Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
S i g L i n g A R
Nýbökuð brauð, kökur, tertur, smurt brauð, heitir réttir, veisluþjónusta, kaffihús... og góð þjónusta.
Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri
Þú átt alltaf erindi til okkar
Vistarverur í skútunum.Frá tyrkneska skútubænum Göcek.
Gleði um borð. Áhugasamir nemendur í siglingaskóla Önundar.
könnunarleiðangra. Í mörgum víkum er svo að finna litla krúttlega
fjölskyldurekna veitingastaði, sem gera eingöngu út á skútufólkið.
Síðastliðið vor stofnaði Önni svo eigin siglingaskóla, sem nú
annað vorið í röð áformar að halda tvö siglinganámskeið, annars
vegar frá 13.-24. apríl og svo hins vegar frá 23. apríl til 3. maí. Nám-
skeiðin eru sett upp til að gefa öllum þeim fjölda „pungaprófskvenna
og karla“ , sem sótt hafa bókleg námskeið hér heima, kost á verklegri
kennslu. Á námskeiðunum fá þátttakendur þjálfun í stjórnun segl-
skipa, sem og annarri vinnu um borð. Námskeiðið felur í sér skip-
stjórn, beitingu skips, seglabúnaðar og velar við ýmiskonar aðstæður,
notkun siglingatækja sem og almenna og góða sjómennsku. „Ég er
fyrst og fremst að kenna sjómennsku og byggi námsefnið á námsskrá
frá Siglingamálastofnun og Royal Yacting Association. Nú þegar er
ég búinn að útskrifa fimmtán skipstjóra.
Auðveldast er að nálgast skútubæinn Göcek frá Íslandi með því að
fljúga með Úrval-Útsýn beint til Dalaman, sem er 22 km frá Göcek,
eða með Vita til Bodrum-Milas, sem eru 180 km frá Göcek. Að
venju er tekið vel á móti farþegum um borð í skútunum, sem eru
vel útbúnar siglingatækjum, sjókortum, GPS og leiðsögubókum með
nákvæmum upplýsingum um allt siglingasvæðið. Fremur auðvelt er
að sigla um svæðið. Að mestu leyti er siglt eftir auganu, en æskilegt
er að leigutakar hafi kunnáttu í siglingafræði og notkun sjókorta,
sem og meðhöndlun báts í höfn og á akkerislægi. Að öðrum kosti
má alltaf leigja sér skipstjóra með skútunni gegn smá viðbótargjaldi.
Í hverri skútu er svefnrými fyrir allt að tíu manns. Skútan leigist í
heila viku frá 2.300 evrum og upp í 3.500 evrur og er þá allt innifalið
nema díselolía, kostur og hafnargjöld annars staðar en í heimahöfn.
Auk þess að leigja skúturnar til siglinga, ætlar Önundur að halda
áfram að bjóða áhugasömum siglingaköppum upp á þátttöku í
Regatta-siglingakeppnunum. Keppnir þessar fara fram tvisvar á ári,
í maí og í nóvember ár hvert og er þá gjarnan mikið um dýrðir í
skútubænum Göcek. www.seaways-sailing.com