Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 76
76 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
K
Yn
n
in
G
iðnaður
Árið 1995 stofnaði Ingi Rútsson fyrirtækið
Stími ásamt föður sínum og bræðrum.
Fyrirtækið hefur í gegnum árin hannað og
smíðað mikið af tækjabúnaði fyrir álver
víða um heim og samstarf þess við álverið
í Straumsvík verið bæði uppspretta stórra
verkefna og hugmynda.
Aldir upp í álverinu
Ingi Rútsson segir að þeir bræðurnir séu
nánast aldir upp í álverinu:
„Við fórum að taka að okkur ýmis
aukaverkefni og þannig vatt þetta upp á
sig. Stímir, fyrirtæki okkar feðga, hefur í
gegnum árin hannað og smíðað mikið af
tækjabúnaði sem notaður er í álverinu.
Fyrsta stóra verkefnið okkar var að hanna
álhæðarskynjara sem er mjög krítískur
búnaður í steypuskálunum því steypugæðin
hafa mikið að gera með álhæðina í
mótunum. Það var dálítil barátta á sínum
tíma því þáverandi eigendur álversins, sem
sjálfir voru að smíða svipaðan vélbúnað,
vildu selja hann hingað. En Rannveig Rist
og Bjarni Jónsson höfðu trú á þessu hjá
okkur og þannig hóf Stímir göngu sína fyrir
alvöru.
Síðan fórum við að markaðssetja þetta
erlendis og höfum nú selt töluvert af
tækjum úr landi,“ segir Ingi sem telur að
álverið hafi verið kærkominn vettvangur til
að þróa nýjar hugmyndir.
„Það er mjög erfitt að flytja út svona
tækjabúnað nema maður hafi fordæmi
fyrir því að nota hann einhvers staðar
með góðum árangri. Það hefur því verið
ómetanlegt að geta prófað sig áfram hérna.“
Fyrirtækið vex
„Í upphafi var vélaverkstæðið frekar
takmarkað og við létum vinna mikið fyrir
okkur hjá vélaverkstæði Hjalta Einarssonar.
Fljótlega þróuðust mál þannig að Stímir
var orðið óþægilega lítið fyrirtæki til að
geta staðið undir þessu öllu eitt, bæði
framleiðslunni og svo sölustarfseminni
erlendis, enda mikið af stórum fyrirtækjum
í samkeppni við okkur. Við sameinuðumst
því Vélaverkstæði Hjalta og í dag erum við
með vörumerki sem er nokkuð vel þekkt
í þessum bransa,“ segir Ingi og heldur
áfram: „Við höfum verið að smíða mikið
af vélum og búnaði fyrir skautsmiðjuna,
mælitæki og sérhæfðan búnað fyrir álverin
og höfum verið að selja búnað meðal annars
til Ástralíu, Indlands, Sviss og Noregs.“ Að
svo mæltu leiðir Ingi blaðamann í gegnum
álverið og sýnir ýmsan vélbúnað sem er
smíðaður og hannaður af Stími.
Sparnaður er driffjöður uppfinninga
Að ganga um álverið með Inga sem
fararstjóra er mikil upplifun. Merki
Stímis blasir við hvert sem litið er
og það er saga á bak við hvert tæki.
Vélbúnaðurinn ber þess merki að vera
fundinn upp eftir þörfum og leysir bæði
minnstu og stærstu vandamál. Ingi sýnir
vélar sem forhita gaffla, réttingarvélar,
viðnámsmæla, grafíthúðunargræjur,
færibönd, steypubúnað, sjálfvirka sög á
tindaverkstæðinu og margt fleira. Staldrað
er við vél sem merkir með málningu og
leysigeislabyssu innsetningarhæðina á
göfflum. „Það er gagnagrunnur sem heldur
Frumkvöðlastarfsemi í Straumsvík
RiO tintO alcan og stÍMiR/Vhe
Kragarnir á skautgöfflunum eru uppfinning Stímis sem eykur nýtingu skautanna. Þeir eru settir á með svonefndri kragavél sem fyrirtækið
þróaði og framleiddi.