Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
S i g L i n g A R
„Ég er nú að hefja mitt fjórða rekstrarár hér í Tyrklandi á þessu ári.
Segja má að kúnnahópurinn minn samanstandi af þremur jafnstórum
þriðjungum, Tyrkjum, Íslendingum og svo öðrum þjóðernum. Og
þegar Íslendingar eru komnir upp á bragðið og hafa pantað einu sinni
skútusiglingu, koma þeir gjarnan aftur og aftur. Það fullvissar mig
um að menn fara héðan mjög ánægðir,“ segir Önundur Jóhannsson
flugstjóri sem stofnaði skútufyrirtæki í tyrkneska skútubænum Göcek
eftir farsælan feril sem atvinnuflugstjóri. Skútuvertíðin stendur að
heita má óslitið frá apríl til nóvember.
Önundur hefur lengst af varið starfsævinni sem flugstjóri, síðustu
sautján árin hjá Lufthansa áður en hann sneri sér að skúturekstr-
inum. Hann er fæddur og uppalinn í Hrísey til átta ára aldurs og
ákvað sex ára gamall að hann ætlaði sér að verða flugstjóri þegar
hann yrði stór.
„Sú mynd er mér enn ljóslifandi þegar Jóhann Helgason lenti á
eins hreyfils sjúkraflugvél, Cessnu 180, í fjörunni í Hrísey til að ná
í sjúkling þegar ég var aðeins sex ára,“ segir Önundur. „Þetta þótti
afskaplega tilkomumikið. Allir eyjarskeggjar þustu niður í fjöru og
þarna í fjörunni ákvað ég að gerast flugstjóri. Þetta var svo heillandi
heimur fyrir ungan eyjapeyja. Til þess að eiga fyrir flugskírteininu var
ég á sjó í nokkur ár og stundaði allan veiðiskap nema skakið. Og það
var þá sem ég uppgötvaði að ódýrast væri líklegast að kaupa sér flug-
vél og leigja sér kennara sem ég svo gerði.“
Eftir að atvinnuflugmaðurinn og kennaraskírteinið var í höfn fór
Önundur vestur á Ísafjörð og rak flugskóla sumurin 1968 og 1969.
Næstu fimm árin starfaði hann hjá Flugstöðinni í Reykjavík sem var
önundur jóhannsson flugstjóri og Hríseyingur venti sínu kvæði í kross eftir farsælan feril
sem atvinnuflugstjóri og þar af sautján síðustu árin hjá lufthansa. Hann stofnaði skútu-
fyrirtækið Seaways-sailing í tyrkneska skútubænum Göcek. Hann á skúturnar tobbu truntu,
Íslandssól, Sóllilju og Sölku Völku.
FlotAForInGInn VIð tyrKlAndSStrEndUr:
tExtI oG MyndIr: jóhanna ingvarsdóttir
úR FLuginu
á LúxuSSkúTuR
Önundur Jóhannsson, fyrrum atvinnuflugstjóri hjá Lufthansa.
Núna flotaforingi og framkvæmdastjóri skútufyrirtækisins
Seaways-sailing.