Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 53
Í flokknum tímaritsauglýsingar voru tilnefndar: Heitar
pizzur (Domino’s Pizza), framleiðandi O! Auglýsingastofa,
Lagarfljótsormurinn – íslensk þjóðsaga (ZO ON), framleið-
andi Hvíta húsið, Mín skoðun (Kit Kat, Ölgerðin), framleið-
andi ENNEMM, Nóbelsverðlaun (Háskólinn í Reykjavík),
framleiðandi Hvíta húsið, og Það var svona sem við hugs-
uðum það (Icelandair), framleiðandi Íslenska.
Heitar pizzur sigraði og þess má geta að O!
Auglýsingastofan var með eina tilnefningu og fékk verð-
laun, 100% nýting þar. Einar Gylfason, hönnunarstjóri hjá
O!, stofnaði fyrirtækið ásamt Þóri Ómari Jónssyni og í dag
starfa þar átta manns: „Hugmyndin með Heitar pizzur var
að vekja athygli á fljótri og góðri heimsendingarþjónustu
Domino’s Pizza. Við vildum með auglýsingunni sýna fram
á að pítsurnar væru ennþá heitar þegar þær berast við-
skiptavininum.“
Þegar Einar er spurður hvort erfitt sé að koma með
góðar og frumlegar hugmyndir þegar pítsur eru annars
vegar segir hann svo ekki vera: „Það veltur allt á manni
sjálfum að koma með nýjar hugmyndir og finna hliðar á
vöru, eða leið til að selja vöru, sem allir þekkja. Það er í
sjálfu sér ekki erfiðara að finna góðar og frumlegar auglýs-
ingar fyrir pítsur frekar en eitthvað annað. Domino’s Pizza
hefur jafnframt verið góður viðskiptavinur og þar höfum
við gott svigrúm til að gera skemmtilega og flotta hluti.
Við fengum mjög góð viðbrögð og fólki fannst auglýsingin
skemmtileg. Hún vakti athygli og var meðal annars valin til
birtingar á vefsíðunni Ads of the World.“
Einar segir verkefnastöðuna góða og hafi verið það frá
byrjun: „Við höldum áfram að vinna okkar vinnu með hæfi-
legri blöndu af gleði og metnaði.“
TímariTsauglýsingar
Vildum vekja
athygli á góðri
heimsendingar-
þjónustu
ÍMARK
verðlaunin
ó!
Einar Gylfason, hönnunarstjóri.