Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 30

Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 Bankar Bankar og fjármálafyrirtæki eru í eðli sínu íhaldssöm fyrirtæki. Í áratugi hafa þeir haft framsækna íhaldssemi að leiðarljósi. Þeir lána til heimila og fyrirtækja og hafa látið atvinnulífið um ákafann og ný tækifæri. Þeirra hlutverk var að lána fé sparifjáreig- enda. Athafnamenn hafa ætíð orðið að fara bónleiðir til bankastjóra til að selja hug- myndir sínar. Ný vinnubrögð banka Upp úr árinu 1995, eftir nokkurra ára sam- dráttarskeið um heim allan og bankakreppur á Norðurlöndunum, fór að verða vart við aukið flæði peninga í heiminum. Það sem meira var; vinnubrögð banka voru að breyt- ast; þeir lánuðu meira og ákafar – og urðu gráðugri og virkari þátttakendur í atvinnulífinu. Bjarni og FBa Árið 1997 var Bjarni Ármannsson, fyrr- verandi forstjóri Kaupþings, sem þá var lítið fyrirtæki, ráðinn forstjóri FBA, Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. Bjarni var þá aðeins 29 ára. FBA var ríkisbanki sem var einkavæddur á árunum 1998 til 1999. Eigið fé FBA var mikið í upphafi og miklar vangaveltur voru um það hvernig Bjarna myndi takast að ávaxta svo mikið eigið fé. kaupaukar og bónusar Bjarni tók við FBA með miklu eigin fé og þurfti að ávaxta það. Hann réð til sín öfl- uga stjórnendur til þessa verks. Talsverðar umræður urðu um það þegar FBA ákvað að taka upp virkt kerfi kaupauka og bón- usa að erlendum sið og gera kauprétti millistjórnenda og stjórnenda á hlutabréfum í bankanum að drifkrafti. Ýmsir gagnrýndu þetta en langflestir voru á því að þetta væri sniðug nýjung og hvetjandi fyrir bankann og atvinnulífið. kaupþing og FBa fjármagna Baug Vorið 1998 birtist athyglisverð frétt um að Bónus og Hagkaup hefðu verið sameinuð í eitt fyrirtæki; Baug, og að Kaupþing og FBA hefðu fjármagnað kaupin. Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskylda keyptu gömlu Hagkaupsfjölskyldunni út í einu lagi en hún hafði frá haustinu 1992 átt helminginn í Bónus. Fjármögnun Bónusfjölskyldunnar á Baugi vorið 1998 var í raun fyrsta fréttin um stórfjármögnun tveggja banka við kaup á íslensku stórfyrirtæki. Allt greitt með einum tékka. Þetta var bara byrjunin. Eftir þetta urðu fréttir um kaup athafnamanna á fyrir- tækjum með „aðstoð banka“ algengar. Endurfjármögnun varð vinsælt orð í tungu- máli viðskiptanna á kotnað endurgreiðslu. Netbólan sprakk vorið 2000 Aukið flæði peninga í heiminum, áhættu- samari vinnubrögð banka og ofurtrú alþjóð- legra fjárfesta á að Netið væri uppspretta hagvaxtar í heiminum, leiddi til Netbólunnar svonefndu. Verð hlutabréfa í öllum tæknifyr- irtækjum snarhækkuðu. Það var svo í mars árið 2000 sem Netbólan sprakk með hvelli og hlutabréfaverð féll um allan heim. Þetta varð aðeins efnahagslægð en ekki kreppa og stóð hún yfir í um eitt ár; eða fram á árið 2001. Vinsældir Íslenskrar erfðagreiningar náðu hámarki í netbólunni. Sameining Íslandsbanka og FBa Einkabankarnir Íslandsbanki og FBA voru sameinaðir um miðjan maí árið 2000 undir heitinu Íslandsbanki. Bjarni Ármannsson varð bankastjóri hins sameinaða banka ásamt Val Valssyni. Rætt var um samein- inguna sem stór tímamót í sögu bankamála á Íslandi. Kaupaukar, bónusar og kaup- réttarsamningar urðu við þetta áberandi í kjörum starfsmanna Íslandsbanka. Björgólfsfeðgar selja Bravó Í upphafi ársins 2002 birtust fréttir um að þrír Íslendingar, Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteinsson, hefðu selt bjórverksmiðju sína í Pétursborg, Bravó, á 41 milljarð króna til hollenska bjórrisans Heineken. Þetta var fáheyrð fjárhæð í íslensku viðskiptalífi. Samson kaupir í Landsbanka á 12,3 milljarða Eignarhaldsfélag þeirra Björgólfs Guð- mundssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar, kaupir 45,8% hlut í Landsbanka Íslands haustið 2002 á 12,3 milljarða króna. Gengið var endanlega frá kaupunum undir áramót sama árs. Íslenskir peningamenn, sem litu á sig sem alþjóðlega fjárfesta, voru komnir inn í landið. S-hópur kaupir í Búnaðarbanka á 11,9 milljarða Um miðjan nóvember 2002 náðist sam- komulag um að S-hópurinn svonefndi; Egla, Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga, Samvinnulífeyrissjóðurinn og VÍS (leifarnar af gamla Sambandinu), hefði keypt 45,8% hlut í Búnaðarbanka Íslands á 11,9 millj- arða króna. Búnaðarbankinn og kaupþing sameinast Í byrjun sumars árið 2003 var hald- inn fréttamannafundur þar sem sagt var frá sameiningu Búnaðarbankans og Kaupþings undir heitinu KB banki. Þeir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson urðu bankastjórar hins sam- einaða banka. Þetta varð stærsti banki á Íslandi en báðir bankarnir voru með starfsemi í Lúxumborg, auk þess sem Kaupþing var í Svíþjóð og á fleiri stöðum. Í viðtölum sögðu þeir Sigurður og Hreiðar að hinn stóri, sameinaði banki væri tákn um nýja tíma; bankinn myndi styðja við útrás stærstu fyrirtækja á Íslandi. k a u p a u k a r BaNkarNir GráðuGri ...

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.