandi formaður, fetaði
að þessu leyti í fótspor Magnúsar L. Hann var
hagfræðingur félagsins og fór úr því hlutverki
í kjörna forystu. Þetta er að sjálfsögðu ekki
dæmalaust innan verkalýðshreyfingarinnar.
Nægir þar að nefna Ásmund Stefánsson,
fyrrum hagfræðing, framkvæmdastjóra og
forseta ASÍ. Og Gylfa Arnbjörnsson, einnig
fyrrum hagfræðing, framkvæmdastjóra og
forseta ASÍ.
Formennska Kristins Arnar markar
tímamót í sögu VR. Hann hefur ekki unnið
sig upp til formennsku af skrifstofu félagsins.
Magnús L. Sveinsson hóf störf fyrir VR árið
1960 – fyrir 49 árum – og síðan hefur forysta
og sjálfur rekstur félagsins tvinnast saman.
Kristinn Örn kemur inn í formennskuna
úr starfi sínu í fluginu en ekki úr
höfuðstöðvunum í Húsi verzlunarinnar. Hann
nam flugrekstrarfræði í Bandaríkjunum og er
félagsmaður í VR vegna vinnu sinnar sem
vaktstjóri í flugrekstrareftirliti hjá Primera Air.
Hann hefur áður unnið hjá bæði Icelandair og
Air Atlanta innanlands og utan. Nú reiknar
hann þó með að verða formaður í fullu starfi.
„Ég tel að innan verkalýðshreyfingarinnar
ráði „tæknikratar“ oft of miklu,“ segir
Kristinn Örn. „Forystan endurnýjar sig sjálf
í stað þess að almennir félagsmenn veljist til
formennsku.“
VR Virðing Réttlæti
Félagið hefur frá árinu 2006 heitið •
VR eftir sameiningu nokkurra félaga
verslunarmanna. Starfar undir
kjörorðinu Virðing – Réttlæti.
Kjarni VR er gamla •
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Það
var stofnað árið 1891 af launþegum
og vinnuveitendum í verslunarstétt í
Reykjavík.
Það varð launþegafélag árið 1955.•
Stærsta félag innan Landssambands •
íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) sem
var stofnað árið 1957.
LÍV fékk aðild að Alþýðusambandi •
Íslands árið 1964.
Félagssvæði VR nær yfir •
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur,
Kópavogs, Hafnarfjarðar,
Garðabæjar, Seltjarnarness,
Mosfellsbæjar, Álftaness,
Kjósarhrepps,Vestmannaeyja,
Húnaþings vestra, alls Austurlands og
Akraness og nágrennis.
Félagsmenn eru nær 28 þúsund.•
„Hlutverk lífeyrissjóða
er að ávaxta fé
en ekki að stjórna
fyrirtækjum.“
Kristinn Örn Jóhannesson, nýkjörinn formaður VR.
Hann bylti