Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 29
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 29
12. allt var svo gaman, allir voru
svo ánægðir og gagnrýnin hvarf.
Og hvað hefur þú svo sem til þíns máls
þegar „allir eru að gera það gott“? Viltu vera
púkó? Það var helst að menn sæju blikur
á lofti og gagnrýndu stórauknar erlendar
lántökur, skuldsett heimili og atvinnulíf, og
svimandi sterkt og hátt gengi íslensku krón-
unnar þrátt fyrir krónískan viðskiptahalla ár
eftir ár.
13. Það var ekki bara gaman heldur
stóð líka öllum á sama um hraðann og
áhættuna í bankakerfinu. Viðkvæðið var að
þetta væri hvort sem er mál útrásarvíking-
anna og bankanna, sem og mál allra hinna
þekktu og frægu erlendra banka sem væru
svo vitlausir að vilja lána íslensku bönk-
unum. Ef allt færi til fjandans væri þetta
þeirra mál og kæmi okkur hinum ekkert
við. Það voru ekki við hin sem tókum þessi
lán eða værum í ábyrgðum fyrir þeim.
14. margt klikkaði þegar allt var
svona gaman. Í þessu andrúmslofti góð-
æris og velgengni varð eftirlit verra og gagn-
rýnin minni. Margir klikkuðu á vaktinni.
Bankarnir sjálfir, bankamennirnir, útrásar-
víkingarnir, Fjármálaeftirlitið, Seðlabankinn,
stjórnir fyrirtækja, forstjórar, millistjórn-
endur, endurskoðendur, stjórnmálamenn,
ráðherrar, sparifjáreigendur, blaðamenn,
fjárfestar, lífeyrissjóðir og síðast en ekki síst
sofnaði fólkið í landinu á verðinum í þessu
andrúmslofti stöðugs gróða og velgengni.
Þetta var andrúmsloft andvaraleysis. Það
dönsuðu allir villtan dans í kringum gull-
kálfinn.
15. allt í einu fóru „eitruðu lánin“
að segja til sín. Það var búið að lána svo
mikið að allir voru orðnir háðir öðrum með
greiðslur lána. Kúlulánin, þ.e. þú færð lán
núna og borgar nokkrum árum seinna (eftir
minni), voru farin að segja til sín. Kerfislæg
áhætta í bönkunum var orðin allt of mikil.
Svo gerðist það. Eitruðu lánin voru eitruð.
Þau voru bara loftbóla. Traustið hvarf. Eng-
inn lánaði öðrum neitt. Þetta var vatnasvæði
þar sem allt varð skyndilega vatnslaust á
einu ári. Útlánabólan sprakk. Bankakreppa
skall á. Hún varð harðari á Íslandi en ann-
ars staðar. Allir bankar á Íslandi fóru á höf-
uðið.
Hverjum
var þetta
að kenna?
Svar:
Græðgis-
væddir
kaupaukar
hrintu öllu
af stað.
Hlutabréfavísitalan 1999-2009
1999 2000 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
10.000
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0